Products

Skilmálar gistingar

Gisting

Í þessu skjali er að finna skilmála eiginleikans „Gisting“, sem er hluti af þjónustu Revolut („gisting“). Þar koma einnig fram önnur mikilvæg atriði sem þú þarft að vita.

Þessir skilmálar („skilmálarnir“), síðan fyrir gjöld og aðrir skilmálar sem eiga við um þjónustu okkar mynda lagalegan samning („samningurinn“) á milli:

● þín, notanda eiginleikans „Gisting“; og

● okkar, Revolut Ltd.

„Gisting“ gerir þér kleift að bóka valda gististaði Nuitee Travel Limited („Nuitee“), Expedia Inc („Expedia“) eða VRBO.com („VRBO“) í Revolut-forritinu („forritið“). Í þessum skilmálum vísum við sameiginlega til gististaða Nuitee, Expedia og VRBO sem „gistinga“, eða „gistingar“ ef um er að ræða staka bókun. VRBO er fyrirtæki í eigu Expedia og það kemur skýrt fram í forritinu hvaða gististaðir tilheyra VRBO. Í skilmálunum er útskýrt hvað kann að vera frábrugðið ef valinn gististaður heyrir undir VRBO.

Þessir skilmálar gilda um allar bókanir sem gerðar eru í forritinu, hvort sem valið er að „greiða núna“ eða „greiða síðar“ (sjá hér fyrir neðan). Nauðsynlegt er að fylgja skilmálunum þegar gisting er bókuð í forritinu.

Til að veita þér eiginleikann „Gisting“ mun Revolut-aðilinn sem greiðslureikningurinn þinn er skráður hjá einnig veita þér undirliggjandi greiðsluþjónustu (til dæmis þegar Revolut skuldfærir upphæðina fyrir gistinguna af reikningnum þínum þegar þú staðfestir bókun í forritinu). Ef þú ert til dæmis viðskiptavinur Revolut Bank UAB mun Revolut Ltd sjá þér fyrir aðgangi að gistingum en Revolut Bank UAB fyrir undirliggjandi greiðsluþjónustu. Þetta kemur fram í persónulegum skilmálum Revolut Bank UAB. Sem viðskiptavinur Revolut hefurðu réttindi og skyldur í samræmi við persónulegu skilmálana og aðra sérstaka skilmála sem gilda um Revolut-greiðslureikninginn þinn í tengslum við greiðslur fyrir gistingar, en það er eini eftirlitsskyldi þáttur eiginleikans.

Sem notandi eiginleikans „Gisting“ þarftu einnig að fylgja skilmálum og öllum bókunar- og afbókunarreglum sem kunna að gilda um valda gistingu. Í flestum tilfellum þýðir þetta að þú þarft að fylgja skilmálum Nuitee (www.nuitee.com/terms-and-conditions) eða Expedia (sjá hér) en ef þú velur gististað á VRBO þarftu að fylgja skilmálum VRBO, sem hægt er að nálgast hér. Þú þarft einnig að fylgja þeim bókunar- og afbókunarreglum sem eiga við þá gistingu (haltu áfram að lesa þessa skilmála til að fá frekari upplýsingar) sem þú bókar hverju sinni.


Að bóka gistingu í Revolut-forritinu

Þegar þú bókar gistingu í Revolut-forritinu geturðu valið á milli nokkurra greiðsluvalkosta. Valkostirnir sem standa þér til boða ákvarðast af okkur og rekstraraðila gististaðarins eða eiganda hans ef um er að ræða VRBO (í samræmi við reglur VRBO).

Óháð því hvernig þú greiðir skaltu vera viss um að lesa viðeigandi bókunar- og afbókunarreglur gistingarinnar svo að þú áttir þig á því hver réttur þinn er ef þú vilt hætta við bókunina eða breyta henni. Þú getur séð reglurnar sem eiga við um valda gistingu í forritinu áður en þú gengur frá bókuninni.

Ef þú greiðir fyrir gistingu með Revolut gætirðu átt rétt á RevPoints. Þú getur nálgast skilmála RevPoints hér. RevPoints er eiginleiki sem sá aðili sem Revolut-reikningurinn þinn er skráður hjá veitir þér. Þegar við vísum til „við“ eða „okkur“ í þessum skilmálum í tengslum við RevPoints er átt við Revolut-aðilann sem Revolut-reikningurinn þinn er skráður hjá.

