Reglur um meðferð fyrirmæla og bestu framkvæmd
Þessi útgáfa af Reglur um meðferð fyrirmæla og bestu framkvæmd gildir um þig ef þú opnaðir fjárfestingareikning hjá Revolut Securities Europe UAB þann 13. desember 2025 eða síðar. Ef þú opnaðir reikninginn þinn fyrir 13. desember 2025 gildir þessi útgáfa frá 23. desember 2025. Ef þú vilt sjá fyrri útgáfur, smelltu hér.
Í tilvikum þar sem ósamræmi eða ágreiningur verður á milli ólíkra þýðinga á þessum reglum um meðferð fyrirmæla og bestu framkvæmd og upprunalegu ensku útgáfunnar skal upprunalega útgáfan gilda. Þýðingin er aðeins til hliðsjónar.
I.Samantekt á reglum um meðferð fyrirmæla og bestu framkvæmd
Þessi samantekt á reglum um meðferð fyrirmæla og bestu framkvæmd („samantekt“) lýsir því hvernig Revolut Securities Europe UAB, sem nýtur fyrirsvars í Sviss af Revolut (Sviss) AG, („við“,„okkur“, „okkar“ eða „Revolut Securities“) meðhöndlar fyrirmæli viðskiptavina („þú“ eða „þínar“) til að uppfylla kröfur um bestu framkvæmd eins og þær eru skilgreindar í lögum um markaði fyrir fjármálagerninga í Lýðveldinu Litháen („LMFI“) sem innleiddi ákvæði tilskipunar um markaði fyrir fjármálagerninga 2014/65/ESB. Frekari upplýsingar um reglur okkar varðandi meðferð fyrirmæla og bestu framkvæmd („reglur“) má lesa hér að neðan.
1. Umfang og tilgangur
1.1. Í þessari samantekt er almenn lýsing á nálgun okkar við meðferð fyrirmæla til að ná stöðugt besta mögulega árangri fyrir þig þegar við veitum fjárfestingarþjónustuna „framkvæmd fyrirmæla fyrir hönd viðskiptavina“. Frekari upplýsingar er að finna í reglum okkar, sem þú ættir að lesa vandlega.
1.2. Nema við tilkynnum þér um annað munum við meðhöndla þig sem „almennan fjárfesti“, eins og skilgreint er í LMFI.
1.3. Skilgreining LMFI á almennum fjárfestum vísar bæði til einstaklinga („einstaklinga“) og lögaðila („fyrirtækja“). Upplýsingarnar í þessari samantekt og í stefnunni eiga bæði við um einstaklinga og fyrirtæki.
1.4. Frekari upplýsingar um flokkun þína sem almenns fjárfestis er að finna í skjali um lýsingu á þjónustu, fjármálagerningum og áhættu („áhættulýsingu“) sem hægt er að nálgast hér.
2. Besta framkvæmd
2.1. Ef við samþykkjum fyrirmæli frá þér framkvæmum við annaðhvort fyrirmælin frá þér sjálf með því að eiga viðskipti með því að nota eigin reikning (og komum þá fram sem umbjóðandi) eða sendum fyrirmælin frá þér til utanaðkomandi miðlara („miðlari“) til framkvæmdar (og komum þá fram sem umboðsmaður). Öll fyrirmæli sem við fáum eru annaðhvort framkvæmd af okkur með skjótum og sanngjörnum hætti eða send til miðlarans.
2.2. Þegar við komum fram sem gagnaðili í viðskiptum þínum berum við ábyrgð á framkvæmd fyrirmæla þinna og munum grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til að framfylgja þeim með samræmdum hætti á hagstæðustu kjörum fyrir þig og í samræmi við þessa stefnu.
2.3. Þegar við sendum fyrirmæli frá þér til miðlara gerum við allar fullnægjandi ráðstafanir til að tryggja að miðlari framkvæmi þær með samræmdum hætti á hagstæðustu kjörum fyrir þig og í samræmi við viðeigandi stefnu um bestu framkvæmd. Í þeim tilvikum þegar miðlari hefur ekki sett sér stefnu um bestu framkvæmd eða staðlar viðkomandi miðlara uppfylla ekki skilyrði LMFI munum við beita okkar eigin stöðlum um allar lagalegar ráðstafanir gangvart miðlaranum, með hagsmuni þína að leiðarljósi.
2.4. Við höfum gert eigin samninga við miðlara sem gera okkur kleift að fylgjast með, hafa umsjón með og hafa eftirlit með framkvæmdarþjónustu okkar og miðlara sem við höfum valið.
2.5 Þrátt fyrir skyldu okkar til að ná stöðugt besta árangri fyrir þig getum hvorki við né miðlari okkar tryggt að besti mögulegi árangur náist fyrir hver einustu fyrirmæli og með tilliti til hvers viðskiptavinar. Þetta getur gerst af ýmsum ástæðum, þar á meðal vegna þess að viðskipti geta farið fram með sama gerning á mismunandi stöðum á svolítið mismunandi verði; ný fyrirmæli kunna að koma inn á markaðinn og vera framkvæmd á undan þínum fyrirmælum eða önnur fjárfestingarfyrirtæki kunna að hafa aðgang að betra verði sem er ekki í boði fyrir okkur eða miðlara okkar eða þú hefur lagt fram sérstakar leiðbeiningar sem koma í veg fyrir að við náum besta mögulega árangri fyrir þig.
3. Framkvæmdarþættir
3.1. Þegar við framkvæmum eða sendum þín fyrirmæli tökum við tillit til (og krefjumst þess að miðlarar okkar taki tillit til) eftirfarandi þátta:
- verð – sanngjarnt verð á framkvæmd fjármálagernings,
- kostnaður – allur kostnaður í tengslum við fyrirmælin eða viðskiptin, þ.m.t. óbeinn kostnaður, svo sem hugsanleg markaðsáhrif, beinn ytri kostnaður, þ.m.t. viðskiptaþóknanir eða þóknanir vegna greiðslujöfnunar, og beinn innri kostnaður,
- hraði framkvæmdar – tíminn sem það tekur að framkvæma fyrirmælin eða viðskiptin,
- líkur á framkvæmd og uppgjöri – líkurnar á því að miðlari geti afgreitt beiðnina eða viðskiptin,
- umfang beiðninnar – umfang beiðninnar eða viðskiptanna sem framkvæmd eru og grein gert fyrir því hvernig þetta hefur áhrif á verð framkvæmdarinnar (á yfirleitt aðeins við stór viðskipti), og
- önnur atriði sem skipta máli fyrir framkvæmd fyrirmælanna eða viðskiptanna (til dæmis markaðsáhrif) – hvernig sérstök einkenni fyrirmælanna eða viðskiptanna geta haft áhrif á bestu framkvæmd.
