Skilmálar fyrir Verslanir

1. Hvers vegna þessar upplýsingar eru mikilvægar

Þessir skilmálar („skilmálarnir“) gilda um sambandið á milli:

  • þín; og
  • okkar, Revolut Ltd.

Þeir gilda þegar þú notar Revolut-forritið („forritið“) til að fá aðgang að þjónustunni sem við nefnum Verslanir („þjónustan“). Þjónustan er aðeins í boði fyrir suma notendur á sumum markaðssvæðum og ef hún birtist ekki í forritinu hjá þér er hún ekki í boði á þínu svæði.

Til að nota þjónustuna verður þú að vera með virkan persónulegan reikning hjá einu af fyrirtækjanna í fyrirtækjasamstæðu Revolut, án takmarkana.

Allar greiðslur sem þú innir af hendi eða færð greiddar með persónulegum reikningi þínum þegar þú notar Verslanir falla undir skilmálana sem þú samþykktir fyrir þann reikning hjá því fyrirtæki í fyrirtækjasamstæðu Revolut sem hefur umsjón með reikningnum. Það er þó rétt að þú hafir í huga að Verslanir er þjónusta sem fellur ekki undir reglugerðir.


2. Hvað er Verslanir?

Verslanir veita aðgang að ýmsum tilboðum í forritinu („tilboðin“). Þetta geta verið endurgreiðslur, afslættir og önnur tilboð.

Tilboðin eru aðeins í boði fyrir kaup sem gerð eru hjá völdum söluaðilum („söluaðilar“) sem tilgreindir eru í hlutanum Verslanir í Revolut-forritinu.

Hvert tilboð fellur einnig undir sína eigin skilmála í forritinu þar sem fram kemur hvert tilboðið er, hvaða greiðslumáta þarf að nota til að geta nýtt sér tilboðið og aðrar ráðstafanir sem þarf að gera („tilboðsskilmálar“). Við getum breytt tilboðunum og tilboðsskilmálunum hvenær sem er.


3. Hvernig getur þú nýtt þér tilboð í Verslunum?

Þú getur nýtt þér tilboð með því að Versla við söluaðila í hlutanum Verslanir í Revolut-forritinu og fylgja tilboðsskilmálunum og öðrum leiðbeiningum sem birtast í forritinu.

Lestu tilboðsskilmálana og leiðbeiningarnar í forritinu vandlega og gakktu úr skugga um að þú gerir allt sem þarf til að þú getir nýtt þér tilboðið. Ef þú gerir það ekki færðu ekki tilboðið.

Til að þú getir nýtt þér fyrir tilboð þarftu að ganga frá kaupunum (innan hvaða tímamarka sem er). Í flestum tilvikum verður færslunni lokið samstundis. Í sumum tilvikum getur það þó tekið lengri tíma (til dæmis ef söluaðili skuldfærir kortið þitt þegar varan sem þú keyptir er send, en ekki þegar gengið er frá kaupum á greiðslusíðunni).

Þú getur nýtt þér tilboð oftar en einu sinni nema annað sé tekið fram í tilboðsskilmálunum. Þú þarft hins vegar að endurtaka alla tilboðsskilmálana og leiðbeiningarnar fyrir hverja færslu fyrir sig.

Ef kaup þín hjá söluaðila fela í sér margar stakar færslur (til dæmis „kaupa núna, borga seinna“ þjónustu eða áskrift) getur þú aðeins nýtt þér tilboð fyrir þær færslur sem hver fyrir sig uppfyllir tilboðsskilmála og leiðbeiningar. Í flestum tilvikum verður þetta aðeins fyrsta færslan.

Hámark mánaðarlegrar endurgreiðslu

Heildarendurgreiðslan sem þú getur fengið í öllum Verslunum getur að hámarki verið 300 EUR (eða samsvarandi upphæð í þínum gjaldmiðli) í einum mánuði. Endurgreiðsla sem fer yfir þessi mörk verður ekki greidd.


