Products

Skilmálar flýtiafgreiðslupassa fyrir öryggisskoðun á flugvelli

1. Inngangur

Þessir skilmálar („skilmálar“), ásamt persónulegu skilmálunum og öllum öðrum skilmálum sem gilda um þjónustu okkar, mynda lagalegan samning milli þín, sem Revolut-viðskiptavinar, og okkar, Revolut Ltd, um notkun og kaup á flýtiafgreiðslupössum fyrir öryggisskoðun á flugvelli (Airport Security Fast Track Pass) („ASFT-passinn/-passarnir“) í gegnum Revolut-appið („appið“).


Við eigum samstarf við DragonPass International Limited („DragonPass“) um að gefa þér kost á að nota ASFT-passana. Þú kaupir ASFT-passa beint frá DragonPass og við gerum þér kleift að greiða fyrir passann í appinu. Skilmálar DragonPass, sem og skilmálar sem gilda á hverri flugstöð fyrir sig þar sem boðið er upp á flýtiafgreiðsluborð fyrir öryggisskoðun („aðildarstöðvar“), gilda einnig um notkun hvers ASFT-passa fyrir sig. Í appinu er að finna lista yfir aðildarstöðvar með þeim afbókunarreglum og reglum um fyrirfram bókanir sem gilda í hverju tilviki.


2. Mikilvægar upplýsingar

ASFT-passar lúta ekki eftirliti neins eftirlitsaðila innan fjármálaþjónustu. Það þýðir að ef leggja þarf fram kvörtun er ekki hægt að beita úrlausnaraðferðum vegna ágreinings sem nýttar eru í fjármálaþjónustu. Sem viðskiptavinur Revolut hefurðu réttindi og skyldur í samræmi við persónulegu skilmálana sem gilda um Revolut-reikninginn þinn í tengslum við greiðslur fyrir ASFT-passa, en það er eini eftirlitsskyldi þáttur þjónustunnar.


3. Hverjir geta keypt og notað ASFT-passa?

Til að mega kaupa ASFT-passa í gegnum appið þarftu að hafa hlotið samþykki sem Revolut viðskiptavinur í landi þar sem ASFT-passar eru í boði.


Stakur ASFT-passi gildir fyrir einn einstakling á völdum ferðadegi og -tíma, innan þess 30 mínútna tímaglugga sem þú velur í appinu.


Þú getur keypt marga ASFT-passa fyrir þig og þína gesti. Börn sem ferðast með þér geta hugsanlega fengið aðgang að flýtiafgreiðsluborðum fyrir öryggisskoðun hjá aðildarstöðvum án endurgjalds, eins og sýnt er í appinu. ASFT-passarnir þínir verða aðgengilegir í appinu minnst 3 klukkustundum fyrir 30 mínútna tímagluggann sem þú valdir.


Þegar þú kaupir ASFT-passa þarftu hugsanlega að færa inn nafn þess sem notar hann. Þessu nafni er ekki hægt að breyta eftir kaup. ASFT-passar eru ekki framseljanlegir. Þú eða nafngreindi einstaklingurinn á ASFT-passanum þarf að framvísa gildum skilríkjum (þ.e. vegabréfi) og gildum flugmiða samdægurs sem passar við nafn einstaklingsins á ASFT-passanum.


4. Hvað kostar ASFT-passi?

Ef þú ert með Ultra-áskrift og hefur keypt flugið þitt gegnum Revolut geturðu fengið ASFT-passa til eigin afnota án aukakostnaðar („ótakmarkaðir ASFT-passar“).


Ef þú ert:

  • með einhverja aðra áskrift;
  • Ultra-viðskiptavinur og vilt kaupa ASFT-passa fyrir gesti; eða
  • Ultra-viðskiptavinur og vilt kaupa ASFT-passa fyrir þig, en hefur ekki keypt flugið þitt gegnum Revolut

getur þú keypt ASFT-passa gegn gjaldi. Afsláttur gæti verið í boði, en það fer eftir áskriftinni þinni. Við sýnum þér alltaf verðið fyrir ASFT-passann í appinu áður en þú gengur frá kaupunum.


5. Get ég fengið ASFT-passa endurgreiddan?

Áður en þú kaupir passann í appinu færðu að sjá hvort aðildarstöðin heimilar afbókun án endurgjalds og hvaða tímaramma þú hefur til að óska eftir því. Ef þú afpantar ASFT-passann ekki innan tilgreindra tímamarka áttu ekki rétt á endurgreiðslu í neinum tilvikum.


Hafðu í huga að sumar aðildarstöðvar bjóða ekki upp á afbókun.


6. Hvað gerist ef ég segi upp Revolut-áskriftinni eða skipti í aðra áskrift með færri fríðindum?

Þú getur hugsanlega fengið afslátt eða einn eða fleiri ótakmarkaða ASFT-passa, allt eftir áskriftinni.


Ef þú notar og kaupir ASFT-passa með því að nota afslátt samkvæmt greiddri áskrift eða notar ótakmarkaðan ASFT-passa og skiptir svo í aðra greidda áskrift með færri fríðindum, allt innan 14 daga frá því að þú stofnaðir greidda áskrift, munum við innheimta mismuninn á afslættinum sem þú fékkst og verði ASFT-passans samkvæmt niðurfærðu áskriftinni. Fyrir Ultra-viðskiptavini þýðir þetta að allir notaðir ótakmarkaðir ASFT-passar verða skuldfærðir að fullu.