3.2. Gert er ráð fyrir að meginmarkmið þitt sé að fá besta mögulega heildarverð (þ.e. verð jármálagernings og tengdan kostnað við framkvæmdina) og þar af leiðandi setjum við þættina verð og kostnað í forgang miðað við aðra þætti. Þar sem fjármálagerningar eru yfirleitt háðir verðsveiflum leggjum við einnig aukna áherslu á hraða framkvæmdarinnar.
3.3. Í tilvikum þegar þú t.d. gefur sérstakar leiðbeiningar um fyrirmæli þín, til dæmis varðandi verð, hafa leiðbeiningarnar þínar forgang fram yfir reglur okkar og falla ekki undir þær. Þú skilur og samþykkir að sértækar leiðbeiningar þínar gætu komið í veg fyrir að við náum besta mögulega árangri fyrir þig hvað varðar þá þætti sem leiðbeiningarnar ná yfir.
4. Val á viðskiptastað fyrir hver viðskipti fyrir sig
4.1. Með hliðsjón af því um hvers konar fjármálagerning er að ræða erum við annaðhvort gagnaðili í viðskiptum þínum, og erum því viðskiptakerfi fyrir fyrirmæli þín, eða sendum fyrirmælin til miðlara. Í síðarnefnda tilvikinu er það í höndum miðlara að velja viðskiptakerfi innsendra fyrirmæla, svo framarlega sem lokaniðurstaðan uppfyllir staðla og kröfur sem settar eru fram í þessari samantekt og stefnu. Miðlari mun hugsanlega framkvæma viðskiptin á eigin vegum með því að koma fram sem viðskiptakerfi fyrir fyrirmælin sem þú lagðir fram, á viðskiptavettvöngum (kauphöllum, markaðstorgum fjármálagerninga eða skipulegum markaðstorgum, hér á eftir kallaðir „viðskiptavettvangar“) og við aðra aðila sem útvega lausafé.
4.2. Þegar við komum fram sem gagnaðili (umbjóðandi) í viðskiptum þínum framkvæmum við fyrirmæli þín með því að nota eigið fé okkar og utan viðskiptavettvangs, en svo kallast viðskipti utan verðbréfamarkaða (e. over-the-counter trading, eða „OTC“). Miðlarinn kann einnig að framkvæma send fyrirmæli utan verðbréfamarkaðar eða í gegnum millilið. Fyrirmæli þín gætu verið framkvæmd utan verðbréfamarkaðar í tengslum við bæði skráða og óskráða (eða afskráða) fjármálagerninga. Þú samþykkir sérstaklega að fyrirmæli þín séu framkvæmd utan viðskiptavettvangs. Nema sérstakar leiðbeiningar berist með fyrirmælunum þínum ber okkur skylda til að ná sem bestum árangri fyrir þína hönd þegar við framkvæmum fyrirmæli þín utan viðskiptavettvangs.
4.3. Þegar þú sendir fyrirmæli um fjármálagerninga utan viðskiptavettvangs eykst markaðsáhætta, þar á meðal greiðsluhæfisáhætta, sveifluáhætta (þar á meðal aukin hætta á að áhættuvörn sígi) og mótaðilaáhætta. Frekari upplýsingar er að finna í áhættulýsingunni.
4.4. Við skuldbindum okkur til að fylgjast reglulega með og fara yfir niðurstöður um gæði framkvæmdar valinna miðlara okkar með því að bera upplýsingar um framkvæmdina saman við markaðsaðstæður með hliðsjón af ofangreindum framkvæmdarþáttum. Við áskiljum okkur rétt til að hafna miðlurum sem standast ekki kröfur okkar um bestu framkvæmd og biðja valda miðlara um að hætta viðskiptum á viðskiptavettvöngum eða í viðskiptakerfum sem við teljum vera stöðugt undir væntingum.
4.5. Brot af hlutabréfum, brot af kauphallarsjóðum (hver fyrir sig „kauphallarsjóður“), brot af bandarískum innlánsskírteinum (hver fyrir sig „bandarísk innlánsskírteini“) og mismunasamningar verða framkvæmd með því að nota eigin reikning okkar eða eigin reikning viðkomandi miðlara og gera okkur eða viðkomandi miðlara í raun að viðskiptakerfi viðskipta þinna.
4.6. Við áskiljum okkur rétt til að bæta við eða fjarlægja miðlara og viðskiptastaði eftir því sem við á til að ná sem bestum árangri fyrir þig. Við veljum aðeins miðlara sem sameina þjónustustaðla af miklum gæðum og fyrirkomulag í því skyni að ná ávallt sem bestri framkvæmd. Staðlar bestu framkvæmdar sem valdir miðlarar beita kunna að leiða til framkvæmdar fyrirmæla utan viðskiptavettvangsins.
5. Eftirlit, endurskoðanir og uppfærslur
Við endurskoðum samantektina, stefnurnar og viðauka við stefnur um eignaflokka árlega, eða oftar ef efnislegar breytingar eru gerðar sem hafa áhrif á staðla bestu framkvæmdar.
6. Samantekt fyrirmæla og framkvæmd að hluta
6.1. Þegar við framkvæmum eða sendum fyrirmæli þín til miðlara til framkvæmdar sameinum við þau ekki fyrirmælum okkar eða fyrirmælum annarra viðskiptavina, nema hvað varðar peningamarkaðssjóði (kynntu þér viðauka við reglur um framkvæmd fyrir peningamarkaðssjóði).
6.2. Við tilteknar kringumstæður, þ.m.t. við kringumstæður þar sem lausafjárstaða markaðar er of lág, kunna fyrirmæli þín aðeins að vera framkvæmd að hluta til. Slíkt þýðir að aðeins hluti af upphaflegum fyrirmælum þínum verður framkvæmdur. Heildarkostnaður viðskiptanna verður einnig hlutfallslega lægri.
II. Reglur um meðferð fyrirmæla og bestu framkvæmd
Þessar reglur um meðferð fyrirmæla og bestu framkvæmd („reglur“) lýsir því nákvæmlega hvernig Revolut Securities Europe UAB, sem nýtur fyrirsvars í Sviss af Revolut (Sviss) AG, („við“, „okkur“,„okkar“ eða „Revolut Securities“) meðhöndlar fyrirmæli viðskiptavina („þú“ eða „þínar“) til að uppfylla kröfur um bestu framkvæmd eins og þær eru skilgreindar í lögum um markaði fyrir fjármálagerninga í Lýðveldinu Litháen („LMFI“) sem innleiddi ákvæði tilskipunar um markaði fyrir fjármálagerninga 2014/65/ESB.
1. Umfang og tilgangur
1.1. Þessi stefna inniheldur nákvæma lýsingu á nálgun okkar við meðferð fyrirmæla til að ná stöðugt besta mögulega árangri fyrir þig þegar við veitum fjárfestingarþjónustuna eða framkvæmum fyrirmæli þín eða sendum þau til miðlara. Lestu stefnuna vandlega, ásamt viðaukum um tiltekna eignaflokka sem má finna í hlutunum hér á eftir.
