1. Hvers vegna þessar upplýsingar eru mikilvægar
Þetta skjal („skilmálarnir“) inniheldur notkunarskilmála fyrir eiginleika áskriftarmeðlima. Þessir skilmálar, ásamt persónulegum skilmálum, skilmálum greiddrar áskriftar, gjaldasíðum og öllum öðrum skilmálum sem eiga við um þjónustu okkar, mynda lagalegan samning á milli:
- viðskiptavinarins („þú“ eða „þig“), sem annaðhvort:
- Viðskiptavinur Revolut með greidda áskrift sem bætir öðrum viðskiptavini við greiddu áskriftina sína og greiðir tilheyrandi áskriftargjöld bæði fyrir sig og fyrir þann viðskiptavin (í þessum skilmálum köllum við viðkomandi „stjórnanda“); eða
- Viðskiptavinur með Revolut-notandareikning sem samþykkir boð frá stjórnandanum um að hefja greidda áskrift eins og tilgreint er í slíku boði (í þessum skilmálum köllum við þennan aðila „meðlim“); og
- Revolut-aðilinn sem veitir þér Revolut-notandareikninginn þinn, eins og tilgreint er í persónulegu skilmálunum sem þú hefur samþykkt („við“, „okkur“, „okkar“ eða „Revolut-aðili“).
Ef ósamræmi er á milli þessara skilmála og persónulegu skilmálanna, skilmála greiddrar áskriftar eða gjaldasíðnanna, skulu þessir skilmálar gilda um málefni sem varða eiginleika áskriftarmeðlima.
2. Hvað er „eiginleiki áskriftarmeðlima“?
Eiginleiki áskriftarmeðlima er valfrjáls viðbótarávinningur sem er í boði fyrir viðskiptavini með Revolut-notendareikninga sem eru með greidda áskrift.
Hann gerir stjórnanda kleift að kaupa meðlimapláss í Revolut-forritinu. Hægt er að nota þetta pláss til að bjóða meðlimi að skrá sig í greidda áskrift þar sem áskriftargjaldið er greitt af stjórnanda. Stjórnandinn og meðlimurinn munu áfram hafa sína eigin, aðgreindu Revolut-notandareikninga sem eru aðskildir og óháðir hvor öðrum. Þetta þýðir að ávinningum, eiginleikum, heimildum eða reikningsupplýsingum er ekki deilt á milli stjórnanda og meðlims.
3. Hvernig virkar „áskriftarmeðlimir“?
Stjórnandinn sendir meðlimi boð í gegnum Revolut-forritið fyrir hvert keypt meðlimapláss sem er ekki þegar tekið af öðrum meðlimi. Með því að samþykkja boðið samþykkir meðlimurinn þessa skilmála, skilmála greiddrar áskriftar og viðeigandi gjaldasíður sem tilgreindar eru í boðinu. Meðlimurinn samþykkir skýlaust að áskriftargjöld fyrir slíka greidda áskrift séu upphaflega greidd af stjórnandanum sem utanaðkomandi ávinningur, en að meðlimurinn beri áfram ábyrgð á áskriftargjöldum og gjöldum fyrir snemmbúna uppsögn ef ávinningi áskriftarmeðlima lýkur.
Stjórnandinn greiðir áskriftargjald með afslætti fyrir meðlimaplássið (í þessum skilmálum köllum við þetta „stjórnandagjald“). Stjórnandinn og meðlimurinn bera hvor um sig ábyrgð á öllum aukagjöldum sem falla til á þeirra eigin reikningum. Frekari upplýsingar um gjöld er að finna á gjaldasíðunum okkar.
Stjórnandagjaldið verður gjaldhæft þegar stjórnandinn kaupir meðlimaplássið. Þetta telst vera frátekning á fjölda meðlima, jafnvel þótt enginn meðlimur hafi samþykkt boð. Eiginleiki áskriftarmeðlima mun halda áfram að endurnýjast og stjórnandagjaldið verður áfram skuldfært á stjórnanda, nema stjórnandi sendi okkur tilkynningu um uppsögn í Revolut-forritinu. Ef meðlimapláss er ófyllt munum við tilkynna stjórnanda það með tölvupósti og/eða í forritinu. Ef plássið er ófyllt í 60 daga í röð munum við láta stjórnanda vita, fella plássið niður sjálfkrafa og endurgreiða að fullu það tímabil.
Hæfi og boð
Til að vera gjaldgengur sem stjórnandi eða meðlimur samkvæmt þessum skilmálum verður þú að uppfylla ákveðin skilyrði.
