Gildistökudagur: 3. apríl 2026
Í stuttu máli: Hvernig við meðhöndlum persónuupplýsingarnar þínar
- Við söfnum eftirfarandi: Við söfnum upplýsingum sem þú veitir okkur (eins og skilríkjum og fjárhagsupplýsingum þínum), upplýsingum úr tækinu þínu (eins og staðsetningu eða IP-tölu) og upplýsingum frá öðrum (eins og lánshæfismatsstofnunum). Við búum einnig til nýjar upplýsingar um þig út frá notkun þinni á Revolut-forritinu.
- Svona notum við upplýsingarnar: við notum persónuupplýsingar þínar til að bjóða þjónustu okkar, koma í veg fyrir svik, taka ákvarðanir um hvort þú uppfyllir skilyrði til að nota tilteknar vörur, bæta vörur okkar og senda þér viðeigandi tilboð (þegar slíkt er heimilað).
- Við deilum upplýsingunum með eftirfarandi: Við deilum persónuupplýsingum þínum með fyrirtækjum sem hjálpa okkur að útvega vörur okkar og þjónustu, lánshæfismatsstofnunum, einstaklingum eða fyrirtækjum sem þú sendir eða færð fjármuni frá og opinberum stofnunum (samkvæmt gildandi lögum á hverjum stað).
- Réttur þinn: þú stjórnar persónuupplýsingum þínum. Þú getur beðið okkur um afrit af upplýsingunum, beðið okkur um að eyða eða hætta notkun slíkra upplýsinga (sér í lagi til markaðssetningar) með því að senda tölvupóst á dpo@revolut.com. Þú getur einnig stjórnað persónuverndarstillingum á beinan hátt í forritinu.
- Skuldbinding okkar: við munum ávallt standa vörð um persónuupplýsingar þínar. Við munum aldrei selja persónuupplýsingarnar þínar. Við munum ávallt veita þér eins mikla stjórn og mögulegt er á því hvernig við notum persónuupplýsingar þínar.
1. Um okkur
Revolut-samstæðan samanstendur af mismunandi fyrirtækjum. Við látum þig vita við hvaða Revolut fyrirtæki þú ert í sambandi við þegar þú sækir fyrst um eða notar Revolut vöru eða þjónustu. Revolut-fyrirtækið sem veitir þér vöru eða þjónustu ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga þinna fyrir umrædda vöru eða þjónustu. Slíkt Revolut-fyrirtæki telst ábyrgðaraðili persónuupplýsinga þinna.
Innan Evrópska efnahagssvæðissins (EES) er Revolut Bank UAB aðalábyrgðaraðili persónuupplýsinga þinna, jafnvel þótt þú notir þjónustu hjá einu af útibúum þess.
Revolut býður vörur og þjónustu í gegnum mismunandi fyrirtæki. Þú getur skoðað Revolut-fyrirtækin sem bjóða upp á þessar vörur og þjónustu hér.
2. Hvers vegna þarf ég að lesa þessa yfirlýsingu?
Við söfnum persónuupplýsingunum þínum þegar þú notar:
- vefsvæði okkar á www.revolut.com
- eitthvert af Revolut-forritunum okkar (eins og Revolut, Revolut Invest eða Revolut X)
- einhverja þjónustu sem þér stendur til boða í forritum eða á vefsvæði okkar
Við kunnum einnig að safna persónuupplýsingum þínum frá öðru fólki eða fyrirtækjum. Áðurnefndu er lýst á ítarlegri hátt í hlutanum Hvaða persónuupplýsingum safnið þið? hér á eftir.
Þegar talað er um „persónuupplýsingar“ er átt við upplýsingar sem:
- við höfum um þig (t.d. upplýsingar um hvenær þú notar Revolut-kortið þitt til að greiða fyrir hluti)
- má nota til að auðkenna þig persónulega (t.d. með nafni þínu og póstfangi)
Þessi yfirlýsing tilgreinir nánar hvaða upplýsingum við söfnum og hver réttur þinn er varðandi persónuupplýsingar þínar.
Um tilteknar vörur, þjónustueða ferli Revolut kunna að gilda aðskildar persónuverndaryfirlýsingar. Hér eru nokkur dæmi:
- Persónuverndaryfirlýsing Revolut Messenger
- Persónuverndaryfirlýsing Revolut Pay Checkout
- Revolut Kids & Teens persónuverndaryfirlýsing
- RevPoints persónuverndaryfirlýsing
- Tilkynning um gagnasöfnun sem tengjast vörnum gegn peningaþvætti
Þessar tilkynningar:
- veita þér nánari upplýsingar um hvernig Revolut safnar, notar og verndar persónuupplýsingar þínar þegar þú notar tilteknar Revolut vörur eða þjónustu eða þegar þú lýkur við tiltekin ferli í forritinu
- birtast í viðeigandi Revolut-forriti þegar þú byrjar að nota viðeigandi Revolut vörur eða þjónustu eða byrjar á áðurnefndum ferlum
- er hægt er að opna hvenær sem er á vefsvæði Revolut (sjá hér)
Við kunnum einnig að veita þér endrum og sinnum „tímanlegar“ útskýringar á persónuvernd í forritum okkar. Þegar þú notar nýja Revolut vöru eða þjónustu í fyrsta skipti:
- slíkar útskýringar sýna þér hvaða tilteknu persónuupplýsingum Revolut safnar, notar eða deilir við notkun slíkrar vöru eða þjónustu
- þegar slíkt á við færðu beiðni um að yfirfara persónuverndarstillingar þínar í forritinu
Við kunnum að veita persónuverndaryfirlýsingar og útskýringar á öðrum tungumálum en ensku. Enska útgáfan skal gilda ef misræmi af einhverjum toga kann að vera á milli útgáfa á öðrum tungumálum og ensku útgáfunni.
Hafðu samband á dpo@revolut.com ef spurningar vakna um notkun okkar á persónuupplýsingum þínum.
3. Hvaða persónuupplýsingum safnið þið?
Í töflunni hér á eftir má sjá hvaða persónuupplýsingum við söfnum og notum.