1.2. Reglurnar gilda um eftirfarandi fjármálagerninga:
- framseljanleg verðbréf og hluta þeirra,
- bandarísk innlánsskírteini og hluta þeirra,
- hlutdeildarskírteini í fyrirtækjum um sameiginlega fjárfestingu (þ.m.t. einingar í peningamarkaðssjóðum) og hluta þeirra,
- verðbréf,
- mismunasamninga.
1.3. Nema við tilkynnum þér um annað munum við meðhöndla þig sem „almennan fjárfesti“, eins og skilgreint er í LMFI.
1.4. Skilgreining LMFI á almennum fjárfestum vísar bæði til einstaklinga („einstaklinga“) og lögaðila („fyrirtækja“).Upplýsingarnar í þessari stefnu (þar á meðal viðaukunum) eiga bæði við um einstaklinga og fyrirtæki.
1.5. Frekari upplýsingar um flokkun þína sem almenns fjárfestis er að finna í skjali um lýsingu á þjónustu, fjármálagerningum og áhættu („áhættulýsingu“) sem hægt er að nálgast hér.
2. Besta framkvæmd
2.1. Ef við samþykkjum fyrirmæli frá þér framkvæmum við annaðhvort fyrirmælin frá þér sjálf með því að eiga viðskipti með því að nota eigin reikning (og komum þá fram sem umbjóðandi) eða sendum fyrirmælin frá þér til utanaðkomandi miðlara („miðlari“) til framkvæmdar (og komum þá fram sem umboðsmaður). Öll fyrirmæli sem við fáum eru annaðhvort framkvæmd af okkur með skjótum og sanngjörnum hætti eða send til miðlarans. Þegar við komum fram sem umboðsmaður fáum við eingöngu heildstæðar og endanlegar upplýsingar um viðskipti samkvæmt sendum fyrirmælum eftir að staðfesting er fengin frá miðlara.
2.2. Þegar við komum fram sem gagnaðili í viðskiptum þínum berum við ábyrgð á framkvæmd fyrirmæla þinna og munum grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til að framfylgja þeim með samræmdum hætti á hagstæðustu kjörum fyrir þig og í samræmi við þessa stefnu.
2.3. Þegar við sendum fyrirmæli frá þér til miðlara gerum við allar fullnægjandi ráðstafanir til að tryggja að miðlarinn framkvæmi þær með samræmdum hætti á hagstæðustu kjörum fyrir þig og í samræmi við viðeigandi stefnu um bestu framkvæmd. Þar sem miðlarinn er ekki með stefnu um bestu framkvæmd eða staðlar hans uppfylla ekki kröfur laga um markaði fjármálagerninga (LMFI), þá framfylgjum við stöðlum okkar um bestu framkvæmd með lagalegum samningum við miðlarann, með hagsmuni þína að leiðarljósi.
2.4. Við höfum gert eigin samninga við miðlara sem gera okkur kleift að fylgjast með, hafa umsjón með og hafa eftirlit með framkvæmdarþjónustu þess miðlara sem við höfum valið, þ.m.t.:
- innra verðlagningarferli – þegar við virkum sem framkvæmdarstaður fyrir viðskipti þín, setjum við framkvæmdarverðin með hliðsjón af verði sem sjá má á mikilvægustu mörkuðum fyrir viðkomandi fjármálagerning, sem gerir okkur kleift að innfella bestu framkvæmd við verðlagningarferlið;
- áreiðanleikakönnun á og eftirlit með seljendum - við framkvæmum fyrstu áreiðanleikakönnun á miðlurum í samræmi við útvistunarstefnu okkar, sem felur til dæmis í sér athugun á reglum seljanda um bestu framkvæmd, verklagsreglum og verkferlum til að tryggja að til staðar sé fyrirkomulag til að ná stöðugum árangri við bestu framkvæmd. Einnig hafa verið gerðir þjónustusamningar („SLA“) þar sem tilgreind eru lágmarksþjónustustig tiltekinna viðmiða við framkvæmd og gæði framkvæmdarþjónustu. Stöðugt eftirlit er haft með þessum þjónustusamningum;
- reglulegar skýrslur - hver valinn miðlari þarf að gera áreiðanleikakönnun á viðkomandi flæði fyrirmæla. Endurskoðunin er í höndum nefndar um bestu framkvæmd og niðurstöðunum er deilt með okkur, þ.m.t. breytingartillögum sem lagðar eru til á gildandi reglum og öðru fyrirkomulagi;
- úttektarréttur - í samningum okkar áskiljum við okkur rétti til að gera úttekt á völdum miðlurum (í samræmi við kröfur um fyrirvara þar sem þess er krafist);
- eftirlit með bestu framkvæmd - yfirstjórn okkar („eftirlitshópurinn“) kemur saman í hverjum mánuði til að ræða niðurstöður greiningar á bestu framkvæmd sem gerð er samkvæmt fyrirkomulagi okkar við að fylgjast með framkvæmd og viðskiptum.Aðauki fer þessi eftirlitshópur yfir skýrslur um bestu framkvæmd sem gerðar eru innanhúss eða af völdum miðlurum og fjallar um nýja þróun og árangur í gæðum framkvæmdar. Þessi eftirlitshópur ber einnig ábyrgð á að ræða alvarleikahækkun og atvikastjórnun, með tilliti til gæða framkvæmdar, sem kunna að koma upp í kjölfar endurskoðunar á þjónustusamningum og við eftirlit.
2.5. Þrátt fyrir skyldu okkar til að ná stöðugt besta árangri fyrir þig getum hvorki við né miðlari okkar tryggt að besti mögulegi árangur náist fyrir hver einustu fyrirmæli og með tilliti til hvers viðskiptavinar. Þetta getur gerst af ýmsum ástæðum, þar á meðal vegna þess að viðskipti geta farið fram með sama gerning á mismunandi stöðum á svolítið mismunandi verði; ný fyrirmæli kunna að koma inn á markaðinn og vera framkvæmd á undan þínum fyrirmælum eða önnur fjárfestingarfyrirtæki kunna að hafa aðgang að betra verði sem er ekki í boði fyrir okkur eða miðlara okkar.