Sem stjórnandi verður þú að:
- vera fullskráður viðskiptavinur með Revolut-notandareikning;
- vera búsettur í sama landi og fá þjónustu hjá sama Revolut-aðila og meðlimurinn; og
- vera með virka greidda áskrift.
Sem meðlimur verður þú að:
- vera fullskráður viðskiptavinur með Revolut-notandareikning;
- vera búsettur í sama landi og fá þjónustu hjá sömu Revolut-einingu og stjórnandinn; og
- vera annaðhvort í staðlaðri áskrift eða í sama eða lægra þrepi greiddrar áskriftar og greidd áskrift stjórnanda.
Meðlimurinn hefur 14 daga til að samþykkja eða hafna boði frá móttöku þess, en að þeim tíma liðnum rennur það út og verður ekki lengur gilt. Stjórnandi getur afturkallað boð sem bíður samþykkis hvenær sem er innan þessara 14 daga.
Stjórnandinn getur einnig fjarlægt meðliminn úr eiginleika áskriftarmeðlima hvenær sem er og sent út nýtt boð til annars hæfs meðlims að eigin vali.
Við kunnum að takmarka það hversu oft stjórnandinn getur skipt um meðlim – til dæmis við 3 meðlimi að hámarki fyrir hvert pláss á hvaða 12 mánaða tímabili sem er. Aðeins samþykkt boð telja upp í þessa takmörkun. Þessar takmarkanir verða greinilega birtar í Revolut-forritinu.
Ef stjórnandinn segir upp innan 14 daga frá virkjun á eiginleika áskriftarmeðlima fær stjórnandinn fulla endurgreiðslu á innheimtu stjórnandagjaldi. Eftir þennan tíma fær stjórnandinn:
- fulla endurgreiðslu ef plássið hefur aldrei verið fyllt; eða
- hlutfallslega endurgreiðslu ef plássið hefur verið fyllt að minnsta kosti einu sinni sem er reiknuð út frá ónotuðum hluta núverandi reikningstímabils.
Aðgerð stjórnanda
Ef stjórnandinn:
- segir upp eiginleika áskriftarmeðlima;
- hættir að vera viðskiptavinur með Revolut-notandareikning eða reikningur hans er læstur eða takmarkaður; eða
- fjarlægir meðliminn úr eiginleika áskriftarmeðlima,
meðlimurinn mun sjálfkrafa missa ávinninginn af því að stjórnandinn greiði stjórnandagjaldið. Ef þetta gerist mun meðlimurinn:
- fá tilkynningu í tölvupósti og/eða í Revolut-forritinu;
- hafa áfram ókeypis aðgang að greiddri áskrift sinni í 14 daga (við köllum þetta „uppsagnarfrest“); og
- verða rukkaður sjálfkrafa þegar uppsagnarfresturinn fyrir greiddu áskriftina sem hann samþykkti við skráningu í meðlimapláss rennur út, nema hann afþakki á uppsagnarfrestinum.
Þessi yfirfærlsa tryggja að meðlimurinn haldi ótrufluðum aðgangi að núverandi ávinningi áskriftarleiðar sinnar (svo sem ferðatryggingavernd). Ef þú sem meðlimur vilt frekar skipta yfir í staðlaða áskrift skaltu muna að afskrá þig innan uppsagnarfrestsins.
Þegar meðlimurinn er sjálfkrafa rukkaður fyrir greidda áskrift sína munu full áskriftargjöld sem koma fram á gjaldasíðunum gilda í stað stjórnandagjaldsins sem stjórnandinn greiddi áður. Meðlimurinn hefur 14 daga frá þeim degi sem fyrsta gjaldið fyrir greidda áskrift er innheimt til að færa sig niður um áskriftarleið gjaldfrjálst, en eftir það eiga hefðbundin uppsagnargjöld við, eins og fram kemur í skilmálum greiddrar áskriftar. Við munum reikna út öll viðeigandi uppsagnargjöld frá þeim degi sem meðlimurinn samþykkir boð stjórnandans.
Ef meðlimurinn segir upp greiddri áskrift sinni innan 14 daga frá því að hann samþykkir boðið eða er rukkaður um gjaldið fyrir greidda áskrift verður hann samt rukkaður um uppsagnargjöld vegna korta eða annarrar þjónustu sem hann hefur fengið ókeypis (til dæmis ef hann hefur notað þjónustu betristofu eða gagnaáskriftir fyrir eSIM, þar sem það er í boði) eins og kveðið er á um í skilmálum greiddrar áskriftar. Þessi gjöld verða sýnd í Revolut-forritinu við uppsögn.