4. Hvaða kaup eru gjaldgeng fyrir tilboð?

Gjaldgeng kaup eru öll staðfest kaup á vörum og þjónustu sem gerð eru í samræmi við viðeigandi tilboðsskilmála.

Staðfest kaup á vörum og þjónustu merkir kaup þar sem þú ætlar raunverulega að nota vörurnar eða þjónustuna (t.d. eru kaup með reiðufjárgerningi eða kaup sem þú ætlar að selja fyrir reiðufé undanskilin) og munt raunverulega nota (t.d. eru ávöxtun, endurgreiðslur og áframsala undanskilin).

Jafnvel þótt þú fáir tilboð verður tilboðið hugsanlega afturkallað ef við teljum að:

  • þú hafir framkvæmt kaup sem voru ekki gjaldgeng eða staðfest;
  • kaupin hafi verið gerð með tilboðskóða sem var ekki frá okkur;
  • þú hafir brotið gegn þessum skilmálum eða öðrum skilmálum sem þú hefur samið um við okkur eða annað fyrirtæki í fyrirtækjasamstæðu Revolut;
  • þú hafir misnotað þjónustuna Verslanir; eða
  • þú hafir valdið okkur, eða öðru fyrirtæki í Revolut-samstæðunni, lagalegum, reglugerðarlegum, samskiptalegum eða orðsporslegum skaða með því að veita þér þjónustuna Verslanir.


5. Hvenær færðu tilboðið þitt?

Öll tilboð í Verslunum ættu að berast samstundis nema kveðið sé á um annað í tilboðsskilmálunum. Í sumum tilvikum geta liðið allt að sjö dagar þar til tilboðið birtist á reikningnum þínum. Ef tilboðið hefur ekki birst á reikningnum að sjö dögum liðnum skaltu hafa samband við þjónustuverið okkar í gegnum spjalleiginleikann í forritinu.


6. Hverjir eru söluaðilarnir?

Söluaðilarnir sem eru tilgreindir í Verslunum eru allir þriðju aðila söluaðilar. Við erum í viðskiptasambandi við suma þessara söluaðila, en ekki alla. Þetta þýðir að við getum fjármagnað tilboð fyrir söluaðila án þess að vera í neinum tengslum við hann.

Hvernig og hvar söluaðilar eru birtir í eiginleikanum Verslanir er ákvarðað af okkur á grundvelli mismunandi þátta. Við fáum hugsanlega greiðslu eða þóknun frá söluaðila, sem getur haft áhrif á það hvar tilboðin birtast í forritinu.

Rétt er að taka fram að Revolut Ltd er ekki „seljandi“ eða með öðrum hætti ábyrgt eða skaðabótaskylt á nokkurn hátt vegna vöru eða þjónustu sem þú kýst að kaupa í kjölfar tilboðs. Ef vandamál koma upp sem tengjast vöru eða þjónustu sem keypt er skaltu leita til söluaðilans með þau.

Við höfum heldur enga stjórn á, og tökum enga ábyrgð á, neinu sem tengist efni eða innihaldi á vefsvæði söluaðila.


7. Ertu óánægð(ur) með Verslanir?

Ef þú ert ekki ánægð(ur) með þjónustuna sem þú fékkst í gegnum Verslanir munum við gera okkar besta til að bæta úr því, þar sem sú þjónusta er rekin af okkur. Ef þú hefur kvörtun varðandi Verslanir skaltu hafa samband við þjónustuver og láta vita að þú viljir leggja fram kvörtun gegn Revolut Ltd sem þjónustuveitanda fyrir Verslanir. Við munum skoða kvörtunina þína og reyna að leysa úr málinu með tölvupósti eins fljótt og auðið er.