3. Framkvæmdarþættir
3.1. Þegar við framkvæmum eða sendum þín fyrirmæli tökum við tillit til (og krefjumst þess að miðlarar okkar taki tillit til) eftirfarandi þátta:
- verð – sanngjarnt verð á framkvæmd fjármálagernings;
- kostnaður – allur kostnaður í tengslum við fyrirmælin eða viðskiptin, þ.m.t. óbeinn kostnaður, svo sem hugsanleg markaðsáhrif, beinn ytri kostnaður, þ.m.t. viðskiptaþóknanir eða þóknanir vegna greiðslujöfnunar, og beinn innri kostnaður;
- hraði framkvæmdar – tíminn sem það tekur að framkvæma fyrirmælin eða viðskiptin;
- líkur á framkvæmd og uppgjöri – líkurnar á því að miðlari geti afgreitt beiðnina eða viðskiptin;
- umfang fyrirmælanna – umfang fyrirmælanna eða viðskiptanna sem framkvæmd eru og grein gert fyrir því hvernig þetta hefur áhrif á verð framkvæmdarinnar (á yfirleitt aðeins við stór viðskipti), og
- önnur atriði sem skipta máli fyrir framkvæmd fyrirmælanna eða viðskiptanna (til dæmis markaðsáhrif) – hvernig sérstök einkenni fyrirmælanna eða viðskiptanna geta haft áhrif á bestu framkvæmd.
3.2. Gert er ráð fyrir að meginmarkmið þitt sé að fá besta mögulega heildarverð (þ.e. verð jármálagernings og tengdan kostnað við framkvæmdina) og þar af leiðandi setjum við þættina verð og kostnað í forgang miðað við aðra þætti. Þar sem fjármálagerningar eru yfirleitt háðir verðsveiflum leggjum við einnig aukna áherslu á hraða framkvæmdarinnar.
3.3. Í tilvikum þegar þú t.d. gefur sérstakar leiðbeiningar um fyrirmæli þín, til dæmis varðandi verð, hafa leiðbeiningarnar þínar forgang fram yfir reglur okkar og falla ekki undir þær. Þú skilur og samþykkir að sértækar leiðbeiningar þínar gætu komið í veg fyrir að við náum besta mögulega árangri fyrir þig hvað varðar þá þætti sem leiðbeiningarnar ná yfir.
4. Líftími fyrirmæla
4.1. Fyrirmælum er miðlað í Revolut-forritinu og á vefsvæði Revolut http://www.revolut.com (sem hér á eftir nefnast einu nafni „forritið“). Fyrirmæli eru send inn með því að smella á hnappana „+Kaupa/-Selja“.
4.2. Við skráum öll fyrirmæli sem við tökum á móti. Fyrirmæli sem berast í gegnum forritið eru sjálfkrafa skráð í bókhald okkar og skrár, sem uppfylla lagaskilyrði um varanlegan miðil. Kerfið skráir strax niður í tímaröð eftirfarandi upplýsingar um fyrirmæli sem berast í gegnum forritið:
- dagsetningu og nákvæma tímasetningu fyrirmæla,
- auðkennisgögn viðskiptavinar,
- auðkennisgögn fjármálagerninga í tengslum við framlögð fyrirmæli,
- eðli fyrirmæla (kaup, sala o.s.frv.),
- gerð fyrirmæla.
4.3. Þú getur hætt við fyrirmæli í forritinu með því að ýta á hnappinn „Hætta við“ við hliðina á fyrirmælunum sem á að hætta við. Hnappurinn „Afturkalla“ verður hins vegar aðeins tiltækur þar til fyrirmæli hafa verið framkvæmd af okkur eða send til miðlara til framkvæmdar. Almennt séð eru öll fyrirmæli um markaðsviðskipti framkvæmd strax eftir að þau eru lögð fram og þar af leiðandi verður valkosturinn um að afturkalla fyrirmælin aðeins í boði í skamman tíma. Engin önnur aðferð sem hægt er að beita til að afturkalla fyrirmæli er heldur í boði, en þó er hægt að gera það í appinu.
Um leið og þú hefur samþykkt beiðni um afturköllun teljast fyrirmælin ekki hafa verið lögð fram og verða ekki send til framkvæmdar.
Ekki er hægt að breyta fyrirmælum sem þegar hafa verið framkvæmd. Eina leiðin til að gera breytingar er að hætta við núverandi fyrirmæli og leggja fram ný.
4.4. Fyrirmælin verða þá annaðhvort framkvæmd af okkur eða send miðlara til framkvæmdar, nema fyrirmæli sem synjun framkvæmdar eða sendingar eiga við um (eins og lýst er í lið 5.1). Fyrirmæli eru framkvæmd eða send í þeirri röð sem þau berast og innihald þeirra verður nákvæmlega eins og þú slóst inn.
4.5. Þegar valinn miðlari sendir okkur staðfestingu á framkvæmd fyrirmæla sendum við upplýsingarnar til þín tafarlaust í forritinu. Þú færð aðgang að öllum staðfestingum á sérstakri síðu í forritinu.
4.6. Við berum einnig ábyrgð á að hafa umsjón með og greiða fyrir uppgjöri fyrirmæla sem við eða miðlararnir framkvæma hvað varðar öll fyrirmæli sem lögð eru fram í gegnum appið okkar. Þannig tryggjum við að fjármunir og/eða fjármálagerningar sem falla undir fyrirmælin berist án tafar og á réttan hátt inn á viðeigandi reikning. Þetta er tryggt með innleiðingu sérstakra samninga á milli okkar og valinna miðlara um lagaleg atriði og starfsfyrirkomulag.
4.7. Fyrirmæli sem eru lögð fram eftir markaðstíma eða, þar sem það er í boði, utan framlengds markaðstíma, verður reynt að framkvæma þegar markaðurinn opnar. Á þeim tímapunkti gæti verð viðkomandi fjármálagernings hafa færst til.
5. Synjun sendingar
5.1. Við höfum sett saman lista, sem er ekki tæmandi, yfir kringumstæður þar sem við neitum að framkvæma fyrirmæli eða senda fyrirmæli til annarra til framkvæmdar. Listana er einnig að finna í skilmálum okkar sem þú verður að samþykkja til að gerast viðskiptavinur okkar.