Gerð persónuupplýsinga | Upplýsingar |
Upplýsingar sem þú veitir okkur | Við söfnum upplýsingum sem veitir okkur þegar þú: ✓ fyllir út eyðublað ✓ hefur samband við okkur ✓ svarar einhverri af könnunum okkar ✓ skráir þig og notar eitt af forritum okkar ✓ skráir eða samþykkir skráningu barns til að nota Revolut Kids & Teens forritið ✓ opnar reikning eða notar einhverja af þjónustu okkar ✓ veitir okkur aðgang að öðrum fjárhagsreikningum þínum (t.d. í gegnum opna bankaþjónustu) ✓ tekur þátt í umræðum eða kynningum á netinu ✓ talar við fulltrúa samfélagsmiðla eða þjónustuvers okkar (annað hvort í síma eða forritum okkar) ✓ tekur þátt í keppni eða deilir upplýsingum með okkur á samfélagsmiðlum ✓ hefur samband við okkur af öðrum ástæðum Við munum safna eftirfarandi upplýsingum: ✓ nafni og heimilisfangi, fæðingarstað, fæðingardegi og -ári og ríkisfangi ✓ netfangi, símanúmeri og frekari upplýsingum um tækið sem þú notar (t.d. síma, tölvu eða spjaldtölvu) ✓ traustum staðsetningum sem þú hefur auðkennt í öryggisskyni (eins og heimavið eða í vinnu með ferðastillingu) ✓ notandanafni þínu á Revolut sem kallast „Revtag“ (þetta er handahófskennt notandanafn og er sjálfkrafa úthlutað þegar þú skráir þig fyrst, en þú getur breytt því síðar) ✓ skráningarupplýsingar þínar ✓ upplýsingar um bankareikninginn þinn, þ.m.t. reikningsnúmer, bankanúmer, og IBAN-númer ✓ upplýsingar um Revolut debet- og kreditkortin þín (eða önnur debet- eða kreditkort sem þú hefur skráð hjá okkur) þar á meðal kortanúmer, gildistíma, CVC (síðustu þrjá tölustafina í númeri aftan á kortinu) og einhvern af sérsniðnum QR-greiðslukóðunum þínum ✓ afrit af skilríkjum þínum (til dæmis vegabréfi eða ökuskírteini) og allar aðrar upplýsingar sem þú kannt að láta okkur í té til sýna að þú uppfyllir skilyrði til að nýta þér þjónustu okkar ✓ dvalarland, skattalega heimilisfesti skattauðkennisnúmer og kennitölu ✓ upplýsingar sem þú lætur í té þegar þú sækir um lán, þ.m.t. frekari upplýsingar um tekjur þínar eða maka þíns, atvinnu og fjárhagslegar skuldbindingar ✓ upplýsingar sem þú lætur í té þegar þú skráir þig fyrir auðstýringar-, viðskipta- eða rafmyntarafurðum, þ.m.t. frekari upplýsingar um atvinnu og laun ✓ upplýsingar sem þú lætur í té þegar þú skráir eða samþykkir notkun barna þinna á Revolut Kids & Teens ✓ upplýsingar alla núverandi reikninga eða eignir þínar í öðrum fyrirtækjum sem þú ætlar að flytja yfir til Revolut ✓ skrár yfir samtöl okkar, ef þú hefur samband við okkur eða við höfum samband við þig (þ.m.t símtalaskrár) ✓ mynd af þér á sniði ljósmyndar eða myndskeiðs og gögn andlitsskönnunar (sem nefnast „lífkennisgögn“), eða raddgögn, sem fengin eru úr ljósmyndinni eða myndbandinu af þér í því skyni að staðfesta hver þú ert sem hluta af mati okkar á viðskiptavinum (KYC), til að auðkenna þig sem vottaðan notanda þjónustu okkar eða til frekari greininga og koma í veg fyrir svik ✓ upplýsingar um annað fólk (svo sem sameiginlegan reikningshafa, maka þinn eða fjölskyldu) þegar við biðjum þig um að veita okkur þessar upplýsingar til að gera okkur kleift að uppfylla skyldur okkar samkvæmt mati okkar á viðskiptavinum (KYC), fylgja lögum gegn peningaþvætti og öðrum lögum og aðstoða við eftirlit með svikum Í tilvikum þegar þú lætur okkur í té persónuupplýsingar annarra einstaklinga (eins og um sameiginlegan reikningshafa, maka þinn eða fjölskyldu) eða biður okkur um að deila persónuupplýsingum slíkra einstaklinga með þriðju aðilum staðfestir þú að hafa tilkynnt slíkum einstaklingum um slíkt fyrirfram. |
Upplýsingum sem safnað er saman um notkun þína á vörum og þjónustu okkar | Í hvert sinn sem þú notar vefsvæðið eða forrit okkar söfnum við eftirfarandi upplýsingum: ✓ tæknilegum upplýsingum, þar á meðal IP-tölu sem notuð er til að tengja tölvuna þína við internetið, innskráningarupplýsingum, tegund og útgáfu vafrans, stillingu tímabeltisins, tungumáli tækisins, stýrikerfi og verkvangi, tegund tækisins sem þú notar, hvort tækið þitt notar sýndareinkanet (VPN), upplýsingum um einkvæmt auðkenni tækisins (dæmis IMEI-númer tækisins, eSIM ICCID, samsvarandi auðkenni eSIM eða farsímanúmerið sem tækið notar), upplýsingum um farsímanet, stýrikerfi farsímans og tegund vafra sem þú notar í farsímanum ✓ upplýsingum um heimsókn þína, þ.m.t. tengla sem þú smellir á, til að opna og loka vefsvæði okkar eða Revolut -forritið (þ.m.t. dagsetningu og tíma), þjónustu sem þú skoðaðir eða leitaðir að, svörunartími síðna, villur í niðurhali, lengd heimsókna á tilteknar síður, upplýsingar um virkni á síðum (á borð við flettingu, smelli) og aðferðir sem notaðar eru til að fara af síðunni í vafra ✓ upplýsingar um færslur og notkun þína á Revolut vörum (t.d. greiðslur inn og út af Revolut -reikningnum þínum), þ.m.t. dagsetning, tími, upphæð, gjaldmiðlar, gengi, upplýsingar um viðtakanda, frekari upplýsingar um söluaðila eða hraðbanka sem tengjast færslunni (þ.m.t. staðsetningar söluaðila og hraðbanka), IP-tölu sendanda og viðtakanda, nafn sendanda og viðtakanda og skráningarupplýsingar, skilaboð sem eru send eða móttekin, frekari upplýsingar um tæki sem notuð eru til að ganga frá greiðslu og greiðslumátann sem notaður er. Þegar notar Revolut-kortið þitt til að bóka flug fáum við einnig upplýsingar um brottfarastað flugsins, áfangastað, flugfélag, farrými o.s.frv. ✓ gögn sem geymd eru í tækinu, eins og hvaða forrit þú notar og önnur lýsigögn um tækið þitt. Við kunnum einnig að safna upplýsingum af tengiliðalistanum þínum ef þú veitir okkur aðgang. Viðkomandi Revolut-forrit mun reglulega safna þessum upplýsingum til að halda öllu uppfærðu miðað við stillingar tækisins. ✓ atferlisfræðileg lífkennigögn (eins og hvernig þú flettir eða skrifar) og ítarstillingar tækisins (eins og tungumál, tímabelti og viðbætur) sem við notum til að greina hugsanleg svik |
Upplýsingar sem við leiðum af eða búum til um þig | Við búum til ný gögn um þig með því að greina upplýsingarnar sem við höfum nú þegar. Slíkt felur eftirfarandi í sér: ✓ notandasnið miðað við eyðsluhneigð og áhugasvið (í því skyni að sérsníða þjónustu og markaðssetningu okkar að þér) ✓ áhættustig (svo sem lánshæfiseinkunn eða áhættueinkunn fyrir svik) byggt á færsluferli þínum og frekari upplýsingum um forrit ✓ spár um væntanlega fjárhagsþarfir eða stöðu Frekari útskýringar á slíku er að finna í hlutunum hér á eftir:
|
Upplýsingar um staðsetningu þína | Þegar þú kveikir á staðsetningarþjónustu í viðeigandi Revolut-forriti getum við fylgst með staðsetningu þinni með því að nota GPS-tækni. |
Upplýsingar frá öðrum | Við söfnum persónuupplýsingum frá þriðju aðilum eða öðrum aðilum, svo sem lánshæfismatsstofnunum veitendum e-KYC, , fjármála- eða lánastofnunum, vefsvæðum með verðsamanburði, opinberum skrám og gagnagrunnum, sem og sameiginlegum reikningshöfum, stofnunum sem koma í veg fyrir svik, samstarfsaðilum sem aðstoða við að uppfylla kröfurrafmynta (þ.m.t. vegna eftirlits með ferðareglum), söluaðilum í geirum þar sem áhættan er meiri (eins og fjárhættuspil eða rafmynt), öðrum þriðju aðilum sem veita forvarnarþjónustu gegn svikum og samstarfsaðilum sem hjálpa okkur að veita þjónustu okkar. Slíkt felur í sér lánshæfismat þitt, upplýsingar um ytra rafmyntarveski og staðfestingu á eignarhaldi, skattauðkennisnúmer, upplýsingar um dráttarvexti, upplýsingar sem hjálpa okkur að staðfesta hver þú ert eða gjaldgengi þitt fyrir völdum Revolut vörum eða þjónustu, upplýsingar um maka þinn og fjölskyldu (ef slíkt á við í tengslum við umsókn þína um lánshæfismat), áhættustig vegna svika og upplýsingar sem tengjast færslum þínum. Þegar þú biður okkur um slíkt munum við einnig safna persónuupplýsingum þínum af reikningum sem þú átt hjá fjármálastofnunum þriðju aðila (t.d. þegar þú vilt stofna tengdan reikning með því að virkja opna bankaþjónustu í viðeigandi Revolut-forriti). Þegar þú sækir um lánaafurðir okkar kunnum við að nota slíkar upplýsingar við athuganir á lánshæfi. Endrum og sinnum kunna aðrir viðskiptavinir Revolut að veita okkur upplýsingar um þig. Viðskiptavinur Revolut kann t.d. að tilkynna okkur um óviðeigandi hegðun þína og leggja fram gögn því til sönnunar. |
Upplýsingar af samfélagsmiðlum | Við kunnum endrum og eins að nota opinberar upplýsingar um þig af völdum vefsvæðum samfélagsmiðla eða forrita til að: ✓ framkvæma ítarlegri áreiðanleikakannanir ✓ staðfesta hver þú ert fyrir kynningar (t.d. að samstilla við RevTag-nafnið þitt ef þú birtir það opinberlega) Einnig kunnum við að afla opinberra upplýsinga af vefsvæðum samfélagsmiðla eða forrita við almenna leit af þér (t.d. til að uppfylla eftirlitsskyldur okkar varðandi aðgerðir gegn peningaþvætti og refsiaðgerða). |
Upplýsingar frá opinberum heimildum | Við söfnum upplýsingum og samskiptaupplýsingum frá opinberum heimildum, svo sem fjölmiðlum, netskrám eða skrám og vefsíðum fyrir háþróaðar áreiðanleikakannanir, öryggisleitir og við mat okkar á viðskiptavinum. |
4. Hvaða lagagrundvöllur er fyrir notkun ykkar á persónuupplýsingunum mínum?
Lagagrundvöllur þarf að vera fyrir (gild lagaleg ástæða) notkun okkar á persónuupplýsingum þínum. Lagagrundvöllur okkar er einn af eftirfarandi:
- Standa við gerða samninga við þig
Við verðum að fá ákveðnar persónuupplýsingar til að veita þjónustu okkar og getum ekki veitt slíka þjónustu án slíkra upplýsinga.
