Products

Skilmálar Revolut-gjafakorta

1. Hvaða skjal er þetta?

Þetta skjal (skilmálar Revolut-gjafakorta / skilmálar) er lagalegur samningur milli þín og Revolut-aðilans (Revolut/við/okkur) sem tryggir þér RevPoints, fyrir Revolut-gjafakortin (Revolut-gjafakortin).


Skilyrði fyrir því að þú getir keypt Revolut-gjafakort eru að (i) vera með Revolut-reikning og (ii) vera RevPoints-notandi. Persónulegu skilmálarnir og RevPoints-skilmálarnir gilda einnig alltaf þegar þú notar Revolut-gjafakort.


2. Hvað er Revolut-gjafakort?

Þú getur fengið Revolut-gjafakort og fengið endurgreiddar hvers kyns greiðslur til söluaðila sem boðið er upp á endurgreiðslu fyrir í Revolut-appinu (söluaðilarnir) í þeim gjaldmiðlum sem eru í boði með því að innleysa RevPoints.


Revolut-gjafakort virkar þannig að andvirði þess er millifært inn á reikninginn þinn eftir að þú hefur gengið frá kaupum hjá söluaðila.


3. Hvernig nota ég Revolut-gjafakort?

Þegar þú hefur fengið Revolut-gjafakort getur þú verslað strax hjá söluaðila með því að nota Revolut-kortið þitt. Þegar þú hefur gengið frá kaupunum færðu endurgreiðslu að andvirði Revolut-gjafakortsins upp að andvirði kaupanna​​ inn á Revolut-reikninginn þinn.


Til að tryggja að kaup séu gjaldgeng fyrir Revolut-gjafakortið þitt þarftu að hafa næga upphæð inni á Revolut-reikningnum þínum til að dekka heildarupphæð greiðslunnar.


Endurgreiðsla er aðeins í boði upp að andvirði Revolut-gjafakortsins ef kaupin hjá söluaðila eru í sama gjaldmiðli og Revolut-gjafakortið og þú kaupir með þínu persónulega Revolut-korti.


Ef upphæð kaupa þinna hjá söluaðila eru undir heildarupphæð Revolut-gjafakortsins getur þú notað það í fleiri kaup fyrir eftirstandandi upphæð hjá sama söluaðila.


Ef þú átt fleiri en eitt Revolut-gjafakort fyrir sama söluaðila munum við nota elsta Revolut-gjafakortið fyrst.


4. Rennur Revolut-gjafakort út?

Revolut-gjafakort gildir í eitt ár frá þeim degi sem þú færð það afhent.


5. Hvenær getum við breytt þessum skilmálum?

Við getum gert breytingar á þessum skilmálum hvenær sem er. Ef við gerum verulegar breytingar kunnum við að tilkynna þér það fyrirfram.


6. Kvartanir

Ef þú ert óánægð(ur) með þjónustu okkar reynum við að bregðast við því. Hafðu samband við okkur í hlutanum „Hjálp“ í Revolut-appinu, sendu okkur tölvupóst á formalcomplaints@revolut.com eða fylltu út þetta eyðublað. Frekari upplýsingar er að finna í reglum okkar um kvartanir.


7. Gögnin þín

Frekari upplýsingar um hvernig Revolut vinnur persónuupplýsingarnar þínar er að finna í persónuverndaryfirlýsingu okkar fyrir viðskiptavini.


8. Lagaleg atriði



Upplýsingar um fyrirtæki og regluverk

Revolut Bank UAB er banki sem er skráður og með starfsleyfi í lýðveldinu Litháen, með fyrirtækjanúmerið 304580906, leyfisnúmerið LB002119 og skráða skrifstofu á Konstitucijos ave. 21B, 08130 Vilníus, Litháen.

Gildandi lög

Þessi samningur fellur undir litháísk lög.

Deilur

Dómstólar í Litháen hafa lögsögu yfir ágreiningi sem upp kann að koma á milli okkar.

Framfylgdarkostnaður

Við kunnum að skuldfæra á Revolut-reikninginn þinn fyrir eðlilegum kostnaði við að framfylgja þessum skilmálum. Slíkur kostnaður kann að fela í sér kostnað við að vakta þig, innheimtukostnað og lögfræðikostnað. Gjalddagi þessa kostnaðar og greiðsla eru tafarlaus.

Samningurinn í heild sinni

Þessir skilmálar, ásamt persónulegu skilmálunum, RevPoints og öllum öðrum skilmálum sem eru felldir inn í þessi skjöl með tilvísun, teljast heildstæður samningur á milli þín og Revolut í tengslum við Revolut-gjafakortin. Til að taka af allan vafa eru algengar spurningar ekki hluti af samningi okkar við þig.

Réttur okkar til að framfylgja þessum skilmálum

Ef þú hefur brotið gegn einhverjum skilmálum þessa samnings og við nýtum ekki réttindi okkar samstundis áskiljum við okkur rétt til að nýta þau síðar.

Þessir skilmálar eru aðskiljanlegir

Ef eitthvað í þessum skilmálum verður úrskurðað ólögmætt skulu aðrir hlutar skilmálanna halda gildi sínu þrátt fyrir það.

Bótaábyrgð

Að því marki sem lög leyfa berum við ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tapi eða tjóni sem þú verður fyrir vegna einhvers sem við höfum ekki stjórn á eða aðstæðna sem eru óhjákvæmilegar þrátt fyrir viðeigandi aðgát af okkar hálfu. Þetta geta til dæmis verið bilanir hjá þriðja aðila, íhlutun eða skyldur samkvæmt lögum eða regluverki og vandamál tengd vélbúnaði eða hugbúnaði. Við berum aðeins ábyrgð á fyrirsjáanlegu tapi. Ef við brjótum gegn þessum skilmálum berum við aðeins ábyrgð á tjóni sem við hefðum getað séð fyrir þegar við samþykktum þessa skilmála. Við berum ekki ábyrgð á óbeinu tapi sem þú verður fyrir í tengslum við RevPoints sem þú átt, til dæmis: glötuðum tækifærum, glötuðum viðskiptum eða glötuðum hagnaði.

Greiðsla til söluaðila

Öll kaup í gegnum þessa Revolut-gjafakortaþjónustu þarft þú að greiða beint til söluaðilans með eigin fjármunum og þeim greiðslumáta sem þú valdir. Revolut er hvorki aðili að, né ber ábyrgð á, undirliggjandi greiðslu milli þín og söluaðilans.


Eina skylda okkar er að endurgreiða þér andvirði Revolut-gjafakortsins í samræmi við þessa Revolut-gjafakortaskilmála. Endurgreiðslan er aðskilin frá og óháð greiðslunni til söluaðilans.