Products

HÓPREIKNINGAR

1. Hvers vegna þessar upplýsingar eru mikilvægar

Í þessu skjali („skilmálunum“) koma fram skilmálar fyrir Revolut hópreikninga („hópreikningar“). Þar koma einnig fram önnur mikilvæg atriði sem þú þarft að vita. Skilmálarnir, ásamt persónulegum skilmálum Revolut (ef við á), mynda lagalegan samning milli:

  • þín, notanda hópreikninga, og
  • okkar, „Revolut“ (Revolut Ltd fyrir grunnnotendur og Revolut-aðilinn sem veitir Revolut-notandareikninginn þinn fyrir viðskiptavini með Revolut-notendareikninga).

Hópreikningar eru í boði fyrir: (a) viðskiptavini með Revolut-notendareikninga (sem eru með Revolut-greiðslureikning) og (b) einstaklinga með notandalýsingu sem grunnnotandi á vefsvæði hópreikninga („grunnnotandi“), sameiginlega nefndir „notendur hópreikninga“. Með því að opna eða nota hópreikninga samþykkir þú þessa skilmála.

Ef þú ert viðskiptavinur með Revolut-notandareikning lýtur notkun þín á hópreikningum þessum skilmálum, sem eru viðbót við (en koma ekki í staðinn fyrir) persónulega skilmála Revolut, sem gilda um Revolut-notandareikninginn þinn. Revolut-aðilinn sem veitir Revolut-notandareikninginn þinn veitir þér einnig aðgang að hópreikningum.

Ef þú ert grunnnotandi eru hópreikningar veittir af Revolut Ltd.


2. Hvað eru hópreikningar?

Hópreikningar eru samnýtt verkfæri til sem notendur hópreikninga nota til að fylgjast með kostnaði. Þannig getur hópurinn haft yfirsýn yfir hver greiðir fyrir hvað, hvernig kostnaði er skipt og hvað á eftir að gera upp. Hópreikningar eru ekki eftirlitsskyld greiðsluþjónusta.

Ef þú ert viðskiptavinur með Revolut-notandareikning og notar hópreikninga til að gera upp greiðslur við grunnnotendur birtum við grunnnotandanum greiðslutengilinn þinn svo við getum afgreitt allar greiðslur sem þú færð fyrir þína hönd. Frekari upplýsingar um hvernig við meðhöndlum greiðslur með greiðslutenglum má finna í persónulegum skilmálum Revolut.

Þú getur fengið aðgang að hópreikningum:

  • milliliðalaust í gegnum Revolut-forritið ef þú ert viðskiptavinur með Revolut-notandareikning eða
  • í gegnum groupbills.revolut.com („vefsvæði hópreikninga“) þar sem það er í boði, ef þú ert grunnnotandi.

3. Hverjir geta notað hópreikninga?

Þú getur notað hópreikninga ef:

  • þú hefur náð 18 ára aldri,
  • samþykkir skilmálana og
  • annað af eftirtöldu á við um þig: (a) Þú ert viðskiptavinur með Revolut-notandareikning og færð aðgang að eiginleikanum í gegnum Revolut-forritið, eða (b) þú ert grunnnotandi með notandalýsingu á vefsvæði hópreikninga.

Grunnnotendur verða að staðfesta netfangið sitt til að búa til notandalýsingu sem grunnnotendur.


4. Eru innheimt gjöld fyrir eða gilda takmarkanir um eiginleikann?

Sem stendur eru engin gjöld innheimt fyrir hópreikninga.


5. Lagaleg atriði


Breyting á þessum skilmálum

Ef við breytum skilmálunum, hvort sem er þannig að þeir verði ýmist þér hagstæðari eða það breyti engu fyrir þig (t.d. til að auðvelda skilning á skilmálunum eða bæta við nýjum eiginleikum þér að kostnaðarlausu) látum við þig einfaldlega vita. Þú þarft ekki að samþykkja þessar breytingar, en ef þú vilt ekki samþykkja þær getur þú hætt að nota hópreikninga hvenær sem er.

Ef við breytum þessum skilmálum efnislega eða á þann hátt að þeir verði þér óhagstæðari tilkynnum við þér um það með minnst tveggja mánaða fyrirvara. Ef þú samþykkir það ekki geturðu hætt að nota hópreikninga áður en breytingin tekur gildi.


Er unnið úr persónuupplýsingum?

Við söfnum og notum persónuupplýsingar um þig til að geta veitt hópreikninga. Ef þú ert ekki viðskiptavinur Revolut munum við auk þess senda tilkynningu með tölvupósti þegar reikningum er bætt við, þeir uppfærðir eða gerðir upp í hópi sem þú ert hluti af. Þú getur stjórnað þessum stillingum á stillingaflipanum. Viðskiptavinir Revolut fá tilkynningar um virkni hópreikninga á venjubundinn hátt.

Revolut-aðilinn sem ber ábyrgð á að veita þér hópreikninga (eins og fram kemur í kafla 1 hér að framan) skal vera ábyrgðaraðili persónuupplýsinganna um þig.

Ef þú ert ekki viðskiptavinur Revolut munum við geyma gögn um hópreikninga í þrjú ár frá síðustu innskráningu. Að því loknu verður reikningnum þínum og gögnum eytt og þú þarft að nýskrá þig aftur til að nota þjónustuna. Ef þú ert viðskiptavinur Revolut skaltu lesa kafla 14 í persónuverndaryfirlýsingu okkar fyrir viðskiptavini til að fá upplýsingar um hversu lengi við varðveitum persónuupplýsingar þínar.

Frekari upplýsingar um úrvinnslu okkar á persónuupplýsingum er að finna í persónuverndaryfirlýsingu okkar fyrir viðskiptavini.


Hvernig legg ég fram kvörtun?

Ef þú ert ekki ánægð(ur) með þjónustuna sem þú fékkst í tengslum við hópreikninga munum við gera okkar besta til að bæta úr því, þar sem sú þjónusta er rekin af okkur. Ef þú ert með kvörtun vegna hópreikninga skaltu hafa samband við þjónustuverið gegnum Revolut-forritið (aðeins fyrir viðskiptavini Revolut) eða senda tölvupóst á support@revolut.com og láta vita að þú viljir leggja fram kvörtun (grunnnotendur skulu gæta þess að nota sama netfang og var notað við uppsetningu notandalýsingarinnar á vefsvæði hópreikninga).

Ef þú vilt hætta að nota hópreikninga geturðu gert það hvenær sem er með því að skrá þig út af vefsvæði hópreikninga eða hætta að nota kerfið.


Hvaða lög gilda um þjónustuna?

Hvað grunnnotendur varðar falla skilmálar þessir undir gildandi lög á Englandi og í Wales. Ágreiningsmál sem tengjast þessum skilmálum er aðeins hægt að höfða fyrir dómstólum í Englandi og Wales.

Ef þú ert viðskiptavinur með Revolut-notandareikning munu gildandi lög og lögsöguákvæði sem gilda um Revolut-notandareikninginn þinn gilda áfram um notkun þína á hópreikningum.