- Lagaskylda
Í sumum tilvikum berum við lagalega ábyrgð á að safna og geyma persónuupplýsingar (við verðum t.d. að geyma tilteknar upplýsingar um viðskiptavini okkar samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti).
- Lögmætir hagsmunir
Í vissum tilvikum söfnum við og notum persónuupplýsingar þínar vegna þess að við höfum lögmæta ástæðu til þess og slíkt megi teljast réttmætt miðað við mannréttindi og frelsi þitt.
- Varða almannahagsmuni
Þegar við vinnum úr persónuupplýsingum eða viðkvæmum persónuupplýsingum þínum (stundum nefndar persónuupplýsingar í sérstökum flokki) samkvæmt opinberum reglum eða leiðbeiningum, eins og skyldu okkar að koma í veg fyrir svik eða aðstoða þig ef þú ert eða verður vanmegna viðskiptavinur.
- Grundvallarhagsmunir
Við gætum þurft að nota persónuupplýsingar þínar til að vernda líf þitt eða annarra einstaklinga (t.d. í neyðartilvikum eða ef áhyggjur vakna af hugsanlegum sjálfsskaða).
- Samþykki
Þegar þú hefur samþykkt söfnun og notkun okkar á persónuupplýsingum þínum, þ.m.t. viðkvæmum persónuupplýsingum, t.d. þegar þú hakar í reit og samþykkir að við notum persónuupplýsingar þínar á tiltekinn hátt.
Við útskýrum nánar hvernig við notum persónuupplýsingar þín í hlutanum Hvernig notið þið persónuupplýsingar mínar? hér að neðan.
Í hlutanum Hvernig notið þið persónuupplýsingarnar mínar? kemur nánar fram sá lagagrundvöllur sem mismunandi aðgerðir okkar hvíla á. Sérstakur lagagrundvöllur fyrir úrvinnslu persónuupplýsinga þinna, þ.m.t. viðkvæmra persónuupplýsinga, fer eftir staðbundnum reglugerðum og samhengi við gagnasöfnun. Þegar slíku er við komið munum við veita þér stutta útskýringu á persónuvernd þegar gagnasöfnun á sér stað, til að útskýra viðeigandi lagagrundvöll fyrir að safna saman og nota persónuupplýsingar þínar hverju sinni.
5. Hvernig notið þið persónuupplýsingar mínar?
Skoðaðu töfluna hér á eftir til að sjá hvernig við kunnum að nota persónuupplýsingar þínar og lagagrundvöll okkar fyrir slíkri notkun:
Við notum persónuupplýsingar þínar til að: | Lagagrundvöllur okkar fyrir notkun á persónuupplýsingum þínum |
Athuga og staðfesta hver þú ert Í hvert sinn sem þú skráir þig inn hjá Revolut notum við persónuupplýsingar þínar til að staðfesta deili á þér eða deili á sameiginlegum reikningseigendum (sem hluti af mati okkar á viðskiptavinum). Slíkt kann að fela í sér andlitskenni (kölluð „lífkenni“) eða raddupplýsingar, úr ljósmynd eða myndbandi sem þú lætur af hendi . Slíkt gerum við til að tryggja öryggi þitt og annarra viðskiptavina Revolut með því að:
Við munum einnig staðfesta hver þú ert í öðrum tilvikum (t.d. ef skilríki þín renna út og við þurfum að uppfæra skilríkin). Ef þú skráir nýtt tæki til að fá aðgang að Revolut-reikningnum þínum eða spjallar við þjónustuver þegar þú ert ekki innskráð(ur) verðum við einnig að staðfesta að þetta sért í raun og veru þú. Þú getur einnig fengið viðbótarvernd fyrir Revolut-reikninginn þinn með því að nota staðfestingu með lífkennum. Þú getur t.d. sett upp staðfestingu með lífkennum í hvert sinn sem þú tekur út Revolut sparnað eða af rafmyntarreikningum. |
|
Til að veita þjónustuna okkar Í hvert sinn sem þú sækir um eða notar Revolut vöru eða þjónustu munum við nota persónuupplýsingarnar þínar til að: ákveða hvort skuli samþykkja umsókn þína eða ekki uppfylla samningsbundnar og lagalegar skyldur okkar varðandi allar vörur eða þjónustu sem þú notar (til dæmis að leggja inn og taka út af Revolut-reikningnum þínum, taka út reiðufé eða greiða með Revolut-kortinu þínu) virkja alla greiðslutengla Revolut-reikningsins þíns (þ.m.t. að vinna úr persónuupplýsingum viðskiptavina sem eru ekki í viðskiptum hjá Revolut) til að greiða fyrir innlögnum eða úttektum á reikningnum. staðfesta ávísanir greiðanda (þ.e. staðfesta nafn viðtakanda greiðanda) til að ganga úr skugga um að greiðslur berist réttum einstaklingi aðstoða þig við að skilja eyðsluhneigð þína, hvernig þú notar vörur og þjónustu Revolut og veita þér aðstoð við peningasparnað (t.d. veita þér innsýn í vörunotkun og eyðslu) bjóða þér upp á þjónustuver. Við kunnum að skrá niður og viðhafa eftirlit með öllum samskiptum milli þín og okkar, þ.m.t. símtölum, halda viðeigandi skrár, athuga fyrirmæli þín, greina, meta og bæta þjónustu okkar og til þjálfunar og gæðastjórnunar |
|
Vörn gegn svikum Við notum persónuupplýsingar þínar til að athuga heimilisfang þitt og staðfesta hver þú ert, vernda þig gegn svikum, fylgja gildandi lögum um fjármálaglæpi og til að staðfesta að þú uppfyllir skilyrði til að nota þjónustu okkar. Við notum einnig persónuupplýsingar þínar til að öðlast betri skilning á fjárhagsaðstæðum þínum og stjórna áhættu vegna svika í tengslum við Revolut-rerikninginn þinn. Helsta markmið okkar er ávallt að vernda viðskiptavini okkar gegn svikum. Okkur er ekki kleift að deila öllum upplýsingum um hvernig við komum í veg fyrir svik. Slíkt er gert til að ráðstafanir okkar gegn svikum verði áfram skilvirkar. Við munum þó alltaf veita þér almennar upplýsingar um viðleitni okkar til að tryggja öryggi þitt. |
|
Markaðssetning og útvegun vöru og þjónustu sem þú kannt að hafa áhuga á Við noptum persónuupplýsingarnar þínar til að gera eftirfarandi: sérsníða upplifun þína í forritinu og senda þér markaðsefni um vörur og þjónustu okkar sem á betur við og er áhugavert fyrir þig (þar sem slíkt er heimilt með lögum). Slíkt kann að fela í sér greiningu á því hvernig þú notar vörur okkar, þjónustu og viðskipti ef þú samþykkir slíkt, að veita þér upplýsingar um kynningar eða tilboð samtarfsaðila okkar sem við teljum að þú hafir áhuga á ef þú samþykkir slíkt, að leyfa samstarfsaðilum okkar og öðrum fyrirtækjum að veita þér upplýsingar um vörur sínar eða þjónustu spyrja þig álits á vörum okkar eða þjónustu. Við kunnum að birta umsögnina þína en munum ganga úr skugga um að ekki sé hægt að auðkenna þig. Hafðu í huga að þú getur afpantað markaðsefni með því að breyta valkostum markaðssetningar (í hlutanum Hvernig notið þið persónuupplýsingar mínar við markaðssetningu? eru frekari upplýsingar um þetta). |
|
Til að halda þjónustu okkar gangandi Við notum persónuupplýsingar þínar til að stjórna vefsvæði og forritum okkar (þ.m.t. við bilanagreiningu, gagnagreiningu, prófanir, rannsóknir, í tölfræðilegum tilgangi og til að framkvæma kannanir) og til að ganga úr skugga um að efnið birtist þér í tækinu þínu á skilvirkan hátt. Við munum einnig nota persónuupplýsingar þínar til að:
|
|
Aðstoð við félagsleg samskipti Við notum persónuupplýsingar þínar til að bæta félagsleg samskipti í þjónustu okkar eða bæta við frekari eiginleikum til að bæta upplifunina. Að fengnu leyfi þínu getum við t.d. notað tengiliðalistann í símanum þínum til að auðvelda þér að greiða eða senda skilaboð til tengiliða þinna með viðeigandi Revolut-forriti. Við notum einnig þessi gögn til að greina hvort tengiliðir þínir noti greiðslukerfi þriðju aðila sem Revolut er aðili að, til að þú getir innt af hendi greiðslur með jafningjafjarskiptum. |
|
Veita þjónustu miðað við staðsetningu Þegar þú kveikir á staðsetningarþjónustu í viðeigandi Revolut-forriti, munum við nota persónuupplýsingarnar þínar til að:
|
|
Undirbúningur nafnlausra tölfræðigagna Við útbúum nafnlaus tölfræðileg gagnasöfn um útgjaldamynstur viðskiptavina okkar:
Slíkum gagnasöfnum kann að vera deilt innan fyrirtækisins eða utan fyrirtækisins með öðrum, þ.m.t. öðrum fyrirtækjum en Revolut. Við vinnum slíkar skýrslur með því að nota upplýsingar um þig og aðra viðskiptavini. Upplýsingar sem eru notaðar og er deilt á þennan máta eru aldrei persónuupplýsingar og er á engan hátt hægt að rekja til þín. Nafnlaus tölfræðigögn er ekki hægt að rekja til þín sem einstaklings. Í sumum löndum gilda t.d. lög sem krefjast þess að við tilkynnum tölfræði um útgjöld og hvernig fjármunir berast og fara út úr hverju landi fyrir sig. Við veitum nafnlausar tölfræðilegar upplýsingar um fjölda flokka söluaðila sem viðskiptavinir Revolut eyða fjármunum sínum hjá. Við veitum einnig upplýsingar um hvernig viðskiptavinir Revolut leggja inn á reikninga sína og millifæra fjármuni. Við munum hins vegar ekki láta af hendi upplýsingar um viðskiptavini. Ekki verður hægt að bera kennsl á einstaka viðskiptavini Revolut. |
|
Til að bæta vefsíður okkar, vörur og þjónustu Við notum persónuupplýsingar þínar á eftirfarandi hátt:
Slíkt gerir okkur kleift að bjóða áfram vörur og þjónustu sem viðskiptavinir okkar vilja sjá. |
|
Uppfylla lagalegar skyldur okkar, nýta rétt okkar, vernda viðskipti okkar og aðra löglega notkun Við noptum persónuupplýsingar um þig:
Frekari upplýsingar er að finna í hlutanum Deilið þið persónuupplýsingum mínum með öðrum? hér á eftir. Í einstaka tilvikum ber okkur lagaleg skylda til að biðja þig um að veita upplýsingar um annað fólk. Við kunnum t.d. að biðja þig um útskýringu á eftirfarandi:
|
|
Sýna skilning ef þú þarft á frekari aðstoð að halda Við notum persónuupplýsingarnar þínar til að greina hvort þú þurfir á frekari aðstoð að halda. Þú getur beðið okkur um aðstoð eða við kunnum að greina hegðun þína í viðeigandi Revolut-forriti, spjalli við þjónustuver og færslur. Við reynum t.d. að koma auga á merki um viðkvæma stöðu svo að við getum veitt betri aðstoð. Í tilteknum löndum ber okkur lagaleg skylda til að eiga frumkvæði að því að auðkenna og veita vanmegna viðskiptavinum aðstoð. |
|
6. Takið þið sjálfvirkar ákvarðanir um mig?
Við kunnum að taka sjálfvirkar ákvarðanir um þig, allt eftir því hvaða Revolut vörur eða þjónustu þú notar. Slíkar ákvarðanir kunna að vera teknar með gervigreind án þess að nokkur starfsmaður komi þar nærri.
Við kunnum einnig að nota tækni til að meta persónulegar kringumaðstæður þínar og aðra þætti til að spá fyrir um áhættu eða niðurstöður. Slíkt er stundum kallað sérsnið. Markmiðið er skilvirkur rekstur þjónustu okkar og tryggja að ákvarðanir séu sanngjarnar, samkvæmar, og séu byggðar á réttum upplýsingum.
Þegar sjálfvirk ákvörðun er tekin eða snið er búið til um þig sem hefur umtalsverð áhrif á þig, áttu rétt á að biðja um handvirka yfirferð starfsmanns á slíkri ákvörðun. Þú getur einnig sagt skoðun þína og andmælt niðurstöðunni. Frekari upplýsingar er að finna í hlutanum Hver er réttur minn? hér á eftir.
Við kunnum t.d. að taka sjálfvirkar ákvarðanir um þig varðandi eftirfarandi:
Ákvarða lánshæfi:
- meta hvort þú uppfyllir skilyrði fyrir lánaafurð
Samþykkja lánaumsóknir:
- athugun á lánshæfi og viðráðanlegu verði til að kanna hvort okkur sé kleift að samþykkja lánaumsókn þína
- setja lánamörk
Eftirlit með lánssamningum:
- leggja mat á hvernig þú endurgreiðir lánaafurð frá okkur
- breyta lánamörkum þínum
- rifta lánssamningnum þínum
Stofnun reikninga:
- mat á viðskiptavinum, eftirlit með peningaþvætti og eftirlit með refsiaðgerðum
- athuganir á auðkenni og heimilisfangi
Greina svik:
- eftirlit með Revolut-reikningnum þínum til að greina svik og fjárhagsglæpi
Setja takmarkanir á eða loka reikningum:
- ákvarða, eða aðstoða við ákvarðanir um að læsa, takmarka eða loka Revolut-reikningnum þínum ef upp kemst um svik, fjárhagsglæpi eða brot á skilmálum persónuverndaryfirlýsingarinnar (eða öðrum viðeigandi skilmálum)
Lagalegur grundvöllur okkar er einn eða fleiri af eftirfarandi:
- standa við samninga og samkomulög á milli okkar og þín
- lagaskylda
- lögmætir hagsmunir (til að þróa og bæta aðgerðir okkar gegn fjármálaglæpum og uppfylla lagalegar skyldur okkar)
samþykki (þegar við verðum að fá samþykki þitt samkvæmt gildandi lögum)
7. Látið þið meta lánshæfi mitt?
Við og útlánasamstarfsaðilar okkar látum lánshæfismatsstofnanir (eða aðra lánshæfisveitendur í tilteknum löndum) framkvæma lánshæfismat þegar þú sækir um (eða segir okkur að þú viljir sækja um) lánaafurð hjá Revolut.
Í tilvikum þegar þú veitir okkur aðgang að öðrum reikningum sem þú átt hjá öðrum fjármálastofnunum í gegnum opna bankaþjónustu, munum við með þín samþykki nota tiltækar upplýsingar til að framkvæma lánshæfismat á þér.
Við notum einnig okkar eigin innri líkön til að meta umsóknina þína. Slík líkön vinna úr stöðluðum upplýsingum frá fjármála- og lánshæfismatsstofnunum. Slíkir aðilar kunna einnig að vinna úr viðbótarupplýsingum á eins og notandasniði, tæki, gögn um notkun á forriti og gögn um tengingar þínar á Revolut (sem við notum til að koma í veg fyrir svik).
Við deilum einnig persónuupplýsingum þínum með lánshæfismatsstofnunum (eða öðrum aðilum sem veita upplýsingar um lánshæfi) til að:
- staðfesta upplýsingar sem þú lést í té þegar þú sóttir um vörur og þjónustu
- gera úttekt á því hvort samþykkja skuli lánsumsókn þína
- ákvarða viðeigandi lánamörk fyrir þig
Ef umsókn þinni er hafnað, munum halda eftir umsóknargögnunum í því skyni að koma í veg fyrir svik.
