Terms & Policies

Skilmálar Trading Pro

Þessi útgáfa af skilmálunum okkar gildir frá 1. desember 2025. Til að skoða fyrri útgáfur sem voru í gildi til 1. desember 2025 skaltu smella hér.


Ef upp kemur ósamræmi eða árekstur milli þýðingar á þessum skilmálum Trading Pro og upprunalegu útgáfunnar á ensku skal upprunalega útgáfan gilda. Þýðingin er aðeins til hliðsjónar.

1. Almennar upplýsingar

Í þessu skjali eru settir fram skilmálar um þjónustu okkar, Trading Pro. Þetta köllum við „skilmála Trading Pro“. Þar koma einnig fram önnur mikilvæg atriði sem þú þarft að vita.


Áður en þú getur notað Trading Pro-þjónustuna verður þú að opna fjárfestingarreikning hjá Revolut Securities Europe UAB („Revolut“, „okkur“, „við“, „okkar“). Þessir skilmálar Trading Pro, ásamt skilmálum Revolut Securities Europe UAB („viðskiptaskilmálarRevolut“), og öllum öðrum skjölum og skilmálum sem gilda um fjárfestingarþjónustu okkar, mynda sameiginlega lagalegan samning (þennan „samning“) milli:

  • þín, sem notanda Trading Pro, og
  • okkar, Revolut Securities Europe UAB.


Ef ósamræmi er á milli viðskiptaskilmála Revolut og þessara skilmála Trading Pro skulu skilmálar Trading Pro gilda. Ef orð eða orðasamband er ekki skilgreint í þessum skilmálum Trading Pro telst það hafa sömu merkingu og í viðskiptaskilmálum Revolut.


Þú ættir að lesa þessa skilmála Trading Pro vandlega, sem og viðskiptaskilmála Revolut, áður en þú gengur til samninga við okkur þar sem skilmálarnir innihalda mikilvægar upplýsingar um með hvaða hætti við veitum þér þjónustu og hvaða ábyrgð þú berð sem notandi Trading Pro. Allar tilvísanir í „fjárfestingarþjónustu“ í viðskiptaskilmálum Revolut fela einnig í sér Trading Pro-þjónustuna nema samhengið krefjist annars.


2. Revolut Trading Pro-þjónustan

Trading Pro er áskriftarþjónusta sem býður upp á viðbótareiginleika, ávinning og sérstakt verð fyrir notendur sem þegar eru með fjárfestingarreikning hjá Revolut. Þessa þjónustu köllum við „Trading Pro-þjónustuna“.


Trading Pro-þjónustan veitir upplýstum og reyndum notendum verkfærin sem þeir kunna að þurfa til að taka upplýstar fjárfestingarákvarðanir. Notkun þín á Trading Pro-þjónustunni hefur þó ekki áhrif á flokkun þína sem almennur fjárfestir og felur ekki í sér beiðni um að þú verðir skilgreindur sem fagfjárfestir.


Með því að gerast áskrifandi að Trading Pro-þjónustunni færðu aðgang að háþróuðum viðskiptagögnum og greiningarverkfærum, svo sem valkostum um margar aðferðir við útreikninga á árangri, fleiri háþróuðum töflum og línuritum, sundurliðun á hagnaði og tapi og samsetningu eignasafns („viðskiptagögnin“).


Þú hefur einnig aðgang að eftirfarandi viðskipatengdum kostum:

  • lægri viðskiptaþóknun vegna fyrirmæla um hlutabréf, skuldabréf og aðrar skuldaviðurkenningar og kauphallarsjóði (ETF) sem gerðar eru utan hámarksins samkvæmt áskriftarleið þinni, sem er 0,12% af fjárhæð fyrirmælanna (án lágmarksgjalds).
  • efri stærðarmörk fyrirmæla eru allt að 1.500.000 USD / 1.500.000 EUR (fer eftir gjaldmiðli fjármálagerningsins), að því tilskildu að fyrirmælin fari ekki yfir 50.000 hluti.


3. Upplýsingar um áskriftarleiðina

Til að nota Trading Pro-þjónustuna þarftu fyrst að opna fjárfestingarreikning hjá okkur. Þegar þú hefur opnað fjárfestingarreikninginn þinn geturðu virkjað Trading Pro. Trading Pro er aðskilið og óháð Standard, Plus, Premium eða Metal áskriftarleiðunum þínum hjá Revolut. Notendur Revolut Ultra geta virkjað Trading Pro án endurgjalds sem hluta af áskriftarleið sinni.


