Upplýsingagjöf vegna sjálfbærni (á einingastigi)
Upplýsingagjöf vegna sjálfbærni (á einingastigi)
Í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2088 frá 27. nóvember 2019 um upplýsingagjöf vegna sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu („ESB-reglugerð um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu“).
Athugaðu að upplýsingarnar hér á eftir skulu birtar í samræmi við gildandi lög og teljast ekki til kynningarefnis.
Ef ósamræmi eða árekstur er á milli þýðingar á þessari upplýsingagjöf vegna sjálfbærni á einingastigi og upprunalegu útgáfunnar á ensku skal upprunalega útgáfan gilda. Þýðingin er aðeins til hliðsjónar.
Tekur gildi frá 29. janúar 2024.
Síðast uppfært 29. október 2024.
Bakgrunnur
Með ESB-reglugerð um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu, sem er aukin með framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1288 frá 6. apríl 2022, er stefnt að því að auka gagnsæi á markaði fyrir sjálfbærar fjárfestingarafurðir með því að veita tilteknar upplýsingar um sjálfbærni frá þátttakendum á fjármálamarkaði, þ.m.t. fjárfestingarfyrirtækjum sem veita þjónustu við stýringu eignasafna. Revolut Securities Europe UAB, en fulltrúi þess fyrirtækis í Sviss er Revolut (Sviss) AG („RSEUAB“, „við“, „okkur“, „okkar“), er litháískt fjárfestingarfyrirtæki, með starfsleyfi og undir eftirliti Seðlabanka Litháens. RSEUAB notar meðal annarrar fjárfestingarþjónustu sjálfvirku stafrænu lausnina Robo-Advisor til að veita viðskiptavinum sínum í EES og Sviss valkvæða eignastýringarþjónustu. Þessar upplýsingar lýsa nálgun RSEUAB til að tryggja að farið sé að viðeigandi kröfum ESB-reglugerðarinnar um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu á einingastigi.
Frekari upplýsingar um hugtök sem tengjast umhverfis-, félags- og stjórnarháttum („UFS“) er að finna í Skýringar á valmöguleikum um sjálfbærni og tengdum algengum spurningum.
Innfelling áhættu tengdrar sjálfbærni í starfskjarastefnunni (5. gr. ESB-reglugerðarinnar um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu)
„Áhætta tengd sjálfbærni“ vísar til umhverfislegs, félagslegs eða stjórnunarlegs atburðar eða aðstæðna sem myndu leiða til raunverulegra eða hugsanlegra neikvæðra áhrifa á virði fjárfestingar.
Við hjá RSEUAB leggjum okkur fram um að tryggja ábyrga áhættustýringu, þar á meðal að taka áhættu tengda sjálfbærni inn í starfskjarastefnu okkar til að stuðla að traustri ákvarðanatöku og skilvirkri áhættustýringu.
Starfskjararammi okkar miðar að því að viðurkenna jákvæða hegðun og ábyrga áhættustjórnun. Gildi allrar samstæðunnar, stefnumál og regluleg skyldubundin þjálfun hvetja til þess að tekið sé tillit til umhverfislegra og félagslegra áhrifa í daglegum viðskiptaákvörðunum.
Að taka tillit til UFS-áhrifa er óbeinn hluti af ákvörðun breytilegra starfskjara hjá RSEUAB sem grundvallast á frammistöðu. Áskilið er að fara að meginreglum UFS-stefnu Revolut-samstæðunnar og að ljúka skyldubundnu UFS-vefnámskeiði. Misbrestur á að uppfylla þjálfunarkröfur getur leitt til formlegra viðurlaga og mögulegra neikvæðra niðurstaðna hvað aukagreiðslur varðar. Markviss og framsækin tillög til stjórnunar á áhættu tengdri sjálfbærni geta haft jákvæð áhrif á frammistöðumat starfsmanna og aukagreiðslur.
Athugið að þessi liður gæti verið uppfærður reglulega. Hann er til upplýsingar og kemur ekki í stað samantektarinnar á starfskjarastefnu okkar.
Ef ósamræmi er milli þessa liðar, starfskjarastefnunnar og samninga milli RSEUAB og viðskiptavina þess skulu síðarnefndu skjölin gilda. Þessar upplýsingar teljast ekki vera lögfræðiráðgjöf og RSEUAB tekur enga ábyrgð á aðgerðum sem gripið er til eða sem forðast er að grípa til á grundvelli þessara upplýsinga.