Þegar þú gerir lánssamning við okkur, kunnum við að halda áfram að deila upplýsingum með lánshæfismatsstofnunum eða öðrum aðilum sem veita upplýsingar um lánshæfi (t.d. upplýsingum um endurgreiðslur þínar og hvort þú getir greitt að fullu eða á réttum tíma).
Þar að auki, þegar slíkt er leyfilegt samkvæmt gildandi lögum á hverjum stað, kunnum við að framkvæma frekara lánshæfismat á þér endrum og sinnum, til að ganga úr skugga um að fjárhagsstaða þín hafi ekki breyst. Í sumum tilvikum kunnum við að nota þessar upplýsingar til að bjóða þér aðrar lánaafurðir eða betri skilmála (t.d. að hækka lánamörk). Við kunnum að hafa samband við þig beint þegar þú sækir um lánaafurð ef þú ert vanmegna viðskiptavinur. Við gerum slíkt til að hægt sé að láta þér í té viðeigandi lánaafurð.
Persónuupplýsingarnar sem við deilum með og tökum við frá lánshæfismatsstofnunum (eða öðrum aðilum sem veita upplýsingar um lánshæfi) þegar þú sækir um eða notar Revolut-lánaafurð eru breytilegar eftir dvalarlandi þínu. Við veitum ítarlegar upplýsingar þegar þú sækir um Revolut-lánaafurð.
Frekari upplýsingar um lánshæfismatsstofnanir sem við notum í hverju landi fyrir sig er að finna á þessari síðu.
Lagalegur grundvöllur okkar er einn eða fleiri af eftirfarandi:
- lögmætir hagsmunir (til að meta hvort þú uppfyllir skilyrði fyrir lánaafurð og ganga úr skugga um að slík afurð henti þér)
- samþykki (þegar við verðum að fá samþykki þitt samkvæmt gildandi lögum)
- lagaskylda
- virða gerða samninga og samkomulög á milli þín og okkar (þegar þú færð lánaafurð frá okkur)
8. Hvernig notið þið persónuupplýsingar mínar til markaðssetningar?
Þegar þú skráir þig fyrir þjónustu okkar og gildandi lög á hverjum stað leyfa slíkt, gerum við ráð fyrir að þú samþykkir að fá sendar upplýsingar um Revolut vörur, þjónustu, tilboð og kynningar með bréfapósti, tilkynningum í síma, tölvupósti, símtölum og textaskilaboðum. Við munum biðjaum samþykki þitt fyrst áður en við sendum þér markaðsefni ef gildandi lög á hverjum stað gera kröfum um slíkt.
Við notum persónuupplýsingar þínar til að sérsníða efni markaðssetningar um vörur og þjónustu okkar til að slíkt efni eigi meira við og sé áhugavert fyrir þig (þegar slíkt er heimilað samkvæmt lögum). Slíkt kann að fela í sér greiningu á því hvernig þú notar þjónustu okkar og færslum þínum. Við kunnum að nota nýja gervigreindartækni til að hjálpa okkur að velja og sérsníða það efni sem hentar þér best.
Þú getur andmælt sérstillingum með beinni markaðssetningu. Þú getur einnig breytt kjörstillingunum þínum eða tilkynnt okkur að þú viljir ekki beina markaðssetningu af neinum toga. Notaðu persónuverndarstillingar viðeigandi Revolut-forrits eða ýttu á tenglana í skilaboðum markaðssetningar sem við sendum þér til að segja upp áskrift og við hættum að hafa samband.
Þegar þú vilt ekki fá sérsniðin markaðsskilaboð og afþakkar slík skilaboð færðu enga beina markaðssetningu af neinum toga. Hins vegar kunnum við að senda þér almennar upplýsingar um vörur og þjónustu okkar í forritunum.
Við deilum ekki persónuupplýsingum þínum með fyrirtækjum utan Revolut-samstæðunnar til markaðssetningar slíkra fyrirtækja nema með fengnu samþykki þínu. Frekari upplýsingar er að finna í hlutanum Deilið þið persónuupplýsingum mínum með öðrum? hér á eftir.
Lagagrundvöllur okkar er eftirfarandi:
- samþykki (þegar við verðum að fá samþykki þitt samkvæmt gildandi lögum)
- lögmætir hagsmunir (að senda þér markaðsefni og veita þér upplýsingar samkvæmt áhugasviðum þínum)
9. Hver eru réttindi þín?
Réttindi þín | Hvað þetta merkir |
Þú hefur rétt á að vita hvernig við notum persónuupplýsingar þínar | Við útskýrum hvernig við notum persónuupplýsingar þínar í: ✓ þessari persónuverndaryfirlýsingu ✓ einstaka tilkynningum sem við kunnum að senda um tilteknar vörur og ferli ✓ með „tímabærum“ tilkynningum í forritum |
Þú hefur rétt á að biðja okkur um afrit af persónuupplýsingum þínum | Við látum þér í té afrit af persónuupplýsingum þínum sem eru í okkar vörslu ef þú óskar eftir því. Við getum ekki látið þér í té persónuupplýsingar annarra einstaklinga, persónuupplýsingar sem tengjast yfirstandandi rannsókn sakamála eða svika eða persónuupplýsingar sem tengjast uppgjöri samninga við þig. Við látum þér heldur ekki í té nein samskipti sem við höfum átt við lögfræðiráðgjafa okkar. |
Þú getur beðið okkur um að leiðrétta persónuupplýsingarnar þínar ef þú telur að þær séu rangar | Þú getur látið leiðrétta ófullgerðar eða ónákvæmar persónuupplýsingar. Áður en við uppfærum skrána þína verðum við hugsanlega að athuga nákvæmni nýju persónuupplýsinganna sem þú lést í té. |
Þú getur beðið okkur um að eyða persónuupplýsingum þínum. | Þú getur beðið okkur um að eyða persónuupplýsingum þínum ef: ✓ engin gild ástæða er fyrir áframhaldandi notkun okkar ✓ þú samþykktir notkun okkar (og veittir leyfi fyrir henni) á persónuupplýsingum þínum og hefur afturkallað slíkt samþykki ✓ þú hefur andmælt notkun okkar á persónuupplýsingum þínum ✓ við höfum notað persónuupplýsingar þínar ólöglega ✓ samkvæmt gildandi lögum verðum við að eyða persónuupplýsingum þínum Við vildum láta þig vita að hugsanlega getum við ekki samþykkt beiðnina þína. Við erum eftirlitsskyldur aðili á sviði fjármálaþjónustu og því ber okkur ekki að halda eftir tilteknum persónuupplýsingum viðskiptavina þrátt fyrir að viðskiptavinir leggi fram beiðni um að eyða slíkum upplýsingum (þetta er útskýrt frekar hér að neðan). Ef þú hefur lokað Revolut-reikningnum þínum getum við hugsanlega ekki eytt allri skránni þinni vegna þess að áðurnefndar reglur hafa forgang. Við munum senda þér tilkynningu ef okkur tekst ekki að eyða persónuupplýsingum þínum. |
Þú getur andmælt því að við vinnum úr persónuupplýsingum þínum í markaðsskyni | Þú getur beðið okkur um að hætta að nota persónuupplýsingar þínar, þ.m.t. að búa til persónusnið við markaðssetningu. |
Þú getur andmælt því að við vinnum úr frekari persónuupplýsingum (ef lögmætir hagsmunir okkar liggja á bak við slíka notkun) | Þú getur andmælt því að lagagrundvöllur okkar fyrir notkun á persónuupplýsingum þínum séu „lögmætir hagsmunir“ ef þú ert ósammála slíkri notkun persónuupplýsinga. Hins vegar, ef brýn ástæða er að baki notkun persónuupplýsingar þinna munum við ekki samþykkja beiðni þína. Þegar þú andmælir notkun okkar á persónuuupplýsingum sem eru nauðsynlegar til að veita þjónustu okkar, kunnum við að loka reikningnum þínum vegna þess að við getum ekki veitt þjónustuna. |
Þú getur beðið okkur um að takmarka notkun okkar á persónuupplýsingum þínum. | Þú getur beðið okkur um að hætta notkun persónuupplýsinga þinna ef: ✓ þú vilt að við skoðum nákvæmni slíkra upplýsinga ✓ notkun okkar á persónuupplýsingum þínum er ólögmæt en þú vilt ekki að við eyðum upplýsingunum ✓ við höfum ekki lengur þörf fyrir persónuupplýsingar þínar en þú vilt að við geymum upplýsingarnar fyrir þig í tengslum við réttarkröfu ✓ þú hefur andmælt notkun okkar á persónuupplýsingum þínum (sjá hér á undan) en við verðum að athuga hvort brýn þörf liggi að baki notkun okkar á slíkum persónuupplýsingum |
Þú getur beðið um flutning persónuupplýsinga til þín eða annars fyrirtækis | Þegar okkur er kleift og heimilt að gera slíkt samkvæmt gildandi lögum, munum við láta þér í té persónuupplýsingar á skipulegu, aðgengilegu og tölvulæsilegu sniði. |
Þú getur afturkallað leyfi þitt | Eftir að þú hefur veitt okkur áskilda heimild til að nota persónuupplýsingar þínar, áttu kost á að afturkalla slíka heimild hvenær sem er (t.d. með því að breyta persónuverndarstillingum í viðeigandi Revolut-forriti eða senda tölvupóst á dpo@revolut.com). (Athugaðu að okkur er lagalega séð heimilað að nota persónuupplýsingar þínar þar til þú dregur heimildina til baka). |
Þú getur beðið okkur um handvirka endurskoðun ákvörðunar í stað sjálfvirkrar endurskoðunar | Þú getur beðið okkur um að endurskoða þessa ákvörðun handvirkt ef við tökum sjálfvirka ákvörðun sem hefur umtalsverð áhrif á þig. |
Möguleikar þínir til að nýta slíkan rétt eru háðir nokkrum þáttum. Í vissum tilvikum getum við ekki samþykkt beiðni þína (t.d. þegar við höfum lögmæta ástæðu til að verða ekki við slíkri beiðni eða slíkur réttur á ekki við um upplýsingarnar sem við höfum um þig).