Reynslutími án endurgjalds

Við munum hugsanlega bjóða þér að prófa Trading Pro-þjónustuna án endurgjalds í 30 almanaksdaga („reynslutími án endurgjalds“). Þú getur hætt við reynslutíma án endurgjalds hvenær sem er á reynslutímabilinu. Ef þú gerir það geturðu samt notað ókeypis áskriftina þína til loka tilgreinda reynslutímans. Þegar hætt hefur verið við getur þú ekki hafið reynslutíma án endurgjalds aftur síðar meir.


Þegar reynslutíma án endurgjalds er lokið, og áskrift til reynslu hefur ekki verið afturkölluð á reynslutímanum, hefst áskriftartímabilið að Trading Pro tafarlaust og gjald fyrir áskriftarleiðina verður innheimt samkvæmt þessum skilmálum Trading Pro.


Reikningstímabil

Reikningstímabilið þitt fyrir Trading Pro-þjónustuna er einn mánuður. Tímabilið hefst á þeim degi sem þú gerist áskrifandi að Trading Pro-þjónustunni (eða daginn eftir að reynslutíma án endurgjalds lýkur). Þetta köllum við „reikningstímabilið“.


Gjald fyrir áskrift að Trading Pro

Gjaldið fyrir notkun Trading Pro er innheimt mánaðarlega og er sem hér segir:

  • Evrusvæðið og Ísland EUR 15.00
  • Sviss CHF 15.00
  • Danmörk DKK 110.00
  • Noregur NOK 170.00
  • Pólland PLN 70.00
  • Rúmenía RON 75.00
  • Tékkland CZK 365.00
  • Svíþjóð SEK 180.00
  • Búlgaría BGN 30.00 / 15 EUR

Athugið: Vegna aðildar Búlgaríu að evrusvæðinu munu búlgarskir viðskiptavinir frá og með 17. desember 2025 greiða gjöld í EUR.

  • Ungverjaland HUF 5.800,00
  • Liechtenstein CHF 15,00


Þetta köllum við „áskriftargjald“. Notendur Revolut Ultra greiða ekki áskriftargjald.


Gjaldið fyrir Trading Pro-áskriftarleiðina er greitt með mánaðarlegum afborgunum sem eru innheimtar fyrirfram á fyrsta degi hvers reikningstímabils.


Með því að samþykkja þessa skilmála samþykkir þú að við munum innheimta áskriftargjaldið með því að draga það af Revolut-reikningnum þínum. Af þessum sökum veitir þú okkur leyfi til að gefa fyrirtækinu sem rekur Revolut-reikninginn þinn fyrirmæli um að dregga mánaðargjaldið af Revolut-reikningnum þínum. Ef ekki er næg innistæða á Revolut-reikningnum í gjaldmiðli hlutaðeigandi lands, verður gjaldið dregið af Revolut-reikningi í hvaða öðrum gjaldmiðli sem er, og í því tilviki getur gjaldeyriþóknun átt við. Þú veitir einnig heimild fyrir því að lögaðilinn sem veitir þér aðgang að Revolut-reikningnum geti skuldfært á Revolut-reikninginn þinn í samræmi við fyrirmælin frá okkur.


Þú verður að tryggja að það sé ávallt næg innistæða á Revolut-reikningnum þínum til að hægt sé að skuldfæra gjaldið fyrir áskriftarleiðina.


Ef þú átt ekki nægilegt fé á Revolut-reikningnum þínum, áskiljum við okkur rétt til að draga áskriftargjaldið af fjárfestingareikningnum þínum, í hvaða gjaldmiðli sem er.


Ef ekki er næg innistæða á Revolut-reikningnum getur verið að við eða lögaðilinn sem veitir þér aðgang að Revolut-reikningnum grípi til tiltekinna aðgerða til að innheimta greiðsluna. Það felur í sér, án takmarkana, að endurheimta skuldina gegnum innheimtufyrirtæki eða með því að höfða mál gegn þér. Í slíkum tilvikum þarft þú hugsanlega að bæta okkur hvern þann kostnað sem telst eðlilegur vegna aðgerðanna. Við munum einnig hugsanlega rifta áskriftarsamningnum eða loka fyrir aðgang þinn að Trading Pro-þjónustunni ef mánaðarlegt áskriftargjald þitt er gjaldfallið lengur en 14 almanaksdaga.


