Yfirlit
Revolut snýst um að þú hafir fulla stjórn á peningunum þínum. Okkur langar til að tryggja að þú fáir viðeigandi upplýsingar um vörur og þjónustu sem við vitum að þú munt falla fyrir.
Þegar þú hefur veitt samþykki sérsníðum við lífsstílstilboðin frá Revolut að þér. Þegar talað er um „lífsstílstilboð“ eigum við við auglýsingar og tilkynningar um þjónustu, tilboð eða kynningar sem eru í boði í hlutanum „Lífsstíll“ í Revolut-forritinu og tengjast:
- lífsstílsvörum okkar og þjónustu
- vörumerkjum og vörum þriðju aðila
Lífsstílsvörur og -þjónusta Revolut sem falla hér undir eru m.a.:
- gisting
- upplifanir
- setustofur
- SmartDelay
- rafræn SIM-kort
- punktar hjá flugfélögum
Hvernig sýnum við þér sérsniðin lífsstílstilboð?
Fyrst verðurðu að segja okkur að þú viljir að við sérsníðum lífsstílstilboðin sem við bjóðum þér.
Þegar þú hefur gert það sérsníðum við:
- lífsstílstilboðin sem þú sérð í Revolut-forritinu
- lífsstílstilkynningarnar sem þú færð (ef þú hefur sagt okkur að þú viljir fá þær)
Við skoðum hvernig þú nýtir þér lífsstílstilboð til að átta okkur á árangri sérsniðnu lífsstílsauglýsinganna sem við birtum þér í Revolut-forritinu og lífsstílstilkynninganna sem við sendum þér. Við getum mælt hvaða lífsstílsauglýsingar eða -tilkynningar þú smellir á eða skoðar. Það þýðir aftur að við getum fært þér enn gagnlegri og meira viðeigandi auglýsingar og tilkynningar.
Hvaða upplýsingar notar Revolut?
Sérsniðin lífsstílstilboð eru hönnuð með þig í huga. Það er eingöngu þitt að ákveða hvort þú vilt kveikja á þeim. Þú getur slökkt á þeim hvenær sem er.
Þegar þú kýst að fá þau notar Revolut eftirfarandi upplýsingar til að tryggja að við látum þig vita af lífsstílsvörum, -þjónustu, -tilboðum og -kynningum sem skipta þig beint máli:
- þá þjónustu sem þú nýtir þér hjá þriðju söluaðilum gegnum Revolut-kortið þitt eða -reikninginn (t.d. heiti söluaðilans sem þú hefur greitt, brottfarar- og komuborgir ef þú kaupir flugmiða)
- upplýsingar sem við höfum um þig (meðal annars aldur þinn, heimilisfang, kyn, afmælisdag)
- upplýsingar sem við söfnum um þig þegar þú notar Revolut (til dæmis hvaða fartæki þú notar, útgáfu Revolut-forritsins sem þú notar, Revolut-áskriftina þína, tímabelti þitt og almenna staðsetningu)
- hvaða Revolut-vörur þú notar og hvernig þú notar þær
Revolut notar engar upplýsingar um viðkvæm viðskipti þín gegnum Revolut-kortið þitt eða -reikninginn (t.d. ef þú eyðir peningum á heilbrigðisstofnun eða hjá fag-, trúar- eða stjórnmálasamtökum).
Hvaða fyrirtæki ber ábyrgð á persónuupplýsingunum mínum?
Revolut Ltd., fyrirtæki í Bretlandi, ber ábyrgð á að útvega þér sérsniðin lífsstílstilboð.
Ef þú ert utan Bretlands þarf Revolut-aðilinn sem sér þér fyrir greiðslureikningi að deila framangreindum upplýsingum með Revolut Ltd. Þetta gerir okkur kleift að bjóða þér upp á sérsniðin lífsstílstilboð sem þú hefur beðið um. Ef þú ert t.d. á Evrópska efnahagssvæðinu deilir Revolut Bank UAB upplýsingunum þínum með Revolut Ltd.