Við sýnum þér hve mörgum RevPoints þú átt rétt á í forritinu. Ef þú hefur gengið frá bókun en afbókar hana síðan eða breytir henni verða þeir RevPoints sem þú vannst þér inn afturkallaðir eða uppfærðir í samræmi við nýju upphæð bókunarinnar (eins og fram kemur í þessum skilmálum).

„Greiða núna“

Ef þú velur að „greiða núna“ fyrir gistingu sem þú bókar geturðu notað RevPoints og/eða Revolut-reikninginn þinn. Revolut-aðilinn sem valinn Revolut-reikningur er skráður hjá mun innheimta upphæðina fyrir gistinguna af greiðslureikningnum þínum (gjöld vegna gjaldeyrisskipta kunna að eiga við). Þú getur séð færsluna á Revolut-reikningnum þínum. Færslan verður merkt með „Revolut-gisting“ til að auðvelda þér að tengja hana við bókunina. Nuitee eða Expedia (eftir því sem við á) munu senda upplýsingarnar þínar til rekstraraðila viðeigandi gististaðar í því skyni að staðfesta gistinguna. Þú munt fá staðfestingarpóst frá Nuitee eða Expedia (eftir því sem við á) þegar gistingin hefur verið staðfest.

Ef valinn gististaður heyrir undir VRBO er aðeins hægt að greiða fyrir gistinguna með Revolut-korti. Áður en þú staðfestingu gistingu á VRBO-gististað birtist upphæð gistingarinnar, tryggingargjald vegna hugsanlegs tjóns, önnur tilfallandi gjöld („VRBO-tryggingin“) og þjónustugjaldið, ef annað eða bæði eiga við. Heimildin þín fyrir kortagreiðslunni mun ná yfir öll þessi atriði (ef við á). Sjá hlutann „Þetta þarftu að vita þegar þú bókar gistingu á VRBO“ í þessum skilmálum til að fá frekari upplýsingar um VRBO-trygginguna og þjónustugjaldið. Þegar þú staðfestir gistingu munum við láta VRBO vita og gistingin verður einnig staðfest af þeirra hálfu. Þú munt fá staðfestingarpóst frá okkur og VRBO þegar gistingin hefur verið staðfest.

Ef þú velur að greiða strax vinnurðu þér hugsanlega inn RevPoints í samræmi við upphæð bókunarinnar. Þú getur séð hve mörgum RevPoints þú átt rétt á fyrir bókun áður en þú staðfestir gistinguna í forritinu. Ef þú átt rétt á RevPoints fyrir bókunina munum við leggja þá inn á RevPoints-reikninginn þinn þegar bókunin hefur verið staðfest. Ef valinn gististaður heyrir undir VRBO verða þeir RevPoints sem þú vinnur þér inn lagðir inn á reikninginn þinn fyrir lok þess mánaðar sem gistingunni lýkur í (sjá hlutann „Þetta þarftu að vita þegar þú bókar gistingu á VRBO“ í þessum skilmálum til að fá frekari upplýsingar). Ef gisting nær yfir mánaðarmót munum við leggja RevPoints inn á þig fyrir lok næsta mánaðar.

„Greiða síðar“

Það mun koma skýrt fram í forritinu hvar þú getur greitt síðar. Ef þú velur að „greiða síðar“ fyrir gistingu þarftu að samþykkja að veita Nuitee eða Expedia (eftir því sem við á) Revolut-kortaupplýsingarnar þínar til að tryggja þér gistinguna. Nuitee eða Expedia (eftir því sem við á) skráir bókunina en þú greiðir ekki fyrir gistinguna fyrr en nær komutíma þínum eða þegar þú mætir á staðinn.

Það er undir þér komið að velja hvort þú greiðir fyrir gistingu með Revolut-kortinu þínu eða öðru korti, en þú getur aðeins fengið RevPoints ef þú greiðir með Revolut-korti. Upphæð RevPoints sem þú vinnur þér inn verður sýnd í forritinu áður en þú staðfestir gistingu.

Bókanir sem eru greitt er fyrir síðar eru tryggðar með Revolut-kortinu þínu. Þetta þýðir að ef þú mætir ekki á staðinn eða afbókar eftir að afbókunarfresturinn er liðinn (sjá hér að neðan) verður upphæðin sem þú skuldar tekin af kortinu þínu.


Þarftu að hætta við bókun?