5.2. Listinn er ekki tæmandi og er að finna í 23. lið skilmála okkar.
6. Framkvæmdaráhætta
6.1. Þú ættir að kynna þér neðangreinda áhættu í tengslum við framkvæmd fyrirmæla um fjármálagerninga. Hafðu í huga að útsetning fyrir slíkri áhættu er mun meiri þegar fyrirmæli eru framkvæmd utan viðskiptavettvanga, eða utan markaðar („OTC“) (frekari upplýsingar er að finna í áhættulýsingu okkar):
- sig áhættuvarnar merkir hættu á mismun sem kann að verða á milli áætlaðrar upphæðar viðskiptanna þegar fyrirmælin eru lögð fram og upphæðarinnar þegar viðskiptin fara fram. Við notum sjálfvirk eftirlitsverkfæri til að fylgjast með tímasetningum og upphæðum viðskipta og endurskoðum skýrslur þriðja aðila um framkvæmdir til að koma auga á leitni og aðra framkvæmdarþætti og grípa til nauðsynlegra aðgerða til að lagfæra veikleika í eftirliti. Við getum hins vegar ekki tryggt bestu mögulegu niðurstöðu viðskiptavina í öllum viðskiptum (þrátt fyrir að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að ná slíkum niðurstöðum), þá einkum við aðstæður þar sem lausafjárstaða minnkar og markaðshreyfingar og aðrar álagsaukandi aðstæður eru utan okkar stjórnar;
- mismunur vísar til áhættunnar á því að verðbréfaverð sé hærra eða lægra við opnun en lokaverð dagsins á undan og engin viðskipti áttu sér stað í tímanum þar á milli. Dæmi um slíkt eru tilvik um umtalsverðar markaðshreyfingar, t.d. í kjölfar fréttatilkynninga eða efnahagslegra tilvika, á milli lokunar og opnunar markaðar á nýjan leik, sem kann að hafa umtalsverð áhrif á framkvæmd fyrirmæla í bið. Þú ættir að hafa í huga áhættuna sem tengist óstöðugleika, sér í lagi á hefðbundnum viðskiptatíma við eða nálægt lokun/opnun,
- viðskiptatruflun getur orðið vegna tæknibilana, starfstruflana, bilana í tengingu eða af öðrum svipuðum ástæðum. Við höfum gert þjónustusamninga til að tryggja nýtanlegan tíma eftirlitstíma kerfa og hækkun viðbúnaðarstigs þegar ekki er staðið við þjónustusamninga.
7. Val á viðskiptastað fyrir hver viðskipti fyrir sig
7.1.7.1. Með hliðsjón af fjármálagerningnum hverju sinni komum við annaðhvort fram sem gagnaðili í viðskiptum þínum og þjónum þannig sem viðskiptakerfi fyrir fyrirmæli þín eða sendum fyrirmælin til miðlara. Í síðara tilvikinu er það miðlarans að ákveða framkvæmdarstað fyrirmælanna, svo framarlega sem niðurstaðan uppfyllir þá staðla og kröfur sem settar eru fram í þessari stefnu. Miðlarinn gæti framkvæmt viðskiptin sjálfur og þar með komið fram sem viðskiptakerfi fyrir fyrirmæli þín, á viðskiptakerfum (kauphallir, marghliða viðskiptakerfi eða skipulögð viðskiptakerfi, hér eftir nefnd – „viðskiptakerfi“) og hjá öðrum lausafjárveitendum.
Að því er varðar bandarísk hlutabréf og bandarísk innlánsskírteini munum við bæði koma fram sem umboðsmaður (í því tilviki munum við senda fyrirmæli þín til miðlara til framkvæmdar) og sem umbjóðandi (í því tilviki munum við framkvæma fyrirmæli þín með því að eiga viðskipti með því að nota eigin reikning) þegar við framkvæmum fyrirmæli þín. Að því er varðar kauphallarsjóði, skuldabréf og aðra skuldagerninga munum við aðeins koma fram sem umboðsmaður og senda þín fyrirmæli til utanaðkomandi miðlara til framkvæmdar.
7.2. Þegar við komum fram sem gagnaðili (umbjóðandi) í viðskiptum þínum framkvæmum við fyrirmæli þín með því að nota eigið fé okkar og utan viðskiptavettvangs, en svo kallast viðskipti utan verðbréfamarkaða (e. over-the-counter trading, eða „OTC“). Þegar við sendum fyrirmæli frá þér til miðlara gæti miðlarinn einnig framkvæmt innsend fyrirmæli utan viðskiptavettvangs eða gegnum millilið. Fyrirmæli þín verða hugsanlega framkvæmd utan viðskiptavettvangs í tengslum við bæði skráða og óskráða (eða afskráða) fjármálagerninga.
Þú samþykkir sérstaklega að fyrirmæli þín séu framkvæmd utan viðskiptavettvangs. Nema sérstakar leiðbeiningar berist með fyrirmælunum þínum ber okkur skylda til að ná sem bestum árangri fyrir þína hönd þegar við miðlum fyrirmælum sem verða framkvæmd utan viðskiptavettvangs.
7.3. Þegar þú sendir fyrirmæli um fjármálagerninga utan viðskiptavettvangs eykst markaðsáhætta, þar á meðal greiðsluhæfisáhætta, sveifluáhætta (auk aukinnar hættu á að áhættuvörn sígi) og gagnaðilaáhætta. Frekari upplýsingar er að finna í áhættulýsingunni.
7.4. Við skuldbindum okkur til að fylgjast reglulega með og fara yfir niðurstöður um gæði framkvæmdar valinna miðlara okkar með því að bera upplýsingar um framkvæmdina saman við markaðsaðstæður með hliðsjón af ofangreindum framkvæmdarþáttum.Við áskiljum okkur rétt til að hafna miðlurum sem standast ekki kröfur okkar um bestu framkvæmd og biðja valda miðlara um að hætta viðskiptum á viðskiptastöðum sem við teljum vera stöðugt undir væntingum. Ráðstafanir sem við grípum til eru m.a.:
- Dagleg endurskoðun viðvarana frá viðskiptaeftirlitsverkfæri okkar sem dregur fram tilvik þar sem grunur leikur á um að vikið sé frá stöðlum okkar um bestu framkvæmd,
- Hækkun viðbúnaðarstigs í kerfi okkar eða kerfi viðeigandi miðlara ef vikið er frá stöðlum okkar um bestu framkvæmd;
- Mánaðarlegir fundir eftirlitshópsins eins og lýst er í lið 2.4.4,
- Mánaðarlegir fundir með völdum miðlurum til að greina og ræða gæði framkvæmdar sem náðst hefur
7.5. Viðskipti með bandarísk hlutabréf verða hugsanlega framkvæmd utan verðbréfamarkaðar. Brot af hlutabréfum, bandarísk innlánsskírteini, kauphallarsjóðir og mismunasamningar verða framkvæmd af okkur eða miðlara utan viðskiptavettvangsins.
8. Valdir miðlarar og viðskiptastaðir
8.1. Við áskiljum okkur rétt til að bæta við eða fjarlægja miðlara og viðskiptastaði eftir því sem við á til að ná sem bestum árangri fyrir þig. Við veljum aðeins miðlara sem sameina þjónustustaðla af miklum gæðum og fyrirkomulag í því skyni að ná ávallt sem bestri framkvæmd. Staðlar valinna miðlara við bestu framkvæmd kunna að leiða til framkvæmdar utan viðskiptavettvanga.
9. Eftirlit, endurskoðanir og uppfærslur
9.1. Við endurskoðum samantektina, reglurnar og viðauka með reglum um eignaflokka árlega eða oftar þegar efnislegar breytingar eru gerðar sem hafa áhrif á staðla bestu framkvæmdar.