Sjálfvirk endurnýjun

Áskriftin að Trading Pro-þjónustunni endurnýjast sjálfkrafa nema þú tilkynnir okkur að þú viljir segja áskriftinni upp fyrir síðasta dag reikningstímabilsins.


Notendur með Ultra-áskrift

Ef þú notar Ultra-áskriftarleið hjá Revolut og hefur opnað fjárfestingarreikning hjá okkur geturðu virkjað og notað Trading Pro án endurgjalds þar til þú segir upp Ultra-áskriftarleiðinni.


Ef þú hefur virkjað Trading Pro og síðar sagt upp Ultra-áskriftarleið hjá Revolut riftum við Trading Pro-áskriftinni þinni, en þú getur þó ntað hana til loka reikningstímabilsins. Þú getur virkjað Trading Pro aftur og gilda þá venjulegar reglur um innheimtu.


4. Uppsögn áskriftar að Trading Pro

Þú getur hvenær sem er sagt upp áskriftinni að Trading Pro með Revolut-forritinu.


Ef þú segir upp áskrift þinni að Trading Pro endurgreiðum við ekki áskriftargjaldið, hvorki að hluta né í heild, en þú getur samt notað Trading Pro-þjónustuna þar til yfirstandandi reikningstímabili lýkur.


Ef þú segir upp áskrift þinni að Trading Pro getur þú hugsanlega ekki getað skráð þig aftur í áskrift í tiltekinn tíma.


5. Notkun Trading Pro-þjónustunnar, viðskiptagagna og annarra upplýsinga sem tiltækar eru í fjárfestingarkerfinu

Viðskiptagögnin eða önnur gögn eða upplýsingar sem þér eru veittar í gegnum fjárfestingarkerfið og með öðrum hætti í gegnum Trading Pro-þjónustuna eru háð leyfi þriðju aðila eða leyfi frá okkur.


Við samþykkjum að veita þér takmarkaðan, almennan og afturkallanlegan rétt til að fá aðgang að og nota Trading Pro-þjónustuna, einkum viðskiptagögn og aðrar upplýsingar sem eru tiltækar í fjárfestingarkerfinu, en aðeins í persónulegum tilgangi og ekki í viðskiptatilgangi. Við höfum hvenær sem er rétt til að (i) breyta, uppfæra og/eða hætta að veita þér Trading Pro-þjónustuna; og (ii) afturkalla eða takmarka rétt þinn til að fá aðgang að og nota viðskiptagögnin og/eða aðrar upplýsingar sem tiltækar eru í fjárfestingarkerfinu.


Öll hugverkaréttindi í viðskiptagögnum frá þriðju aðilum verða áfram eign viðkomandi þriðju aðila. Viðskiptagögnin og allar aðrar upplýsingar og gögn frá okkur eru og verða eign okkar. Hugbúnaðurinn er varinn með höfundarréttarlögum og öðrum alþjóðlegum hugverkaréttarlögum.


Við getum hvenær sem er og að eigin vild breytt umfangi viðskiptagagna, viðskiptagögnum sem afhend eru um fjármálagerninga og þriðju aðilum sem veita viðskiptagögn.


Við fullyrðum ekki eða ábyrgjumst að Trading Pro-þjónustan sé laus við villur eða truflanir eða að þjónustan uppfylli einstaklingsbundnar kröfur þínar, samrýmist vélbúnaði þínum eða hugbúnaði eða henti í hvaða tilgangi sem er. Trading Pro-þjónustan, vefsvæðið og allar upplýsingar sem við veitum þér eru veittar „eins og þær eru“ og „samkvæmt framboði“ án nokkurrar ábyrgðar. Við berum ekki ábyrgð á truflunum á Trading Pro-þjónustunni eða vangetu þinni til að fá aðgang að Trading Pro-þjónustunni.


Nema að samhengið krefjist annars skal líta á allar tilvísanir í markaðsgögn í viðskiptaskilmálum Revolut sem tilvísun í viðskiptagögnin, að því er varðar Trading Pro-þjónustuna og þessa skilmála.