Samkvæmt þar að lútandi lögum um bankaleynd í sumum löndum kann að vera farið með þessar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þegar þú kýst að nýta þér þessa þjónustu samþykkirðu að Revolut Bank UAB, eða útibú hans, megi deila þessum upplýsingum með Revolut Ltd. til að veita þér sérsniðnar lífsstílsauglýsingar og -tilkynningar.
Vinnur Revolut með þriðju aðilum?
Já, þegar við sýnum þér sérsniðin lífsstílstilboð um vörur, þjónustu, tilboð eða kynningar þriðju aðila. Revolut vinnur með öðrum fyrirtækjum að því að færa þér bestu kjörin.
Önnur fyrirtæki biðja Revolut að birta viðskiptavinum Revolut auglýsingar eða senda tilkynningar um vörumerkin sín. Þessi fyrirtæki geta tilgreint hvers konar viðskiptavinir Revolut þau vilja að sjái auglýsingarnar sínar og fái tilkynningar um vörumerkin sín. Fyrirtæki gæti t.d. viljað beina auglýsingum sínum og tilkynningum til viðskiptavina Revolut sem:
- eru í tilteknu landi (til dæmis Bretlandi)
- eru á tilteknu aldursbili (til dæmis 20 til 24)
- eru af tilteknu kyni (til dæmis konur)
- hafa keypt tiltekin vörumerki áður
Þá tekur Revolut saman markhóp viðskiptavina. Þessir viðskiptavinir sjá sérsniðnar lífsstílsauglýsingar eða fá sérsniðnar lífsstílstilkynningar um valda vöru, þjónustu, tilboð eða kynningu fyrirtækisins.
Revolut deilir engum upplýsingum um þig með öðrum fyrirtækjum nema: (a) þú verslir við vörumerki þriðja aðila eftir að hafa smellt á auglýsingu eða tilkynningu; og/eða (b) við þurfum að miðla upplýsingum (takmarkast algjörlega við uppsöfnuð færslugögn og einkvæmt kennimerki sem þú færð eingöngu á meðan kaup þín á netinu standa yfir) til að tryggja að þú fáir hvers kyns endurgreiðslu sem þér hefur verið lofað og/eða Revolut fái þóknun frá vörumerki þriðja aðilans.
Ekki gleyma að aðeins þeir viðskiptavinir Revolut sem hafa sagt okkur með forvirkum hætti að þeir vilji taka þátt sjá þessar sérsniðnu lífsstílsauglýsingar eða fá sérsniðnar lífsstílstilkynningar.
Hvernig geturðu breytt kjörstillingum auglýsinga eða tilkynninga?
Revolut sýnir þér aðeins lífsstílstilboð sem eru sérsniðin að þér ef þú samþykkir það. Þú getur breytt kjörstillingunum þínum hvenær sem er. Í Revolut-forritinu geturðu:
- uppfært kjörstillingarnar þínar hvenær sem er með því að nota rofann „Lífsstíll“ í stillingahlutanum „Tilkynningar“ í Revolut-forritinu.
- hafnað tölvupósti og markaðsefni (þar á meðal um vörur Revolut og kynningar þriðju aðila) frá okkur í hlutanum „Tilkynningastillingar“ í Revolut-forritinu.
Hvar finnurðu nánari upplýsingar um hvernig Revolut vinnur persónuupplýsingar þínar?
Lestu persónuverndaryfirlýsingu okkar fyrir viðskiptavini. Þar er að finna mikið af mikilvægum upplýsingum um hluti á borð við:
- hvaða Revolut-fyrirtæki er ábyrgðaraðili persónuupplýsinganna þinna
- hvers vegna Revolut safnar almennt og notar persónuupplýsingarnar þínar
- hvernig Revolut deilir persónuupplýsingunum þínum
- hvort Revolut deilir persónuupplýsingunum þínum á heimsvísu
- hversu lengi Revolut geymir persónuupplýsingarnar þínar
- hvernig þú getur nýtt þér réttindi þín sem skráður aðili samkvæmt viðeigandi gagnaverndarlögum
Hvert á að leita ef spurningar vakna?
Hafðu samband við [email protected] ef þú ert með einhverjar gagnaverndarspurningar um sérsniðnar auglýsingar eða tilkynningar. Sérfræðiteymið okkar aðstoðar þig með ánægju.