10. Hvernig nýti ég rétt minn?
Þú getur nýtt rétt þinn samkvæmt hlutanum hér á undan með því að senda tölvupóst á dpo@revolut.com.
Af öryggisástæðum getum við ekki orðið við beiðni þinni ef vafi leikur á um hver þú ert, þannig að við kunnum að biðja þig um skilríki til sönnunar.
Þegar þriðji aðili nýtir slíkan rétt fyrir þína hönd, kunnum við að fara fram á sönnun þess að slíkur aðili hafi heimild til að koma fram fyrir þína hönd.
Þegar þú nýtir þér rétt þinn eða uppfærir persónuverndarstillingar í Revolut-forritinu, kann að líða allt að einn mánuður þar til við svörum eða innleiðum breytingarnar þínar.
Revolut innheimtir yfirleitt ekki gjald þegar þú nýtir réttindi þín. Hins vegar er okkur heimilt, lögum samkvæmt, að innheimta sanngjarnt gjald eða neita að verða við beiðni þinni ef slík beiðni er ekki á rökum reist eða er úr hófi fram.
Í tilvikum þegar þú ert ekki sátt(ur) við meðhöndlun okkar á beiðni þinni, áttu kost á að senda kvörtun til gagnaverndaryfirvalda á hverjum stað. Innan Evrópska efnahagssvæðisins er gagnaverndaryfirvald okkar yfir landamæri Litháíska persónuverndarstofnunin (vefsvæði).
11. Deilið þið persónuupplýsingum mínum með öðrum?
Fyrirtæki í Revolut-samstæðunni
Við deilum persónuupplýsingum þínum innan Revolut fyrirtækjasamstæðunnar í eftirfarandi skyni:
- bjóða þér upp á úrvalsþjónustu
- vernda þig, aðra viðskiptavini og kerfi okkar gegn svikum eða skaðlegri hegðun
- auðvelda þér að skrá þig hratt og örugglega til að nota aðrar Revolut vörur eða þjónustu
- bæta núverandi eða þróa nýjar vörur eða þjónustu
- senda þér upplýsingar um vörur og þjónustu Revolut sem við teljum að þú kunnir að hafa áhuga á
Aðrir viðskiptavinir Revolut
Við biðjum þig um leyfi til að samstilla tengiliði í farsímanum þínum. Slíkt hjálpar þér við að greina hver af traustum tengiliðum í snjallsímanum þínum séu viðskiptavinir Revolut. Einnig geta „traustir tengiliðir“ þínir séð hvort þú sért viðskiptavinur Revolut með leitareiginleikanum í forritinu okkar.
Leitareiginleikinn í forritinu veitir þér aðgang að eiginleikum Revolut eins og að biðja vini um peninga, skipta niður reikningum, hópsparnað, greiða öðrum viðskiptavinum Revolut eða spjall við „trausta tengiliði“.
Við gerum tæknilegar öryggisráðstafanir til að ganga úr skugga um að „traustur tengiliður“ sé aðili sem þú þekkir nú þegar og sem þekkir þig (þú og slíkur aðili eruð í tengiliðalista hvors annars eða hafið þegar tekið við greiðslu eða gengið frá greiðslu í með jafningjafjarskiptum).
Þú og trausti tengiliðurinn verðið að samstilla tengiliðalistana í snjallsímunum ykkar við Revolut til að geta séð hvorn annan í viðeigandi Revolut-forriti.
Þegar þú hefur samstillt tengiliðina í snjallsímanum þínum birtum við traustum tengiliðum sem eru þegar viðskiptavinir Revolut grunnupplýsingar um þig í viðeigandi Revolut-forriti (t.d. nafn þitt (eins og það er vistað á tengiliðalista vina þinna), farsímanúmer, Revtag, Revolut-áskriftarleið og notandamynd á Revolut (ef til staðar)).
Þú getur að sjálfsögðu hætt við að samstilla tengiliðalistann þinn við Revolut. Slíkt þýðir að þú getur ekki séð hverjir af tengiliðum þínum í farsímanum séu viðskiptavinir Revolut.
Þú getur einnig breytt leitarstillingunum í persónuverndarstillingum viðeigandi Revolut-forrits.
Aðrir viðskiptavinir Revolut geta leitað að þér í gegnum viðeigandi Revolut-forriti með því að nota Revtag. Þegar viðskiptavinir slá inn Revtag-merkið þitt geta þeir séð nafnið þitt og notandamyndina (ef til staðar). Þú getur lokað fyrir að Revtag þitt komi fram við leit með því að breyta persónuverndarstillingum í viðeigandi Revolut-forriti.
Þegar þú sendir RevPoint til annarra viðskiptavina Revolut, munum við deila með þeim frekari upplýsingum um þig (eins og nafni þínu) til að slíkir viðskiptavinir viti frá hverjum millifærslan er.
Einstaklingar eða fyrirtæki sem þú millifærir peninga til
Þegar þú greiðir með Revolut-reikningnum þínum munum við senda viðtakanda upplýsingar um þig og greiðsluna (t.d. nafn þitt og IBAN-númer). Slíkt er gert vegna þess að okkur ber lagaleg skylda sem greiðslustofnun að innifela tilteknar upplýsingar með greiðslum.
Einstaklingar eða fyrirtæki sem millifæra peninga á þig
Þegar þú færð greitt inn á Revolut-reikninginn þinn sendum við greiðanda upplýsingar um þig (t.d. nafn þitt og IBAN-númerið). Slíkt er nauðsynlegt til að staðfesta að greiðslan hafi verið lögð inn á réttan reikning.