6. Það sem þú lofar okkur samkvæmt skilmálum Trading Pro

Með því að gangast undir þennan samning samþykkir þú eftirfarandi:

  • að fylgja þessum skilmálum;
  • að vernda hugverkaréttindi Revolut og veitenda sem eru þriðju aðilar og allra sem eiga réttindi í Revolut-forritinu, viðskiptagögnum eða öðrum upplýsingum eða gögnum sem þér eru látin í té í gegnum fjárfestingarkerfið;
  • að fara að öllum sanngjörnum beiðnum Revolut eða veitenda þess sem eru þriðju aðilar (þar á meðal beiðni um að eyða öllu efni sem aflað er við notkun á Trading Pro-þjónustunni) til að vernda réttindi okkar og veitenda sem eru þriðju aðilar í tengslum við Trading Pro-þjónustuna og viðskiptagögnin;
  • að veita ekki þriðja aðila aðgang að Trading Pro-þjónustunni og/eða viðskiptagögnum og að láta okkur vita gegnum Revolut-forritið og/eða með tölvupósti eins fljótt og auðið er ef þú verður vör/var við óheimilan aðgang eða notkun á Trading Pro Services eða brot á hugverkarétti Revolut eða þriðja aðila;
  • að þú munir ekki undir engum kringumstæðum deila, selja, birta eða dreifa neinum hluta viðskiptagagnanna eða öðrum upplýsingum sem gerðar eru aðgengilegar í fjárfestingarkerfinu til þriðja aðila eða nota þær í viðskiptalegum tilgangi;
  • að bakþýða ekki, vendismíða, taka í sundur, framleigja eða búa til afleidd verk úr þeim upplýsingum sem þú hefur aðgang að í tengslum við Trading Pro-þjónustuna.


7. Tímabundin stöðvun og/eða uppsögn áskriftar þinnar að Trading Pro

Þú samþykkir að við getum sagt þessum samningi við þig upp eða lokað fyrir aðgang þinn að Trading Pro-þjónustunni, með eða án ástæðu, hvenær sem er og án þess að tilkynna þér um það fyrirfram eða veita rökstuðning. Við getum til dæmis rift samningnum við þig ef þú stendur ekki við skuldbindingar þínar samkvæmt þessum skilmálum, ef fjárfestingarreikningi þínum er lokað eða ef þú hefur virkjað „Lokað á fyrirmæli um kaup“ í gegnum Revolut-forritið.


Ef uppsögnin / tímabundna lokunin tengist ekki aðgerðum þínum (til dæmis ef þú brýtur gegn þessum skilmálum eða virkjar „Lokað á fyrirmæli um kaup“) eða ef þú bregst ekki við getum við endurgreitt hluta áskriftargjaldsins, í réttu hlutfalli við eftirstandandi reikningstímabil. Að öðru leyti berum við ekki ábyrgð gagnvart þér vegna taps sem þú verður fyrir vegna uppsagnar eða stöðvunar á Trading Pro-þjónustunni.


Þar að auki geturðu ekki gerst áskrifandi að Trading Pro-þjónustunni ef þú hefur virkjað „Lokað á fyrirmæli um kaup“ á fjárfestingarreikningnum þínum, eða ef við höfum sett einhverjar hömlur eða takmarkanir á fjárfestingarreikninginn þinn.


8. Skaðleysi

Ef þú stendur ekki við skuldbindingar þínar samkvæmt þessum samningi berð þú ábyrgð á að greiða að fullu allt fyrirsjáanlegt tjón sem við verðum fyrir, beint eða óbeint, vegna þess að þú brýtur gegn hugverkaréttindum okkar eða þriðja aðila eða brýtur á annan hátt gegn þessum skilmálum Trading Pro eða gildandi lögum eða reglugerðum.


Réttindi okkar og skyldur sem leiða af þessum kafla 8 og kafla 35 (Skaðleysi) í viðskiptaskilmálum Revolut munu gilda áfram um þig eftir að þessum samningi lýkur.


9. Þjónusta annarra fyrirtækja í Revolut-samstæðunni

Revolut-forritið er viðskiptakerfi þar sem þú getur nýtt þér fjölbreytta þjónustu, þar á meðal fjárfestingarþjónustu, veltureikningaþjónustu og margt fleira.


