Products

Skilmálar Make

A. Revolut Ltd býður þetta tilboð (nr. 08804411, með skráð heimilisfang að 30 South Colonnade, London E14 5HX, Bretlandi) og veitir þér aðgang að Make Pro.


B. Til að innleysa þetta tilboð verður þú að fylgja eftirfarandi skrefum:

a. Opnaðu Pro-reikninginn þinn og flettu niður þar til þú sérð „Verkfæri“

b. Veldu „Pro-fríðindi“

c. Veldu Make og lestu hvað þarf að gera til að innleysa tilboðið

d. Pikkaðu á „Opna Make“ til að innleysa tilboðið. Þú getur líka óskað eftir að fá tilboðið sent með tölvupósti til að innleysa það. Þér verður vísað á virkjunarsíðu Make til að innleysa tilboðið

e. Skráðu þig sem nýjan notanda til að innleysa tilboðið

i. Ef þú ert þegar notandi með lægri áskrift en „Make Pro“ skaltu senda eyðublaðið með upplýsingum þínum til að fá afsláttarmiðann þinn, sem þú getur sótt um í flipanum „Áskrift“ undir „Mín áætlun“ á Make-reikningnum þínum.


C. Þetta tilboð er eins og nefnt er hér að neðan og gildir í þann tíma sem tilgreindur er hér að neðan

a. Fyrir nýja notendur

i. 2 ókeypis mánuðir af Make Pro

ii. 35% afsláttur af ársáskrift að Make Pro sem gildir í 30 daga eftir að tveggja mánaða ókeypis tímabili lýkur.

b. Fyrir núverandi notendur með lægri áskrift en Make Pro

i. 2 ókeypis mánuðir af Make Pro


D. Þetta tilboð er ókeypis í Bretlandi og EES-löndum þar sem Revolut Pro er í boði fyrir nýja notendur í Make eða sem þegar eru notendur og eru með greidda áskrift lægri en Make Pro.


E. Ekki er hægt að framselja tilboðið eða safna tilboðum upp og ekki er hægt að skipta tilboðinu í reiðufé eða aðrar vörur hjá Revolut eða Make.


F. Tilboðið er aðeins til afnota í viðskiptalegum tilgangi fyrir gjaldgenga notendur Revolut Pro. Hægt er að sjá gjaldgeng tilboð í Revolut-forritinu.


G. Tilboðið er aðeins í boði fyrir viðskiptavini Revolut Pro sem eru með Revolut Pro-reikning án takmarkana. Við gætum fjarlægt aðgang þinn að tilboðinu ef takmarkanir eru settar á Revolut Pro-aðganginn þinn.


H. Nota verður tilboð í samræmi við skilmála Make: https://www.make.com/en/terms-and-conditions.


I. Revolut er ekki þjónustuveitandi Make og ber ekki ábyrgð á bilunum, villum eða gagnatapi af völdum Make. Þú stofnar til samningssambands við Make við notkun á þjónustu þess. Ef vandamál koma upp í tengslum við Makereikninginn skaltu hafa samband við þjónustudeild Make.


J. Fríðindi eða afsláttur fyrir viðskiptatæki getur haft skattaleg áhrif í för með sér (t.d. aðstoð eða lækkun frádráttarbærs kostnaðar). Þú berð alla ábyrgð á að gefa slíkt upp á skattframtali þínu.


K. Við getum breytt tilboðinu eða afturkallað það hvenær sem er, til dæmis ef Make slítur samstarfinu eða breytir skilmálum tilboðsins. Við munum reyna að veita þér hæfilegan fyrirvara ef mögulegt er en tilboð gætu verið afturkölluð samstundis ef samstarfsaðilinn fer fram á það.