Í bókunar- og afbókunarreglum hvers gististaðar má nálgast upplýsingar um hvað gerist ef þú afbókar og er það mismunandi eftir rekstraraðilum. Revolut hefur enga stjórn á bókunar- og afbókunarreglum viðeigandi gististaða en þær hafa þó áhrif á möguleika okkar á að hafa umsjón með endurgreiðslum fyrir þig. Þegar þú bókar gististað í forritinu ættu helstu upplýsingar um reglur hans að birtast. Í forritinu geturðu síðan séð hver afbókunarfresturinn er (ef við á) og hvað það hefur í för með sér að afbóka utan hans (hvort þú fáir endurgreitt að fullu, að hluta til eða ekki, hvort við munum afturkalla RevPoints og hvort að rekstraraðili gististaðarins muni taka upphæðina sem þú skuldar fyrir að afbóka af Revolut-kortinu þínu).

Að hætta við bókun sem greitt var fyrir strax

Ef bókun sem þú gerðir er endurgreiðanleg og þú hættir við hana áður en afbókunarfrestur gististaðarins er liðinn gætirðu átt rétt á endurgreiðslu. Þetta gæti verið full endurgreiðsla eða endurgreiðsla að hluta til eftir því hvað fram kemur í reglum gististaðarins. Ef þú uppfyllir skilyrði fyrir endurgreiðslu mun Revolut-aðilinn sem Revolut-reikningurinn þinn er skráður hjá leggja viðeigandi upphæð inn á þig og sömuleiðis afturkalla alla RevPoints sem þú fékkst fyrir bókunina.

Ef bókunin er óendurgreiðanleg eða þú óskar eftir að afbóka eftir að afbókunarfrestur gististaðarins er liðinn áttu ekki rétt á endurgreiðslu. Ef þú bókaðir gistingu á VRBO og óskar eftir að afbóka hana eftir að afbókunarfresturinn er liðinn áttu ekki rétt á endurgreiðslu þjónustugjaldsins. Það veltur á afbókunarreglum gististaðarins sem þú bókaðir á VRBO hvort þú eigir rétt á endurgreiðslu tryggingargjaldsins þegar þú óskar eftir afbókun.

Að hætta við bókun sem greitt er fyrir síðar

Hægt er að hætta við allar bókanir sem greitt er fyrir síðar án þess að gjald sé innheimt fyrir það ef afbókun er gerð áður en afbókunarfresturinn er liðinn. Gististaðurinn mun ekki skuldfæra á Revolut-kortið þitt ef þú hættir við bókunina áður en afbókunarfresturinn er liðinn. Ef þú vilt hætta við bókun sem greitt er fyrir síðar eftir að afbókunarfresturinn er liðinn gætirðu þurft að greiða heildarupphæð bókunarinnar eða hluta hennar. Ef þetta á við kemur það fram í reglum gististaðarins þegar þú gengur frá bókun. Við munum einnig láta þig vita hver upphæðin er þegar þú afbókar í forritinu. Sú upphæð verður skuldfærð á Revolut-kortið þitt.


Þarftu að breyta dagsetningum, herbergi eða gestafjölda?

Gististaðurinn sér um breytingar og/eða afbókun á bókuninni þinni ef þú óskar eftir því að breyta dagsetningum, herbergi, gestafjölda eða brottfarartíma. Þú getur haft umsjón með gistingunni þinni í forritinu og við munum staðfesta í samráði við Nuitee eða Expedia (eftir því sem við á) hvort gististaðurinn samþykki breytingarbeiðni þína. Þú munt aðeins geta gert breytingar ef gististaðurinn getur boðið upp á það.

Þú gætir þurft að greiða meira ef verðið fyrir breytinguna er hærra eða ef breytingin hefur tiltekin gjöld í för með sér (til dæmis ef gististaðurinn rukkar gjald fyrir síðbúna brottför). Frekari upplýsingar er að finna í skilmálum Nuitee eða Expedia (eftir því sem við á) og bókunar- og afbókunarreglum viðeigandi gististaðar. Revolut hefur enga stjórn á því hvort Nuitee eða Expedia samþykki breytingu/-ar sem þú óskar eftir.