Sumir hlutar þessarar þjónustu er ekki veitt af okkur (Revolut Securities Europe UAB). Sumir hlutar eru veittir af öðrum aðilum innan Revolut-samstæðunnar. Þar sem um slíkt er að ræða þarftu að samþykkja sérstaka skilmála þessara aðila, sem munu þá gilda um viðkomandi þjónustu. Ef þú notar til dæmis þjónustu fyrir viðskipti með eðalmálma er sú þjónusta veitt af Revolut Ltd og háð sérstökum skilmálum um þjónustuna sem þú þarft að samþykkja. Ef þú notar þjónustu fyrir viðskipti með rafmynt er sú þjónusta veitt af Revolut Ltd eða RT Digital Securities Cyprus Limited, eftir staðsetningu þinni, og er háð sérstökum skilmálum um þjónustuna sem þú þarft að samþykkja.


Revolut Securities Europe UAB veitir ekki þjónustu sem tengist rafmynt eða eðalmálmum og þú hefur ekki réttindi gegn okkur samkvæmt skilmálum sem gilda um þjónustu fyrir viðskipti með rafmynt eða eðalmálma sem veitt er af öðrum aðila í Revolut-samstæðunni.


10. Lagaleg atriði

Breytingar og viðbætur

Við getum hvenær sem er breytt þessum skilmálum Trading Pro eða einhverjum hluta þeirra með því að gefa þér að minnsta kosti 10 daga skriflegan fyrirvara.


Ef breytingin gagnast þér eða bætir við nýjum eiginleika tekur hún strax gildi nema við tilkynnum þér annað. Í öllum öðrum tilvikum taka breytingarnar gildi á þeim degi sem tilgreindur er í tilkynningunni, sem verður ekki fyrr en 10 dögum eftir að við sendum þér skriflega tilkynningu.


Ef við tilkynnum þér um breytingu gerum við ráð fyrir að þú sért ánægð(ur) með breytinguna nema þú látir okkur vita að þú viljir segja upp áskrift þinni að Trading Pro.


Samningur okkar við þig

Aðeins þú og við, Revolut Securities Europe UAB, höfum réttindi samkvæmt þessum samningi. Þessi samningur er aðeins fyrir þig og þú getur ekki framselt réttindi þín eða skyldur samkvæmt honum til annarra.


Réttur okkar til framsals

Okkur er hvenær sem er og án samþykkis þíns heimilt að framselja eða úthluta einhverjum eða öllum réttindum okkar og/eða skuldbindingum samkvæmt þessum samningi, að því tilskildu að við höfum sent þér skriflega tilkynningu þess efnis með minnst 14 virkra daga fyrirvara.


Kvartanir

Við gerum alltaf okkar besta en gerum okkur einnig grein fyrir því að stundum fer eitthvað úrskeiðis. Ef þú ert með kvörtun í tengslum við þjónustu Trading Pro Services getur þú komið henni á framfæri við okkur í samræmi við 43. kafla (Kvartanir) í skilmálum Revolut Trading og reglur okkar um meðhöndlun kvartana, sem er aðgengileg hér.


Ensk útgáfa þessa samnings gildir

Ef skilmálar Trading Pro eru þýddir á annað tungumál er þýðingin aðeins til viðmiðunar og ensk útgáfa kynningarskilmálanna skal gilda. Með því að gangast undir þennan samning og samþykkja þjónustu Trading Pro staðfestir þú að þú hafir þekkingu á ensku sem nægir til að skilja þessa skilmála Trading Pro og nota þjónustu Trading Pro og samþykkir að eiga í samskiptum við okkur á ensku hvað varðar lagaleg samskipti sem eiga sér stað samkvæmt þessum samningi, þar á meðal varðandi framlagningu og úrlausn kvartana.


Réttur okkar til að framfylgja þessum samningi

Ef þú hefur brotið gegn þessum samningi á milli þín og okkar og við framfylgjum ekki réttindum okkar eða það verður töf á því að við framfylgjum þeim kemur það ekki í veg fyrir að við getum framfylgt þeim síðar.


Litháísk lög gilda

Lög Lýðveldisins Litháens gilda um þessa skilmála Trading Pro og þennan samning.


Málshöfðun gegn okkur

Mál sem höfðuð eru samkvæmt þessum ákvæðum og skilmálum má sækja fyrir dómstólum í Litáen (eða dómstólum í landinu þar sem þú býrð).