Ef stjórnandinn færir sig niður um áskriftarleið eða uppfærir greiddu áskriftina sína fær meðlimurinn sjálfkrafa nýtt boð undir eiginleikanum áskriftarmeðlimir um samsvarandi uppfærða greidda áskrift eða greidda áskrift í lægri áskriftarleið. Ef meðlimurinn samþykkir ekki þetta boð innan 14 daga:
- meðlimurinn verður sjálfkrafa rukkaður um núverandi greiddu áskriftina sem hann er með; og
- stjórnandinn mun halda áfram að greiða stjórnandagjaldið fyrir eiginleika áskriftarmeðlima án virks meðlims sem hluta af honum. Ef meðlimapláss er ófyllt munum við hins vegar láta stjórnandann vita með tölvupósti og/eða í forritinu. Ef plássið er ófyllt í 60 daga í röð munum við láta stjórnanda vita, fella plássið niður sjálfkrafa og endurgreiða að fullu það tímabil.
Aðgerð meðlims
Meðlimurinn getur yfirgefið meðlimaplássið hvenær sem er. Ef meðlimurinn velur að gera það verður hann annaðhvort að færa sig niður um áskriftarleið í stöðluðu áskriftina eða velja þrep greiddrar áskriftar sem hann verður rukkaður beint fyrir.
Ef meðlimurinn færir sig niður í staðlaða áskrift eða í greidda áskrift á lægra þrepi, gætu gjöld fyrir snemmbúna uppsögn átt við samkvæmt skilmálum greiddrar áskriftar. Öll slík gjöld verða reiknuð út frá þeim degi sem meðlimurinn samþykkti boð stjórnandans.
Ef meðlimurinn yfirgefur meðlimaplássið eða hættir að öðru leyti í greiddu áskriftinni sem veitt er í gegnum eiginleika áskriftarmeðlima þá mun stjórnandinn:
- fá tilkynningu í tölvupósti og í Revolut-forritinu;
- áfram verða rukkaður um stjórnandagjaldið fyrir meðlimaplássið, sem verður áfram virkt; og
- geta boðið öðrum gjaldgengum meðlimi að fylla lausa meðlimaplássið.
Við kunnum að takmarka það hversu oft stjórnandi getur skipt um meðlim (til dæmis við 3 meðlimi að hámarki fyrir hvert pláss á hvaða 12 mánaða tímabili sem er. Aðeins samþykkt boð telja upp í þessa takmörkun.
4. Innheimta og greiðsla
Stjórnandagjald
Taflan hér að neðan sýnir mánaðar- og árgjöldin fyrir að bæta meðlimi við greidda áskrift.
Áskriftarleið | Mánaðargjald | Árgjald |
Plus | 1.99 € | 21.99 € |
Premium | 5.50 € | 59 € |
Metal | 8.99 € | 95 € |
Ultra | 32.50 € | 349 € |
Ef eiginleika áskriftarmeðlima er virkjaður á yfirstandandi reikningstímabili verður stjórnandi rukkaður um hlutfallslegt gjald fyrir það sem eftir er af því tímabili. Frá og með næsta reikningstímabili verður stjórnandinn rukkaður um fulla upphæð stjórnandagjaldsins eins og tilgreint er hér að ofan.
Núverandi meðlimir með greidda áskrift
Ef boðni meðlimurinn er þegar með virka greidda áskrift fær hann hlutfallslega endurgreiðslu fyrir allan ónotaðan hluta af núverandi reikningstímabili sínu þegar hann skráir sig í eiginleikann Meðlimir áskriftarleiðar.
5. Lagaleg atriði
Breyting á þessum skilmálum
Ef við gerum einhverja breytingu á þessum skilmálum gefum við þér að minnsta kosti 2 mánaða fyrirvara áður en breytingin tekur gildi. Við munum gera ráð fyrir að þú samþykkir breytinguna nema þú látir okkur vita að þú viljir segja upp meðlimaplássinu (sem stjórnandi), eða yfirgefa meðlimaplássið (sem meðlimur) eða loka reikningnum þínum áður en breytingin tekur gildi.
Enska útgáfan af skilmálunum gildir
Þessir skilmálar eru birtir á ensku og íslensku. Enska útgáfan gildir framar íslensku útgáfunni og verður notuð í öllum lögferlum.
Hvaða lög gilda?
Lög Lýðveldisins Litáens gilda um þessa skilmála og samning milli þín og okkar.
Þú getur hins vegar áfram borið fyrir þig lög um neytendavernd í EES-landinu þar sem þú býrð. Málshöfðun getur farið fram fyrir dómstólum Lýðveldisins Litáen eða fyrir dómstólum í hverju því aðildarlandi Evrópusambandsins þar sem þú býrð.