Ekkert tillit er tekið til neikvæðra áhrifa fjárfestingaákvarðana á sjálfbærniþætti (4. gr. ESB-reglugerðarinnar um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu)
„Sjálfbærniþættir“ eru skilgreindir sem umhverfis-, félags- og starfsmannatengd mál, virðing fyrir mannréttindum og mál sem varða baráttuna gegn spillingu og mútum. „Helstu neikvæðu áhrif“ fela í sér öll neikvæð áhrif sem fjárfesting kann að hafa á þessa sjálfbærniþætti. Þess vegna fela vísar um helstu neikvæðu áhrif í sér mælikvarða sem hannaðir eru til að sýna sjálfbærniáhættu í tengslum við tilteknar fjárfestingar.
Eins og er skoðar RSEUAB ekki helstu neikvæðu áhrif af fjárfestingarákvörðunum sínum á sjálfbærniþætti.
Flækjustig í tengslum við tiltækileika og söfnun gagna um helstu neikvæðu áhrif veldur því að ekki er tekið tillit til helstu neikvæðu áhrifa á sjálfbærniþætti. Vísar um helstu neikvæðu áhrif krefjast oft töluverðs magns gagna til að hægt sé að reikna þá út og fyrirliggjandi gögn geta verið mismunandi áreiðanleg, allt eftir uppruna þeirra.
Að svo stöddu er ekki tekið tillit til helstu neikvæðu áhrifa á sjálfbærniþætti í Robo-Advisor eignasöfnunum sem nú eru í boði. Ákvörðunin um að líta til vísa – meðal annars losunar í vatn, orkunotkunarstigs, starfsemi sem hefur neikvæð áhrif á líffræðilega fjölbreytni, hættulegs úrgangs og félags- og atvinnumála, svo sem óleiðrétts launamunar kynjanna – er í áframhaldandi endurskoðun og verður formlega endurmetin árlega.
Gagnsæi innfellingar áhættu tengdrar sjálfbærni (3. gr. ESB-reglugerðarinnar um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu)
„Áhætta tengd sjálfbærni“ vísar til umhverfislegs, félagslegs eða stjórnunarlegs atburðar eða aðstæðna sem, ef þær koma upp, myndu valda neikvæðum áhrifum á virði fjárfestingar. Sem stendur er RSEUAB að vinna mikilvægisgreiningu á áhættu tengdri sjálfbærni og hefur ekki enn fellt áhættu tengda sjálfbærni inn í ferli sitt við ákvarðanatöku um fjárfestingar á einingastigi.
Við lítum svo á að innfelling áhættu tengdrar sjálfbærni í ferli okkar við ákvarðanatöku um fjárfestingar sé nauðsynlegt næsta skref í áframhaldandi þróun eignastýringarþjónustu okkar. Áskorun okkar núna felst í mismunandi gæðum og ósamræmi gagna um umhverfislega og félagslega þætti og stjórnarhætti, sem eiga sér rætur í síbreytilegum skýrslugjafarstöðlum fyrirtækja og þeirri fjölbreyttu aðferðafræði sem mismunandi gagnaveitendur UFS nota. Sem lítið fjárfestingarfyrirtæki reiðir RSEUAB sig á stuðning utanaðkomandi UFS-rannsóknar- og matsaðila. Við teljum að innfelling gagna seljenda í eigin greiningarkerfi sé nauðsynleg til að öðlast meiri innsýn í UFS-mælistikur sem nauðsynlegar eru til að fella áhættu tengda sjálfbærni með góðum árangri inn í ferli við ákvarðanatöku um fjárfestingar.
Sem stendur hefur RSEUAB ekki enn þróað eigið verklag og sniðmát fyrir mat á áhættu tengdri sjálfbærni til að bjóða upp á UFS-samþættar fjárfestingaákvarðanir sem hver um sig uppfyllir einstök sjálfbærnimarkmið hvers viðskiptavinar. Hins vegar stefnum við að því að kanna frekar möguleikann á að útvíkka núverandi framboð okkar með því að fella traustari sjálfbærnisjónarmið inn í ferli áreiðanleikakannana og uppbyggingar eignasafnslíkana.