10. Samantekt fyrirmæla og framkvæmd að hluta
10.1. Þegar við framkvæmum eða sendum fyrirmæli þín til miðlara til framkvæmdar sameinum við þau ekki fyrirmælum okkar eða fyrirmælum annarra viðskiptavina, nema hvað varðar peningamarkaðssjóði (kynntu þér viðauka við reglur um framkvæmd fyrir peningamarkaðssjóði).
10.2. Við tilteknar kringumstæður, þ.m.t. við kringumstæður þar sem lausafjárstaða markaðar er of lág, kunna fyrirmæli þín aðeins að vera framkvæmd að hluta til. Slíkt þýðir að aðeins hluti af upphaflegum fyrirmælum þínum verður framkvæmdur. Heildarkostnaður viðskiptanna verður einnig hlutfallslega lægri.
11. Aðferðafræði við verðlagningu
11.1. Þegar við komum fram sem viðskiptakerfi fyrir viðskipti þín skilgreinum við verð framkvæmdarinnar í samræmi við eftirfarandi meginreglur:
- Að því er varðar bandarísk hlutabréf og bandarísk innlánsskírteini er framkvæmdaverð ákvarðað með tilliti til verðs á viðeigandi markaði fyrir fjármálagerninginn (sem í flestum tilvikum er viðskiptavettvangur aðalskráningar hlutabréfa) og borið saman við viðeigandi viðmiðunarverð.
II.A. Viðauki við framkvæmdarstefnu um hlutabréfaviðskipti og kauphallarsjóðir
Þessi viðauki inniheldur frekari leiðbeiningar varðandi framkvæmd reglna um meðferð fyrirmæla og bestu framkvæmd („reglur“) hvað varðar hlutabréf, kauphallarsjóði („ETF“) og bandarísk innlánsskírteini („ADR“).
1. Gildissvið reglna
1.1. Reglurnar gilda um þennan viðauka að öllu leyti og því ættir þú að lesa þennan viðauka samhliða reglunum.
2. Meðferð fyrirmæla
2.1. Þegar við framkvæmum viðskipti sem hluta af umboði okkar fyrir stýringu verðbréfasafns framkvæmum við fyrirmælin sem umbjóðandi eða sendum þeim völdum miðlurum til framkvæmdar. Hverju sinni verða slík fyrirmæli framkvæmd í samræmi við þessa stefnu. Frekari tilhögun hvað varðar stýringu eignasafns er tilgreind í skilmálum Robo-Advisor, sem má nálgast á vefsvæðiokkar.
3. Framkvæmdarþættir
3.1. Framkvæmdarþættir sem fjallað er um hér og hlutfallsleg forgangsröðun er hin sama og lýst er í 3. lið reglnanna.
4. Valdir miðlarar
4.1. Þessi hluti á við þegar við komum fram sem umboðsmaður. Val á miðlurum fyrir hlutabréf, bandarísk innlánsskírteini og kauphallarsjóði fer fram samkvæmt 2. lið stefnunnar.
4.2. Þegar við komum fram sem umboðsmaður og sendum fyrirmæli þín að því er varðar hlutabréf sem skráð eru í Bandaríkjunum og bandarísk innlánsskírteini til miðlara notum við:
- DriveWealth LLC („DriveWealth“), sem er bandarískur miðlari skráður hjá Verðbréfa- og kaupþingsnefnd Bandaríkjanna („SEC“) og meðlimur nefndar um reglur fyrir fjármálageirann („FINRA“) og stofnun til verndar verðbréfafjárfestum („SIPC“);
- GTN Asia Financial Services (Pte) Limited („GTN“) sem er miðlari frá Singapúr og heyrir undir seðlabanka Singapúr („MAS“).
4.3. Hvað varðar hlutabréf sem skráð eru á Evrópska efnahagssvæðinu og kauphallarsjóði, þ.m.t. kauphallarsjóði sem framkvæmdir eru sem hluti af þjónustunni Robo-Advisor, notum við miðlarann Upvest Securities GmbH („Upvest“), sem er þýskur miðlari sem er skráður hjá og undir eftirliti Bundesanstalt für Finanzdienstleistungsaufsicht („BaFin“).
5. Viðskiptastaðir
5.1. Val miðlara á viðskiptastöðum fer fram skv. 7. lið reglnanna. Þú skilur að þegar við komum fram sem umbjóðandi erum við viðskiptakerfi fyrir fyrirmæli þín.
5.2. Að því er varðar bandarísk hlutabréf og bandarísk innlánsskírteini munum við bæði koma fram sem umboðsmaður og umbjóðandi þegar við framkvæmum þín fyrirmæli. Að því er varðar kauphallarsjóði munum við aðeins koma fram sem umboðsmaður og senda fyrirmæli þín til miðlara til framkvæmdar.
5.3. Fyrirmæli sem varða brot af hlutabréfum, bandarísk innlánsskírteini og kauphallarsjóði verða framkvæmd með því að nota eigin reikning okkar eða reikning viðkomandi miðlara, sem gerir okkur eða viðkomandi miðlara í reynd að viðskiptakerfi viðskipta þinna.
5.4. . Í sumum tilvikum verða fyrirmæli þín hugsanlega framkvæmd utan viðskiptavettvangs. Ef fjármálagerningurinn var afskráður af viðskiptavettvangi verða öll fyrirmæli í slíkum fjármálagerningi þar að auki framkvæmd utan viðskiptavettvangs. I Í slíkum tilvikum eykst markaðsáhætta til muna. Frekari upplýsingar er að finna í áhættulýsingunni.
II.B. Viðauki framkvæmdarstefnu fyrir skuldabréf
Þessi viðauki inniheldur frekari leiðbeiningar varðandi framkvæmd reglna um meðferð fyrirmæla og bestu framkvæmd („reglur“) hvað skuldabréf varðar.
1. Gildissvið reglna
1.1. Reglurnar gilda um þennan viðauka að öllu leyti og því ættir þú að lesa þennan viðauka samhliða reglunum.
2. Framkvæmdarþættir
2.1. Hið hlutfallslega mikla vægi sem við gefum framkvæmdarþáttum markaðsfyrirmæla er eins og lýst er í 3. lið reglnanna, þar sem aðaláherslan er á að ná besta hugsanlega verði og kostnaði hvað framkvæmdina varða. Viðkomandi miðlari leggur stöðugt mat á verð tiltekinna hlutabréfa, eða a.m.k. á klukkutíma fresti eða oftar í samræmi við markaðsaðstæður hverju sinni. Umrætt verð er ákveðið með því að finna meðaltal tiltæks verðs í ólíkum markaðsgögnum og verðlagsheimildum eins og CBBT, CBBA og BCN.
2.2. Við höfum náið eftirlit með gæðum framkvæmda hjá miðlara okkar við framkvæmd fyrirmæla þinnar, hvað verð og hraða framkvæmdar varðar. Slíkt felur í sér að bera framkvæmdarverð skuldabréfsins saman við verðlagsheimildir sem lýst er í 3.1 lið og fylgjast með meðalframkvæmdartíma fyrirmælanna.