Gististaðir á VRBO

Þegar um er að ræða gististaði á VRBO geturðu óskað eftir því að breyta dagsetningum, herbergi, gestafjölda eða brottfarartíma með því að smella á tengilinn í bókunarstaðfestingunni sem þú fékkst í tölvupósti frá VRBO. Tengillinn vísar þér áfram á vefsvæði VRBO þar sem þú getur breytt bókuninni í samráði við þjónustudeild VRBO. Þjónustudeild VRBO hefur umsjón með öllum breytingum á bókunum án okkar þátttöku. Ef þú vilt óska eftir því að skipta alfarið um gististað á VRBO gætirðu þurft að afbóka upprunalega gististaðinn og bóka nýjan í forritinu. Fulltrúi þjónustudeildar VRBO getur staðfest hvað þú þarft að gera á vefsvæði VRBO.

Ef VRBO samþykkir breytinguna gætirðu þurft að greiða meira ef verðið fyrir hana er hærra eða ef tryggingin og/eða þjónustugjaldið hækkar vegna hennar. Þjónustudeild VRBO mun staðfesta hvort þetta eigi við og ganga frá greiðslu í beinu samráði við þig. Ef breytingin verður til þess að upphæðin fyrir gistinguna lækkar mun þjónustudeild VRBO láta þig vita hvort þú eigir rétt á endurgreiðslu eða ekki. Kynntu þér skilmála VRBO og bókunar- og afbókunarreglur viðeigandi gististaðar til að fá frekari upplýsingar. Revolut hefur enga stjórn á því hvort VRBO samþykki breytingu/-ar sem þú óskar eftir, hvaða viðbótarskrefum þú þarft að ljúka til að tryggja breytinguna/-arnar og hvaða viðbótargreiðslna kann að vera krafist eða endurgreiðslna þú kannt að hafa rétt á.


Hvað gerist ef gististaður er ekki lengur laus?

Ef gististaður getur ekki lengur tryggt bókunina þína mun þjónustudeildin okkar hjálpa þér að finna annan gististað. Fulltrúi þjónustudeildarinnar mun hafa samband við þig í gegnum símtals- eða spjalleiginleikann í hjálparglugganum í Revolut-forritinu til að bjóða þér aðra valkosti. Ef þú samþykkir annan gististað munum við uppfæra bókunina þína og greiða mismuninn fyrir þig ef nýja upphæðin er hærri en það sem þú hefur þegar greitt (þú munt þó ekki fá fleiri RevPoints). Ef nýja upphæðin er lægri munum við hvorki endurgreiða þér mismuninn né afturkalla hann í RevPoints.

Ef þú valdir að greiða síðar þegar þú gekkst frá upprunalegu bókuninni þarftu að greiða nýju upphæðina hvort sem hún er hærri eða lægri og færð RevPoints í samræmi við hana.

Ef þú finnur ekki aðra hentuga gistingu í forritinu og velur að hætta við bókunina þína færðu endurgreitt, jafnvel þótt afbókunarfrestur gististaðarins sé liðinn, og við munum afturkalla RevPoints sem þú vannst þér inn.


Gististaðir á VRBO

Ef gististaðurinn sem þú bókaðir á VRBO er ekki laus lengur munum við láta þig vita og biðja þig um að hafa samband við þjónustudeild VRBO í gegnum tengilinn sem þú fékkst í bókunarstaðfestingunni frá VRBO. Þjónustudeild VRBO mun aðstoða þig við að finna annan gististað. Ef þér líst ekki á neina þá gististaði sem þjónustudeild VRBO býður þér geturðu hætt við bókunina og við munum þá endurgreiða þér að fullu, jafnvel þótt afbókunarfrestur gististaðarins sé liðinn. Við munum ekki leggja RevPoints inn á reikninginn þinn ef þú gistir ekki á gististað VRBO.


Hvað gerist ef hætt er við bókunina mína?

Ef við verðum vör við að þú fylgir ekki skilmálum Nuitee, Expedia eða VRBO (ef þú bókar gistingu á VRBO), bókunar- og afbókunarreglum viðeigandi gististaðar, þessum skilmálum eða persónulegum skilmálum Revolut-reikningsins þíns (saman „gildandi skilmálar“) áskiljum við okkur rétt til að fella bókunina þína niður. Í því tilviki áttu hvorki rétt á endurgreiðslu né RevPoints fyrir bókanir á því tímabili sem brot átti sér stað. Við höfum einnig rétt á því að afturkalla RevPoints sem við höfum lagt inn á reikninginn þinn fyrir bókanir ef brot var viðvarandi á tíma bókunarinnar eða þegar við lögðum RevPoints inn á þig.