Ónotaðir ASFT-passar með afslætti eða ónotaðir ótakmarkaðir ASFT-passar verða fluttir yfir á nýja reikninginn þinn án viðbótarkostnaðar.


7. Ber Revolut ábyrgð ef eitthvað fer úrskeiðis með ASFT-passa?

Við berum ekki ábyrgð á nákvæmni neinna mynda eða upplýsinga sem birtast í appinu eða nokkurri þjónustu sem DragonPass veitir.


Við getum ekki ábyrgst aðgang að eða framboð á flýtiafgreiðsluborðum hjá aðildarstöðvum með því að útvega ASFT-passa. Aðildarstöðvar hafa heimild til að neita þér um gegnumferð eða binda enda á notkun þína.


8. Hvernig á að senda inn kvörtun

Ef þú ert óánægð(ur) með þjónustu okkar reynum við að bregðast við því. Hafðu samband við okkur í hlutanum „Hjálp“ í appinu, sendu okkur tölvupóst á formalcomplaints@revolut.com eða fylltu útþetta eyðublað. Frekari upplýsingar er að finna í reglum okkar um kvartanir.


Ef kvörtun þín tengist ASFT-pössum munum við senda hana áfram til DragonPass fyrir þína hönd. Þú þarft að veita okkur eftirfarandi upplýsingar:

  • flugnúmerið þitt;
  • upplýsingar um flugvöll og flugstöð;
  • dagsetningu og tíma ferðar;
  • heildarfjölda AFST-passa sem þú keyptir;
  • nánari lýsingu á kvörtuninni; og
  • hvernig þú kýst helst að brugðist verði við.


Við skoðum kvörtunina og svörum þér með tölvupósti. Nema annað verði tekið fram munum við hafa samband við þig á ensku.


9. Önnur lagaleg atriði og ábendingar.

Gagnavernd

Til að geta veitt þér þessa þjónustu þurfum við að deila tilteknum persónuupplýsingum um þig (til dæmis nafni, flugupplýsingum og samskiptaupplýsingum) með DragonPass og/eða aðildarstöðvum (sameiginlega „þjónustuveitendur“). Ef þú kaupir ASFT-passa fyrir þriðju aðila þurfum við einnig að deila persónuupplýsingum þeirra með þjónustuveitendum í sama augnamiði. Athugaðu að þjónustuveitendurnir eru fyrir sitt leyti skilgreindir sem ábyrgðaraðilar allra persónuupplýsinga sem við deilum með þeim samkvæmt þessum skilmálum.


Þú staðfestir að þú hafir heimild til að veita persónuupplýsingar fyrir hönd þeirra þriðju aðila sem þú veitir okkur upplýsingar um þegar þú notar þessa þjónustu.


Frekari upplýsingar um úrvinnslu okkar á persónuupplýsingum er að finna í tilkynningu okkar um persónuvernd viðskiptavina.


Breytingar á þessum skilmálum

Revolut er heimilt að breyta þessum skilmálum hvenær sem er með tilkynningu til þín um það.

Réttur okkar til framsals

Við getum framselt og/eða úthlutað réttindum okkar og/eða skyldum samkvæmt þessum skilmálum ef við höfum raunhæfa ástæðu til að ætla að það hafi engin veruleg áhrif á réttindi þín samkvæmt þessum skilmálum eða ef okkur ber skylda til þess samkvæmt lögum. Þú getur ekki gert þetta.

Réttur okkar til að framfylgja þessum skilmálum

Ef þú hefur brotið gegn þessum skilmálum og við nýtum ekki réttindi okkar samstundis áskiljum við okkur rétt til að nýta þau síðar.

Þessir skilmálar eru aðskiljanlegir

Ef eitthvað í þessum skilmálum verður úrskurðað ólögmætt skulu aðrir hlutar skilmálanna halda gildi sínu þrátt fyrir það.

Þriðju aðilar hafa ekki réttindi

Samkvæmt lögum um samninga frá 1999 (réttindi þriðju aðila) hafa þriðju aðilar ekki réttindi samkvæmt þessum skilmálum.

Ensk lög gilda

Lög í Englandi og Wales gilda um þessa skilmála.

Málshöfðun á hendur okkur

Ef þú vilt höfða mál gegn okkur fyrir dómstólum skal reka mál sem tengjast þessum skilmálum fyrir dómstólum í Englandi og Wales. Ef þú býrð í öðru landi getur þú lagt fram málshöfðun fyrir dómstólum á þínu búsetusvæði.

Ensk útgáfa þessara skilmála gildir umfram aðrar útgáfur

Nota skal enska útgáfu þessara skilmála í öllum málarekstri. Leyfilegt er að þýða þessa skilmála yfir á önnur tungumál. Ef misræmi kemur upp í einhverri þýddri útgáfu gagnvart ensku útgáfunni skal ensk útgáfa þessara skilmála gilda og teljast endanleg og bindandi útgáfa.