3. Valdir miðlarar
3.1. Miðlarar skuldabréfa eru valdir skv. 2. lið reglnanna.
3.2. Hvað skuldabréf varðar, notum við GTN Asia Financial Services (Pte) Limited („GTN“) sem er miðlari frá Singapúr og heyrir undir seðlabanka Singapúr („MAS“).
4. Viðskiptastaðir
4.1. Við framkvæmum fyrirmæli varðandi skuldabréf fyrir þína hönd utan viðskiptavettvangsins beint við valinn miðlara. Það þýðir að sérhvert fyrirmæli verður framkvæmt á móti eigin reikningi miðlarans, sem þú samþykkir sem hluta af skilmálum okkar. Miðlarinn verður gagnaðili (umbjóðandi) allra skuldabréfaviðskipta þinna, en við munum koma fram sem umboðsmaður þegar við sendum fyrirmæli þín um skuldabréfaviðskipti til miðlarans. Með tilliti til skuldabréfa komum við aðeins fram sem umboðsmaður og sendum fyrirmæli þín til miðlarans til framkvæmdar.
4.2. Þar sem fyrirmælin eru framkvæmd utan viðskiptavettvangs eykst mótaðilaáhættan til muna. Frekari upplýsingar er að finna í áhættulýsingunni.
4.3. Að undanskildum fyrirmælum með sérstökum leiðbeiningum frá þér, erum við undir eftirlitsskyldu til að ná sem bestum árangri fyrir þig þegar við sendum fyrirmæli þín sem verða framkvæmd utan viðskiptavettvangsins.
II.C. Viðauki við reglur um framkvæmd fyrir peningamarkaðssjóði
Þessi viðauki inniheldur frekari leiðbeiningar varðandi framkvæmd reglna um meðferð fyrirmæla og bestu framkvæmd („reglur“) hvað peningamarkaðssjóði varðar („MMF“).
1. Gildissvið reglna
1.1. Reglurnar gilda að öllu leyti um þennan viðauka og hann ætti að lesa um leið og reglurnar sjálfar, en hins vegar er mikilvægt að hafa í huga að þrátt fyrir að við meðhöndlum áskriftir og innlausn sjóðshlutanna getum við ekki haft áhrif á fjárfestingaákvarðanir sjóðstjórans.
2. Meðferð fyrirmæla
2.1. Þú getur lagt inn fyrirmæli (gerst áskrifandi að og endurheimt einingar peningamarkaðssjóða) í forritinu eins og lýst er í 4. lið reglnanna, með eftirfarandi undantekningum:
2.1.1. Kaupfyrirmæli eru lögð fram með því að ýta á hnappinn „+Bæta við fjármunum“ á tilteknum fjárfestingarreikningi peningamarkaðssjóðs í forritinu (þ.e. á viðeigandi heimasíðu „sveigjanlegs reiknings“ sem kallast einnig heimasíða eignasafns „sveigjanlegra peningamarkaðssjóða”). Öll kaupfyrirmæli sem berast fyrir lokunartíma verða afgreidd samdægurs. Fyrirmæli sem berast eftir lokunartíma verða afgreidd næsta virka dag þar á eftir fyrir næsta tiltæka lokunartíma. Lokunartími allra fyrirmæla viðskiptavina á virkum dögum er 10:00 EET (tímabelti í Litháen).
2.1.2 Sölufyrirmæli eru lögð fram með því að ýta á hnappinn „taka út“ á tilteknum fjárfestingarreikningi peningamarkaðssjóðs í forritinu (þ.e. á viðeigandi heimasíðu „sveigjanlegs reiknings“, heimasíðu eignasafns „sveigjanlegra peningamarkaðssjóða”). Öll sölufyrirmæli sem berast fyrir lokunartíma verða afgreidd samdægurs. Fyrirmæli sem berast eftir lokunartíma verða afgreidd næsta virka dag þar á eftir fyrir næsta tiltæka lokunartíma. Lokunartími allra fyrirmæla viðskiptavina á virkum dögum er 10:00 EET (tímabelti í Litháen).
2.1.3 Ekki er hægt að hætta við fyrirmæli eftir að þau eru lögð fram. Þú notar frekar valkostinn „taka út“ á tilteknum fjárfestingarreikningi peningamarkaðssjóðs í forritinu („sveigjanlegan reikning“,„sveigjanlega peningamarkaðssjóði”) til að fá fjármunina endurgreidda. Þegar þú notar valkostinn „taka út“ samþykkir þú að innleysa viðkomandi sjóðseiningar í fyrir næsta tiltæka lokunartíma.
3. Framkvæmdarþættir
3.1. Framkvæmdarþættir sem tekið er mið af og hlutfallslegur forgangur þeirra eru eins og lýst er í 3. lið reglnanna, en taka verður fram að við getum að mestu leyti stjórnað framkvæmdarhraða og líkum á framkvæmd og uppgjöri.
3.2. Vegna eðlis peningamarkaðssjóða með lítið flökt í innra virði („LVNAV“) og fast innra virði („CNAV“), munu peningamarkaðssjóðir sem ætlað er að halda föstu virði á hlutabréfum og uppfylla gildandi kröfur halda hlutabréfaverðinu stöðugu. Frekari upplýsingar um þetta efni er að finna í skjali okkar um áhættulýsingu sem er hægt að nálgast hér.
3.3. Kostnaður í tengslum við framkvæmd peningamarkaðssjóða á yfirleitt ekki við, aðeins þjónustugjald er innheimt af ávöxtun fjárfestinga viðskiptavina, nema ef markaðsaðstæður eru slæmar kann yfirstjórn sjóðsins að ákveða að innheimta lausafjársgjöld af innlausnum. Frekari upplýsingar um þetta efni er að finna í skjali okkar um fyrirframtilkynningar kostnaðar og gjalda fyrir peningarmarkaðssjóði sem er hægt að nálgast hér.
4. Valinn sjóðstjóri
4.1. Hvað peningamarkaðssjóði varðar, bjóðum við fjárfestingarþjónustu fyrir LVNAV- og CNAV-sjóði („sjóði“), sem eru undirsjóðir Fidelity Institutional Liquidity Funds plc. Hinn síðarnefndi er UCITS-regnhlífarsjóður með aðskildri skuldbindingu á milli undirsjóða og starfar sem almennt fjárfestingarfyrirtæki - samkvæmt heimild og undir stjórn Seðlabanka Írlands („regnhlífarsjóður“).