Þetta þarftu að vita þegar þú bókar gistingu á VRBO

Með því að staðfesta greiðslu með Revolut-kortinu þínu fyrir gistingu á gististað VRBO samþykkirðu að greiða þjónustugjald, tryggingargjald (ef við á) vegna hugsanlegs tjóns og önnur tilfallandi gjöld (skilgreint sem „VRBO-trygging“ hér að ofan). Hámarksupphæð VRBO-tryggingarinnar verður sýnd í forritinu áður en þú staðfestir bókunina. Tryggingunni er ætlað að standa straum af tjóni sem kann að verða á gististað VRBO sem þú eða gestir þínir valda á meðan á dvölinni stendur og kostnaði við viðgerðir eða vinnu sem þarf til að bæta úr tjóninu. Í sumum tilvikum er ekki um neina VRBO-tryggingu að ræða en ef VRBO staðfestir að þú eða gestir þínir hafi valdið tjóni á gististaðnum á meðan á dvölinni stóð verður hugsanlega skuldfært á Revolut-kortið þitt (sem þú gafst upp við bókunina). Hámarksupphæðin sem hægt er að skuldfæra á Revolut-kortið þitt verður sýnd í forritinu áður en þú staðfestir bókunina.

Við lok þess mánaðar sem gistingunni lýkur í verða RevPoints lagðir inn á reikninginn þinn fyrir að bóka á VRBO. RevPoints er hlutfall upphæðarinnar sem þú greiddir fyrir gistingu á VRBO, að undanskildum viðeigandi gjöldum (t.d. þjónustugjaldi og/eða öðrum gjöldum vegna tjóns). Ef þú greiddir VRBO-trygginguna þegar þú staðfestir bókunina færðu hana endurgreidda nokkrum vikum eftir dvölina. Ef eigandi gististaðarins á VRBO tilkynnir VRBO um að þú eða gestir þínir hafi valdið tjóni á gististaðnum á meðan á dvölinni stóð og/eða gert eitthvað sem hefur önnur gjöld í för með sér munum við láta þig vita og upplýsa þig um:

  • hve mikið verður dregið af VRBO-tryggingunni sem þú greiddir þegar þú staðfestir bókunina og/eða hve mikið verður skuldfært af Revolut-kortinu þínu upp í heildarkostnað vegna tjónsins; eða
  • hve mikið verður skuldfært af Revolut-kortinu þínu til að dekka heildarkostnað vegna tjónsins ef þú greiddir ekki VRBO-tryggingu þegar þú staðfestir bókunina.

Þú hefur rétt á að andmæla kröfu um að þú hafir valdið tjóni á gististað á VRBO. Ef þú óskar eftir því skaltu hafa samband við þjónustudeild Revolut og leggja fram gögn máli þínu til stuðnings svo að við getum aðstoðað þig. Þegar þú gerir það munum við hafa samband við VRBO og deila upplýsingunum sem þú veittir okkur til að gera VRBO og eiganda gististaðarins á VRBO kleift að fara yfir málið. Við munum leitast eftir því að veita þér endanlegt svar eins fljótt og auðið er og munum upplýsa þig um þau sönnunargögn sem VRBO deilir með okkur varðandi málið. Ef við staðfestum að VRBO hafi breytt afstöðu sinni áttu rétt á því að fá VRBO-trygginguna þína til baka (ef þú greiddir hana þegar þú staðfestir bókunina) ásamt öllum öðrum greiðslum sem VRBO kann að hafa tekið af kortinu þínu.


Ábyrgðir

Með því að bóka gistingu í Revolut-forritinu staðfestirðu að upplýsingarnar sem þú veitir til að bóka gististaðinn séu réttar.