Birgjar
Á töflunni hér að neðan sést með hvaða birgjum við deilum yfirleitt persónuupplýsingum þínum:
Gerð birgja | Af hverju við deilum persónuupplýsingunum þínum |
Birgjar sem veita okkur upplýsingatækni, gervigreind, greiðslu- og afhendingarþjónustu | Til að hjálpa okkur að veita þér þjónustu okkar |
Samstarfsaðilar okkar á sviði banka- og fjármálaþjónustu og greiðslunet, þ.m.t. Visa og Mastercard | Til að hjálpa okkur að veita þér þjónustu okkar. Þar á meðal eru samstarfsaðilar banka og útlána, milliliðir banka og alþjóðlegar greiðslumiðlanir. Einkum deilum við persónuupplýsingum þínum (þ.m.t. nafni þínu, tengiliðaupplýsingum og kortaupplýsingum) með f Visa og Mastercard svo að þú getir notað þjónustuna „Click to Pay“. Frekari upplýsingar er að finna í: Persónuverndaryfirlýsing fyrir Mastercard Click to Pay (fyrir korthafa Mastercard) Persónuverndaryfirlýsing okkar fyrir Click to Pay (Visa) (fyrir korthafa Visa) |
Sannprófun auðkennis og þjónustuveitendur sem veita mat á viðskiptavinum | Hjálpa okkur við að staðfesta hver þú ert til að geta veitt þér þjónustu |
Kortaframleiðsla, sérstillingar og flutningsfyrirtæki | Í því skyni að búa til og afhenda þér sérsniðna Revolut-kortið þitt |
Greiningaraðilar og leitarþjónustuveitur | Til að hjálpa okkur að bæta vefsvæði okkar eða forrit |
Þjónustuveitendur, eftirlitsveitendur og þróunaraðilar | Til að hjálpa okkur að veita þér þjónustu okkar |
Veitendur fjarskiptaþjónustu | Til að hjálpa okkur við að senda þér tölvupóst, tilkynningar og textaskilaboð í síma |
Skuldheimtufyrirtæki | Stjórna og innheimta skuldir sem þú kannt að hafa eða stofna til (þ.m.t. ef þú hefur fengið Revolut-lánaafurð) |
Samstarfsaðilar sem aðstoða við að veita þjónustu okkar
Við kunnum að deila persónuupplýsingum þínum með samstarfsaðilum okkar í eftirfarandi skyni:
- veita tiltekna þjónustu sem þú hefur beðið okkur um (t.d. tryggingu sem við bjóðum sem hluta af áskriftarleiðum okkar)
- aðstoða þig ef þú vilt koma á framfæri spurningu eða kvörtun varðandi veitta vöru eða þjónustu
- ganga úr skugga um að þú eða samstarfsaðili okkar hljóti öll verðlaun sem lofað hefur verið (t.d. ef þú gengur frá kaupum hjá samstarfsaðila munum við deila takmörkuðum upplýsingum um þig til að ganga úr skugga um að þú fáir rétta endurgreiðslu og/eða að samstarfsaðilinn fái greidda umsamda þóknun)
- prófa hvort ný vara eða samstarf sé raunhæft (við deilum aðeins takmörkuðum gögnum í stuttan tíma við slíkar prófanir)
- heimila skattaívilnanir þegar þú notar eiginleika okkar fyrir styrki við góðgerðastarfsemi (við kunnum að deila persónuupplýsingum með skráðum góðgerðarsamtökum í þessu skyni)
- gera mælingar á afköstum auglýsinga slíkra aðila (við deilum gögnum sem auðkenna þig ekki á beinan hátt með verslunum og söluaðilum RevPoints í þessu skyni)
Við kunnum endrum og sinnum ásamt öðrum samstarfsaðilum að bjóða þér sameinaða þjónustu eða kynningartilboð og við munum deila hluta af persónuupplýsingum þínum með slíkum samstarfsaðilum. Við munum ávallt útskýra frekar hvernig við og samstarfsaðilar okkar vinna úr persónuupplýsingum þínum í áðurnefndum tilgangi.
Byrjaðu að nota RevPoints og við munum útvega þér sérsniðin tilboð frá vörumerkjum þriðja aðila í-forritinu. Frekari upplýsingar um RevPoints er að finna í persónuverndaryfirlýsingu okkar.
Lánshæfismatsstofnanir
Líkt og tilgreint er í hlutanum Látið þið meta lánshæfi mitt? hér á undan, munum við deila persónu-upplýsingum þínum með lánshæfisstofnunum ef þú sækir um lánaafurð hjá okkur, til að athuga hvort þú sért fær um að greiða afborganir á gjalddaga.
Aðrar fjármálastofnanir og viðskiptavinir Revolut
Við kunnum að deila persónuupplýsingum þínum með öðrum fjármálastofnunum eða viðskiptavinum Revolut ef þú biður um slíkt. Þegar þú hefur t.d. virkjað opin bankaviðskipti á reikningi þínum hjá annarri lánastofnun og veitt heimild fyrir slíku, munum við deila gögnum af Revolut-reikningnum þínum (eins og innistæðu, greiðslufærslum, reikningsnúmeri, bankanúmeri og tengiliðaupplýsingum) með umræddri fjármálastofnun.
Við kunnum einnig að deila persónuupplýsingum þínum með öðrum fjármálastofnunum eða viðskiptavinum Revolut þegar þú biður okkur ekki um slíkt. Þegar t.d. greiðsla er lögð inn á Revolut-reikninginn þinn fyrir slysni, kunnum við að deila upplýsingum þínum með viðkomandi fjármálastofnun eða viðskiptavini Revolut þaðan sem greiðslan barst. Slíkt hjálpar greiðanda og hinni fjármálastofnunni við að heimta greiðsluna.
Sameiginlegir reikningshafar
Þegar þú ert með sameiginlegan reikning hjá okkur munum við deila reiknings- og færsluupplýsingum með sameiginlegum reikningshöfum. Sá eða sú sem á reikninginn með þér mun t.d. geta séð allar færslur sem þú framkvæmir á sameiginlega reikningnum.
Aðrir þriðju aðilar
Við kunnum að deila persónuupplýsingum þínum með öðrum þriðja aðila þegar nauðsynlegt er að:
- auðvelda þér að taka við greiðslum inn á Revolut-reikninginn þinn
- vinna úr kvörtun sem þú lagðir fram (t.d. deila gögnum með söluaðila varðandi ágreining um greiðslu)
Af lagalegum ástæðum
Við deilum einnig persónuupplýsingum þínum með öðrum fjármálastofnunum, fjármálaþjónustufyrirtækjum, vátryggingafélögum, stjórnvöldum, löggæsluyfirvöldum, neyðarþjónustu, skattyfirvöldum, fyrirtækjum og stofnunum sem koma í veg fyrir svik, í því skyni að athuga hver þú ert, rannsaka eða veita vernd gegn ætluðum svikum, fylgja skattalögum, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti eða öllum öðrum lögum og staðfesta að þú uppfyllir skilyrði til að nota vörur okkar og þjónustu.
Revolut eða önnur fyrirtæki kunna að neita þér um þjónustu ef svik koma í ljós.
Hugsanlega verðum við að deila persónuupplýsingum þínum með öðrum stofnunum eða yfirvöldum þriðja aðila:
- ef okkur er skylt að gera slíkt samkvæmt gildandi lögum eða reglugerðum
- ef við seljum fyrirtæki eða verðbréfasafn okkar
- í tengslum við rannsóknir á glæpum eða svikum
- til að framfylgja réttindum okkar (og réttindum viðskiptavina eða annarra)
- í tengslum við réttarkröfur
- til að vernda grundvallarhagsmuni þína eða annarrar manneskju (t.d. í neyðartilvikum)
Samfélagsmiðla- og auglýsingafyrirtæki
Þegar við notum samfélagsmiðla til markaðssetningar, kunnum við að deila persónuupplýsingum þínum (takmarkast við nafn þitt, netfang og aðgerðir í forritinu) með viðkomandi samfélagsmiðlum til að hægt sé að sjá hvort þú eigir reikning hjá viðkomandi samfélagsmiðlum. Þegar þú samþykkir slíkt kunnum við að biðja samfélagsmiðilinn um að:
- hjálpa okkur að öðlast skilning á og mæla skilvirkni auglýsinga okkar á netinu
- nota persónuupplýsingar þínar til að birta þér auglýsingar, vegna þess að við teljum að þú hafir áhuga á nýjum Revolut vörum eða þjónustu
- ekki birta þér auglýsingar okkar, vegna þess að markaðssetningin tengist þjónustu sem þú notar nú þegar
- birta einstaklingum auglýsingar okkar sem hafa svipað notandasnið og þú (t.d. kann tiltekin þjónusta okkar að henta einstaklingum með sömu áhugasvið og þú hefur á notandasniði samfélagsmiðla og við kunnum að biðja samstarfsaðila okkar fyrir auglýsingar eða samfélagsmiðla að birta slíku fólki einnig auglýsingar okkar á áðurnefndri þjónustu)
Við kunnum t.d að markaðsetja okkur á samfélagsmiðlum með verkfæri sem kallast „sérsniðnir markhópar“ á Facebook. Kynntu þér skilmálana betur.