8. Gagnavernd

Með því að nota Verslanir samþykkir þú að samstarfsaðilar okkar, svo sem markaðstorg sem tengja saman auglýsendur og söluaðila og þeir sem sjá um slík markaðstorg, komi kökum og annarri rakningartækni fyrir í tækinu þínu. Þetta er svo notað til að rekja það hvort þú kaupir hjá söluaðilanum.Þessir samstarfsaðilar fá einnig aðgang að takmörkuðum upplýsingum sem tengjast viðskiptum þínum og þínu tæki (svo sem ópersónugreinanlegu notandaauðkenni, keyptri vöru, söluandvirði o.s.frv.) í tengslum við þjónustu sína við okkur. Við þurfum að eiga samstaf við þessa samstarfsaðila til að geta boðið þér tilboð í Verslunum samkvæmt þessum skilmálum.

Við munum einnig deila takmörkuðum gögnum með söluaðilum. Þar má einkum nefna:

  • Við munum deila dulnefndum færslugögnum sem tengjast gjaldgengum kaupum hjá viðkomandi söluaðila til að staðfesta að þú hafir gert gjaldgeng kaup hjá viðkomandi. Við ítrekum að við þurfum að gera þetta til að geta boðið þér tilboð í Verslunum samkvæmt þessum skilmálum.
  • Í sumum tilvikum deilum við dulnefnum gögnum með söluaðilum til að hjálpa þeim að mæla árangur tilboða sinna. Við gerum þetta á grundvelli lögmætra hagsmuna okkar (þ.e. að bjóða upp á samkeppnishæfa vöru).

Frekari upplýsingar um úrvinnslu okkar á persónuupplýsingum er að finna í tilkynningu okkar um persónuvernd viðskiptavina (aðgengileg hér).


9. Lagaleg atriði

1. Við kunnum að breyta þessum skilmálum án fyrirvara en við reynum að láta þig vita fyrirfram ef við þess er kostur.

2. Aðeins þú og við höfum réttindi samkvæmt þessum skilmálum. Þú getur ekki framselt réttindi þín eða skyldur samkvæmt þessum skilmálum til annarra.

3. Okkur er heimilt að yfirfæra öll réttindi þín og skyldur okkar samkvæmt þessum skilmálum til þriðja aðila, en aðeins ef við teljum að það hafi ekki veruleg neikvæð áhrif á réttindi þín samkvæmt þessum skilmálum eða þegar slíkt reynist nauðsynlegt til að hægt sé að fylgja kröfum í gildandi lögum og reglugerðum.

4. Við munum hugsanlega stöðva notkun á vörum og þjónustu gegnum Verslanir ef við teljum ástæðu til að ætla að vörur eða þjónusta hafi verið misnotuð eða að notkunin gæti haft neikvæð áhrif á viðskiptavild eða orðspor Revolut. Við gerum þetta hugsanlega í hverju landi fyrir sig eða fyrir vöruna í heild.

5. Við munum hugsanlega að biðja þig um sönnun fyrir því að kaup sem þú hefur gert séu í samræmi við þessa skilmála eða að þú eigir rétt á að fá tilboð í Verslanir.

6. Við munum hugsanlega bjóða upp á þýðingar á þessum skilmálum. Ef þessir skilmálar eru þýddir á annað tungumál er þýðingin aðeins til viðmiðunar og enska útgáfan skal gilda.

7. Lög í Englandi og Wales gilda um þessa skilmála. Ef þú vilt höfða mál gegn okkur fyrir dómstólum er aðeins hægt að reka mál sem tengjast þessum skilmálum fyrir dómstólum í Englandi og Wales. Ef þú býrð í öðru landi en Bretlandi getur þú mögulega gripið til annarra aðgerða fyrir dómstólum í þínu búsetulandi.

8. Ef þú hefur brotið gegn þessum skilmálum og við framfylgjum ekki réttindum okkar samkvæmt þessum skilmálum eða seinkum framfylgd þeirra mun það ekki koma í veg fyrir að við framfylgjum þeim réttindum eða öðrum réttindum síðar. Þetta á einnig við um hvers konar önnur lagaleg réttindi sem við framfylgjum ekki samstundis.