Leyfi til að vinna úr persónuupplýsingunum þínum í tengslum við gistingu

Þegar þú bókar gistingu í Revolut-forritinu ertu beðin(n) um að veita tilteknar upplýsingar til að staðfesta bókunina, svo sem samskiptaupplýsingarnar þínar, og aðrar viðeigandi upplýsingar svo að við getum bókað rétta herbergisgerð/gististað fyrir þig. Við þurfum að vinna úr þessum persónuupplýsingum og deila þeim með Nuitee, Expedia eða VRBO (ef þú bókar gististað á VRBO). Ef þú bókar gistingu og greiðir strax þarftu að veita eftirfarandi upplýsingar: fornafn og eftirnafn, fæðingardag og -ár, ríkisfang, símanúmer, netfang og heimilisfang greiðanda. Ef þú greiðir strax en um er að ræða gististað á VRBO deilum við einnig kortanúmerinu þínu, öryggisnúmeri og gildistíma kortsins. Ef þú bókar gistingu en ákveður að greiða síðar deilum við sömu upplýsingum með Nuitee eða Expedia auk kortanúmersins þíns, öryggisnúmersins og gildistíma kortsins.

Ef þú bókar gistingu fyrir fleiri en einn gest, þar með talið barn, gerum við einnig kröfu um að þú gefir upp aldur barnsins. Ef þú vilt óska eftir tiltekinni herbergisgerð eða aðstöðu á gististaðnum gætum við einnig beðið um frekari upplýsingar á bókunareyðublaðinu í forritinu, svo sem hvort þú þurfir hjólastólaaðgengi, hvers konar svefnaðstöðu þú þarfnast og hvort þú kjósir heldur reyk- eða reyklaust herbergi. Hafðu í huga að við getum ekki ábyrgst að herbergið uppfylli óskir þínar þar sem þær eru háðar framboði og samþykki gististaðarins.

Við deilum öllum persónuupplýsingum með Nuitee, Expedia eða VRBO á dulkóðuðu sniði til að tryggja öryggi þeirra.

Nuitee, Expedia og VRBO þurfa einnig að deila persónuupplýsingunum þínum og gögnum korthafa (ef við á) með gististaðnum sem þú valdir. Lestu skilmála og persónuverndarstefnu Nuitee, Expedia og VRBO til að fá frekari upplýsingar um hvaða persónuupplýsingum er deilt með gististað sem þú bókar og hvernig öryggis þeirra er gætt.

Ef gististaður sem þú hefur bókað er ekki laus lengur og fulltrúi þjónustudeildar okkar þarf að aðstoða þig við að finna nýja gistingu mun hann hafa samband við þig í gegnum símtals- eða spjalleiginleikann í hjálparglugganum í Revolut-forritinu. Þjónustudeildin okkar mun vinna úr öllum persónuupplýsingum sem þú veitir okkur í ferlinu og deila þeim með Nuitee, Expedia eða VRBO til að staðfesta nýju bókunina. Nuitee, Expedia eða VRBO þurfa síðan að deila persónuupplýsingunum þínum með rekstraraðila nýja gististaðarins til að undirbúa komu þína. Ef þjónustudeildin okkar þarf að hringja í þig til að ræða við þig um aðra gistikosti kann símtalið að vera tekið upp í þjálfunarskyni. Það þýðir að við geymum samtalið í kerfum okkar en aðeins eins lengi og nauðsynlegt er til að þróa samskipti okkar við viðskiptavini í tengslum við gistingu.

Ef þú bókaðir gististað á VRBO sem er ekki laus lengur mun þjónustudeild VRBO sjá beint um málið í samráði við þig og þar af leiðandi gildir persónuverndarstefna VRBO um úrvinnslu persónuupplýsinganna þinna.

Við kunnum einnig að vinna úr persónuupplýsingum þínum ef þú leggur fram kvörtun (sjá hlutann hér að neðan) eða deilir reynslu þinni af notkun eiginleikans „Gisting“. Við munum vinna úr þessum upplýsingum til að reyna að leysa úr þeim vandamálum sem þú kannt að hafa gefið til kynna og til að bæta eiginleikann.

Revolut mun vinna úr öllum persónuupplýsingum sem fengnar eru vegna notkunar þinnar á eiginleikanum „Gisting“ í samræmi við persónuverndaryfirlýsinguna sem gildir um Revolut-reikninginn þinn.


Óánægð(ur) með eiginleikann „Gisting“?

Ef þú ert ekki ánægð(ur) með þjónustuna sem þú fékkst í tengslum við notkun eiginleikans „Gisting“, hvort sem þú bókaðir gistingu eða ekki, munum við gera okkar besta til að bæta úr því innan þeirra marka sem við erum fær um það. Ef þú vilt leggja fram kvörtun varðandi eiginleikann „Gisting“ eða bókunarupplifunina skaltu hafa samband við þjónustudeildina. Við munum fara yfir kvörtunina þína og reyna að leysa málið í gegnum tölvupóst eins fljótt og auðið er. Kvörtunin mun beinast að Revolut Ltd sem veitanda eiginleikans, jafnvel þótt Revolut-reikningurinn þinn sé skráður hjá öðrum Revolut-aðila.