Við kunnum að deila persónuupplýsingum þínum með auglýsingasamstarfsaðilum okkar á þann hátt sem lýst er hér á undan, en við tætum persónuupplýsingarnar áður en við sendum þær og auglýsingasamstarfsaðilar okkar sem við deilum slíkum upplýsingum með er eingöngu heimilt að nota slíkar tættar upplýsingar á máta sem lýst er hér á undan.
Lagagrundvöllur okkar er eftirfarandi:
- lögmætir hagsmunir (til að tryggja að auglýsingar Revolut skili eins miklum árangri og mögulegt er)
Þú getur haft samband við okkur hvenær sem er á dpo@revolut.com ef þú vilt ekki að við deilum persónuupplýsingum þínum í auglýsingaskyni. Þú getur einnig opnað persónuverndarstillingarnar í viðeigandi Revolut-forriti og afþakkað deilingu persónuupplýsinga á þennan hátt.
Hafðu í huga að þú getur einnig stjórnað kjörstillingum beinnar markaðssetningar á reikningum sem þú kannt að hafa á samfélagsmiðlum.
Þegar þú biður okkur um að deila persónuupplýsingum þínum
Í tilvikum þegar þú biður okkur um að deila persónuupplýsingum þínum með þriðja aðila, kunnum við að gera slíkt. Þú getur t.d. heimilað þriðja aðila að koma fram fyrir þína hönd (eins og lögmanni, endurskoðanda, fjölskyldumeðlimi, forráðamanni skv. umboði). Við kunnum að biðja um sönnun þess að þriðja aðila hafi sannarlega verið heimilað að koma fram fyrir þína hönd.
12. Verða persónuupplýsingar mínar sendar út fyrir Evrópu?
Við veitum alþjóðlega þjónustu og því kunnum við að flytja persónuupplýsingar þínar út fyrir EES til að við getum veitt þjónustu okkar. Ef þú t.d. innir af hendi alþjóðlega greiðslu munum við senda fjármunina til banka utan EES.
Við kunnum að senda persónuupplýsingar þínar út fyrir EES til:
- að fylgja gildandi alþjóðlegum lögum og reglugerðum
- að veita stöðuga stoðþjónustu
- stofnana sem vinna gegn svikum, eftirlitsaðila og löggæsluyfirvalda
- að gera okkur kleift að útvega þér vörur eða þjónustu sem þú hefur beðið um
Í tilvikum þegar við flytjum persónuupplýsingar þínar til annars lands þar sem ekki er boðið upp á staðlaða gagnavernd líkt og innan EES, munum við ganga úr skugga um að persónuupplýsingar þínar séu varðar á fullnægjandi hátt. Við munum t.d. ganga úr skugga um að gera samning um að strangar verndarráðstafanir séu gerðar áður en við flytjum persónuupplýsingar þínar. Í sumum tilvikum áttu rétt á að biðja okkur um afrit af slíkum samningi.
Hafðu samband við okkur með því að senda tölvupóst á dpo@revolut.com ef þú óskar eftir frekari upplýsingum.
13. Hvernig verndið þið persónuupplýsingarnar mínar?
Við gerum okkur grein fyrir mikilvægi þess að vernda og hafa umsjón með persónuupplýsingum þínum. Farið verður með allar persónuupplýsingar sem við vinnum úr af fyllstu aðgát og trúnaði. Þessi hluti fjallar um hluta af öryggisráðstöfunum sem við höfum gert.
Við gerum ýmsar skipulagslegar og tæknilegar ráðstafanir til að:
- viðhalda trúnaði, tiltæki- og heilleika persónuupplýsinga þinna
- ganga úr skugga um að persónuupplýsingar þínar séu ekki notaðar eða birtar á rangan hátt
Við höfum sett okkur strangar reglur um gagnaöryggi og -vernd sem starfsfólki okkar ber að fylga við meðhöndlun persónuupplýsinga þinna. Starfsfólk okkar er þjálfað í gagnavernd og upplýsingaöryggi. Persónuupplýsingar eru geymdar í öruggum tölvukerfum með aðgangsstýringu sem takmarkar efnislegan, kerfislægan og upplýsingatengdan aðgang við viðurkennt starfsfólk.
Revolut hefur sett strangar reglur um hvernig fyrirtækið deilir persónuupplýsingum þínum með öðrum fyrirtækjum. Áður en við deilum persónuupplýsingum með öðrum fyrirtækjum göngum við rækilega úr skugga um eftirfarandi:
- að grannskoða fyrirtækið fyrirfram
- að meta öryggisráðstafanir sem fyrirtækið hefur gert til að vernda persónuupplýsingar þínar
Við grípum til allra raunhæfra aðgerða til að koma í veg fyrir óheimilan aðgang að persónuupplýsingum þínum, en við getum ekki tryggt öryggi þegar þú sendir upplýsingarnar í forrit okkar, á vefsvæði okkar eða annarri þjónustu sem við kunnum að bjóða upp á. Við notum HTTPS-kerfi (HTTP Secure) þar sem samskiptareglur eru dulkóðaðar með TLS til að tryggja örugg samskipti um netkerfi fyrir öll okkar forrit, vefsvæði og úrvinnsluþjónustu greiðslna.
Þú berð ábyrgð á því að tryggja öryggi Revolut-reikningsins þíns með því að geyma aðgangsorð, PIN-númer og einkvæma aðgangskóða á öruggum stað. Þú mátt ekki deila slíkum upplýsingum með öðrum, þar sem slíkar upplýsingar má nota til að fá aðgang að Revolut-reikningnum og persónuupplýsingum þínum. Hafðu í huga að Revolut mun aldrei biðja þig um þessar upplýsingar í gegnum síma, í tölvupósti eða með textaskilaboðum.
Þegar þú notar opna þjónustu okkar, sem felur í sér reikninga okkar á samfélagsmiðlum skaltu ekki deila persónuupplýsingum sem þú vilt ekki að aðrir notendur sjái, safni saman eða noti, þar sem slíkar persónuupplýsingar verða aðgengilegar öllum.
14. Hversu lengi geymið þið persónuupplýsingarnar mínar?
Við munum geyma persónuupplýsingar þínar:
- eins lengi og þörf krefur í sama tilgangi og við söfnuðum upplýsingunum í upphafi
- í tilvikum þegar við geymum slíkar upplýsingar í lögmætum tilgangi (t.d. til að stjórna viðskiptaáhættu okkar eða verja réttarkröfur)
- í samræmi við gildandi lög
Okkur ber skylda til að halda eftir tilteknum persónugögnum í tiltekinn tíma samkvæmt gildandi lögum um mat á viðskiptavinum, aðgerðir gegn peningaþvætti og rafmyntir. Slík tímabil eru breytileg eftir löndum.
Innan EES munum við almennt séð ekki geyma persónuupplýsingar þínar lengur en 10 ár eftir að viðskiptasambandi okkar lýkur.
Revolut hefur sett ítarlegar reglur og ferli til að ganga úr skugga um að öllum slíkum kröfum sé fylgt.
Við kunnum að geyma persónuupplýsingar þínar lengur vegna hugsanlegrar eða yfirstandandi málssóknar eða af öðrum lagalegum ástæðum.
15. Sendið þið uppfærslur um notkun persónuupplýsinga minna?
Þegar breytingar verða á notkun okkar á persónuupplýsingum þínum munum við senda þér tilkynningu um slíkt og ef slíkt á við senda þér tölvupóst í viðeigandi Revolut-forrit, eða á vefsvæði okkar.
16. Notið þið vafrakökur?
Við notum vefkökur til að greina notkun þína á vefsvæði okkar. Frekari upplýsingar um kökur er að finna í stefnu okkar um vafrakökur.
Við notum einnig pixla eða vefvita í tölvupóstum sem við sendum þér við beina markaðssetningu. Slíkir pixlar rekja hvort að tölvupóstinum hafi komist til skila eða verið opnaður og hvort smellt var á tengla í tölvupóstinum. Slíkir pixlar gera okkur einnig kleift að safna upplýsingum á borð við IP-tölu, vafra, gerð tölvupóstbiðlara og ítarlegri upplýsingar af svipaðri gerð. Við notum þessar upplýsingar til að mæla afköst tölvupóstsherferða okkar og til frekari greiningar. Þú getur stjórnað í persónuverndarstillingunum í viðeigandi Revolut-forriti hvort þú fáir tölvupóst beinnar markaðssetningar.