4.2. Verðbréfasjóður kann að fela viðurkenndu rekstrarfélagi verðbréfasjóðs stjórnunarstarfsemi sína. Regnhlífarsjóðurinn hefur falið FIL Investment Management (Luxembourg) S.A., Ireland Branch („sjóðstjóri“) stjórnun sjóðsins. Þrátt fyrir að geta ekki haft áhrif á ákvarðanir sjóða sameiginlegra fjárfestinga veljum við peningamarkaðssjóði í samræmi við 2. lið þessara reglna og fylgjumst með breytingum á þeim.
5. Viðskiptastaðir
5.1. Þegar um sjóði er að ræða, framkvæmum við fyrirmæli fyrir þína hönd utan viðskiptavettvangsins beint við sjóðsstjórann (eða skipaðan umsýsluaðila eða framsalsmiðil). Hlutir sjóðanna eru ekki seldir á neinum eftirmarkaði og er aðeins hægt að gefa þá út eða innleysa í gegnum Revolut Securities.
5.2. Sjóðstjórar kunna að úthluta stjórnun til þriðja aðila. Sjóðstjóri skipaði J.P. Morgan Administration Services (Ireland) Limited, sem gegnir hlutverki stjórnanda og færslufulltrúa „stjórnandi“). Stjórnandi ber ábyrgð á útgáfu og innlausn hluta í sjóðunum og umsjón með skráningu eigenda hlutdeildarskírteina.
5.3. Sjóði er skylt að tilnefna vörsluaðila til að aðgreina eignir fjárfesta og eignir sjóðsins á fullnægjandi hátt. Sjóðstjórinn hefur heimild til að reka vörsluaðila og tilnefna nýjan ef sjóðstjórinn hefur ástæðu til að ætla að vörsluaðili geti ekki uppfyllt skyldur sínar. Vörsluaðili ber ábyrgð á varðveislu og staðfestingu eignarhalds á hlutabréfum peningamarkaðssjóða, sjóðstreymiseftirliti sem og eftirliti með útgáfu/innlausn hlutabréfa, tekjudreifingu og útreikningum verðmæta hreinnar eignar í samræmi við viðeigandi reglugerðir.
5.4. Vörsluaðili tilnefndur af sjóðstjóra er J.P. Morgan Bank SE, Dublin Branch („vörsluaðili“). Vörsluaðili starfar óháð sjóðunum, regnhlífarsjóðnum og sjóðstjóranum og vinnur eingöngu í þágu sjóðanna og fjárfesta þeirra.
II.D. Viðauki við reglur um framkvæmd mismunasamninga (CFD)
Þessi viðauki inniheldur frekari leiðbeiningar varðandi framkvæmd reglna um meðferð fyrirmæla og bestu framkvæmd („reglur“) hvað mismunasamninga varðar („CFD“).
1. Gildissvið reglna
1.1. Reglurnar gilda um þennan viðauka að öllu leyti og því ættir þú að lesa þennan viðauka samhliða reglunum.
2. Meðferð fyrirmæla
2.1. Þú berð ábyrgð á að halda hagnaðarupphæð fyrir ofan hina lögboðnu 50% fyrir öll framkvæmd fyrirmæli. Þegar áðurnefnd viðmiðunarmörk eru rofin munum við sjálfkrafa loka einum eða fleiri stöðum mismunasamninga með stærsta tapinu þar til viðhaldshagnaður hefur færst í endurstillt horf (yfirleitt a.m.k 70%).
2.2. Við sjáum um að loka sjálfkrafa stöðu með því að leggja fram markaðsfyrirmæli að áskildu virði svo heildarhagnaður færist aftur í áskilinn viðhaldshagnað.
3. Framkvæmdarþættir
3.1. Hlutfallslegt mikilvægi sem við veitum framkvæmdarþáttum markaðsfyrirmæla er hið sama og kemur fram í 3. lið reglnanna. Áhersla okkar er fyrst og fremst á að ná besta mögulega verðinu, með því að tryggja að markaðsverð mismunasamninganna endurspegli verð viðkomandi eignar sem liggur til grundvallar eins og frekast er unnt. Við lítum einnig á hraða og líkur á að ljúka viðskiptum sem mikilvægan þátt vegna aukinnar hættu á verðskriði þegar viðskiptin eru gerð í mismunasamningum.
3.2. Fylgst verður náið með gæðum framkvæmdarinnar. líkt felur í sér að bera framkvæmdarverð mismunasamningsins saman við upplýsingar um verð sambærilegra afurða innan EES, fylgjast með tíðni verðskriðstilvika og meta samhliða hlutfall jákvæðra verðskriðstilvika og hlutfall neikvæðra verðskriðstilvika. Allar ráðstafanir sem lýst er í lið 7.3 eiga við um mismunasamninga.
4. Valdir miðlarar
4.1. Þessi hluti á við þegar við komum fram sem umboðsmaður. Miðlarar mismunasamninga eru valdir skv. 2. lið reglnanna.
4.2. Miðlarinn sem sér um öll viðskipti okkar með mismunasamninga er CMC Markets Germany GmbH, sem er undir eftirliti þýska eftirlitsstofnunarinnar Bundesanstalt für Finanzdienstleistungsaufsicht („BaFin“), sem er samstarfsaðili CMC Markets UK Plc, sem hefur leyfi og er undir eftirliti fjármálaeftirlits Bretlands („FCA“) og er skráð sem opinbert fyrirtæki á kauphöllinni í London.
5. Viðskiptastaðir
5.1. Fyrirmæli þín um mismunasamninga eru yfirleitt framkvæmd utan viðskiptavettvangs og þú samþykkir slíkt sem hluta af skilmálum okkar. Þú skilur að þegar við komum fram sem umbjóðandi erum við viðskiptakerfi fyrir fyrirmæli þín um mismunasamninga.
5.2. Hvað varðar mismunasamninga munum við starfa í blandaðri stöðu umboðsmanns og umbjóðanda. Þegar við komum fram sem umbjóðendur munum við koma fram sem gagnaðili við mismunasamninga þína og framkvæma fyrirmæli þín með því að nota eigið fé okkar. Í slíkum tilvikum tökum við á okkur markaðsáhættu sem við munum hugsanlega verja, í samræmi við innra fyrirkomulag okkar og áhættumörk. Áhættuvarnaraðgerðir okkar eru aðgreindar frá verðlagningarferli okkar fyrir mismunasamninga og hafa ekki áhrif á eða skilyrða framkvæmd pöntunar þinnar á nokkurn hátt. Þegar við komum fram sem umboðsmaður gerum við mismunasamningaviðskipti við framkvæmdamiðlara fyrir þína hönd, í samræmi við fyrirmæli sem þú gefur. Þar af leiðandi berum við ekki hagnað af tapi þínu (eða öfugt). Frekari upplýsingar er hægt að nálgast í reglum okkar um hagsmunaárekstra.
5.3. Þar sem fyrirmælin eru framkvæmd utan skipulegra markaða eykst mótaðilaáhættan. Frekari upplýsingar er að finna í áhættulýsingunni.