Ef kvörtunin þín tengist undirliggjandi greiðsluþjónustu sem þú greiddir fyrir gistingu í gegnum skaltu einnig hafa samband við þjónustudeildina og láta hana vita. Sú kvörtun mun beinast að Revolut-aðilanum sem Revolut-reikningurinn þinn er skráður hjá. Ef þú ert óánægð(ur) með hvernig við bregðumst við kvörtuninni þinni geturðu vísað málinu til umboðsmanns fjármálaþjónustu (Financial Ombudsman Service) ef þú ert viðskiptavinur Revolut Ltd eða til Seðlabanka Litáens (Bank of Lithuania) ef þú ert viðskiptavinur Revolut Bank UAB. Frekari upplýsingar um kvartanir vegna greiðsluþjónustu er að finna í persónulegum skilmálum og öðrum sérstökum skilmálum sem gilda um Revolut-greiðslureikninginn þinn.

Þér til upplýsingar getur Revolut Ltd aðeins brugðist við kvörtunum sem varða þá þjónustu sem við veitum þér, svo sem:

  • ferlið við að velja og bóka gistingu;
  • umsjón með greiðslum fyrir gistingu þegar „greiða núna“ er valið og umsjón með endurgreiðslu eða afbókun þar sem þess er krafist (þó að Revolut-aðilinn sem reikningurinn þinn er skráður hjá sjái um úrvinnslu þessara greiðslna);
  • sendingu upplýsinga þinna til Nuitee, Expedia eða VRBO í því skyni að staðfesta bókanir eða breyta þeim;
  • samskipti við þig til að aðstoða þig við að bóka aðra gistingu ef sú upprunalega er ekki lengur laus; og
  • umsjón með kvörtunum sem þú hefur varðandi gististað á Nuitee, Expedia eða VRBO fyrir þína hönd.

Ef þú vilt leggja fram kvörtun varðandi eiginleikann „Gisting“, bókunarferlið eða upplifun þína af eiginleikanum skaltu hafa samband við þjónustudeildina. Þjónustudeildin kann að vísa þér áfram á Nuitee, Expedia, rekstraraðila gististaðarins eða VRBO eftir því hvers konar gistingu þú bókaðir og eðli kvörtunarinnar.


Að höfða mál gegn Revolut í tengslum við „Gisting“

Þessir skilmálar falla undir lög í Englandi og Wales. Þrátt fyrir það geturðu borið fyrir þig lögboðnar reglur um neytendavernd í landinu þar sem þú býrð. Ef þú vilt höfða mál gegn Revolut fyrir dómstólum er aðeins hægt að reka mál sem tengjast þessum skilmálum fyrir dómstólum í Englandi. Ef þú býrð í öðru landi en Bretlandi getur þú mögulega gripið til annarra aðgerða fyrir dómstólum í þínu búsetulandi.

Ef þú vilt höfða mál gegn Revolut-aðilanum sem Revolut-greiðslureikningurinn þinn er skráður hjá vegna undirliggjandi greiðsluþjónustu sem þér er veitt í tengslum við eiginleikann „Gisting“ geturðu höfðað mál fyrir dómstólum í Englandi og Wales ef þú ert viðskiptavinur Revolut Ltd eða fyrir dómstólum í Lýðveldinu Litáen (eða í landi þar sem þú hefur lögboðin réttindi til að höfða mál samkvæmt þessum skilmálum) ef þú ert viðskiptavinur Revolut Bank UAB.

Ef þú vilt höfða mál gegn Nuitee, Expedia eða VRBO skaltu kynna þér skilmála Nuitee, Expedia eða VRBO til að fá upplýsingar um réttindi þín.


Breytingar á þessum skilmálum

Við áskiljum okkur rétt til að breyta þessum skilmálum hvenær sem er og munum reyna að upplýsa þig fyrir fram ef mögulegt er.


Ensk útgáfa þessara skilmála gildir umfram aðrar útgáfur

Heimilt er að þýða þessa skilmála yfir á önnur tungumál. Ensk útgáfa þessara skilmála gildir umfram þýddar útgáfur ef misræmi kemur upp.